Frjáls verslun - 01.05.1976, Blaðsíða 93
AUGLÝSING
í stutta ökuferð til vesturhluta
Tsavogarðsins og Mzima
Springs þar sem flóðhestarnir
bylta sér í tæru vatninu. Næsta
dag er haldið til Salt Lick og
fyrst farið til Taita Hills, þar
sem hádegisverður er snæddur
og þar á eftir til Salt Lick
Lodge. Næturgistingin þar á
eftir að vera meðal þeirra eftir-
minnilegustu, því húsin standa
á staurum og útsýnið frábært
og alla jafna hægt að virða fyr-
ir sér fjölskrúðugt dýralíf.
Næsti dagur er dagur mynda-
vélanna því tveim dögum er
eytt í Tsavo þjóðgarðinum en
hann er svæði sem er á stærð
við hálft Svissland og býður
uppá sérkennilegt dýralíf eins
og endranær í þessari ferð.
Fyrir hádegi á níunda degi er
haldið til Mombasa og búið á
Serena Beach hótelinu. Þar eru
einhverjar glæsilegustu bað-
strendur veraldarinnar og til-
valið að njóta síðustu daganna
undir pálmatrjám og ekki er
hætta á að veðrið verði leiðin-
legt, því meðalhiti t.d. í febrúar
er 24 gráður á Celcíus.
Ferðaskrifstofa SAS að
Laugavegi 13, R., gefur við-
skiptamönnum sínum ítarlegar
upplýsingar um Austur-Afríku
ferðir og getur státað af
góðri þjónustu og margra ára
reynslu við skipulagningu á
Austur-Afríku ferðum.
Af hverju ekki að breyta til
einu sinni?
FERÐASKRIFSTOF/VM LRVAL:
Ferðast á eigin
bíl
um Skotland
Nú er í athugun hjá Ferða-
skrifstofunni Úrval að bjóða
uppá ferðir til Skotlands og hef-
ur Úrval sérstaklcga í huga að
notfæra sér þá þjónustu, sem
færeyska ferjan „Smyrill“ veit-
ir, þ.e.a.s., að íslendingar geti
tekið eigin híl með í ferðina og
ekið síðan um Skotland og jafn-
vel til Englands.
Að sjálfsögðu getur ferða-
skrifstofan Úrval bókað nætur-
gistingar fyrir viðskiptavini
sina ef óskað er, en telur þó
heppilegra fyrir ferðamennina
að skipuleggja sinn eigin tíma
og haga ferðaáætlun eftir eigin
óskum.
Kostnaður við slikt ferðalag
er ekki eins mikill og vænst
hefði mátt. Fargjaldið er kr.
72.000 fyrir hjón og 18.000 fyrir
barn. Siðast en ekki síst er far-
gjaldið fyrir bílinn einungis kr.
15.200.
Ferðakostnaður fyrir fjög-
urra manna fjölskyldu fram og
til baka með Smyrli er kr.
123.200 og næturgisting í Skot-
landi er áætluð £ 12.00 á sól-
arhring fyrir 2 hjón og 2 börn
ásamt morgunverði. Fyrrgreint
verð er miðað við góð hótel eða
svokölluð „guest-houses“.
Auðveldast og ráðlegast er að
útvega sér upplýsingabækling,
strax við komuna til landsins,
t.d. „Where to stay in Scot-
land“, en þar er hægt að finna
gott yfirlit yfir helstu hótel og
þjóðvegi.
Frá aðkomustað í Scrabster í
Skotlandi er ekið eftir veginum
austan megin við Wick og síðan
gegnum Inverness, en þar
skammt fyrir sunnan er ferða-
mannastaðurinn Avermour,
sem vert er að minnast á. Þar
eru 3 fyrsta flokks hótel og allt
sem hugurinn girnist í hvíldar-
og afþreyingarferðalagi t.d.
sundhallir, gufuböð, golfvellir,
dansstaðir, skemmtilegar krár
(pubs), og veiðileyfi eru fáan-
leg ef ske kynni að veiðistöng-
in hefði verið tekin með.
Staðurinn er í fallegu um-
hverfi og gefst ferðamönnum
einnig kostur á að bregða sér á
hestbak, fara í gönguferðir eða
aka um og skoða nærliggjandi
staði.
Þá er ferðinni haldið áfram
yfir Lochness og til Perth og
svo áfram til Edinborgar. Það-
an liggur leiðin til Glasgow og
er þar margt eftirsóknarvert að
skoða. Síðan má halda ferðinni
áfram eftir vesturströndinni
yfir fallegustu hálendi Skot-
lands.
Á þessu tveggja vikna ferða-
lagi er vegalengdin í kringum
1300 km. og ef eknir eru 100
km. á dag ætti það ekki að vera
þreytandi, sérstaklega með til-
liti til steyptu veganna og
þeirra valkosta, sem slíkt ferða-
lag hefur uppá að bjóða, því
hægt er að ráðstafa tímanum
eftir eigin höfði og það ætti
einmitt að vera tilgangur ferð-
arinnar.
FV 5 1976
85