Frjáls verslun - 01.05.1976, Blaðsíða 31
ur giftingaraldur íslenskra stúd-
enta þýðir að þeir eiga almennt
ekki hægt um vik að taka þátt
í stúdentaskiptum, og loks má
svo nefna að íslenskir stúdent-
ar leggja yfirleitt meira upp úr
aS afla sér sem mestra peninga
í fríum milli skólaára en að
auka þekkingu sína og reynslu
í öðrum löndum i gegnum stúd-
entaskipti AISESC.
FIMM TIL TÍU HINGAÐ
ÁRLEGA
Að sögn Guðjóns Jónssonar,
viðskiptafræðinema, sem áður
er getið, er megin orsök þekk-
ingarleysis á störfum AISESC
hér, að AISESC nefndin ís-
lenska hefur ekki haft bolmagn
til kynningarherferðar sem að
gagni mætti koma. Þrátt fyrir
þessa erfiðleika koma nú ár-
lega fimm til tíu erlendir stúd-
entar til starfa hér, og oftast
fara einhverjir íslenskir til
starfa erlendis.
Framtíð AISESC hérlendis er
fyrst og fremst háð áhuga stúd-
enta og forsvarsmanna fyrir-
tækja á gagnsemi þessarar
starfsemi. Erlendir stúdentar,
sem hingað hafa komið á veg-
um stúdentaskipta AISESC
telja sig hafa haft mikið gagn
af komunni og sama er að segja
um þau fyrirtæki, sem þeir
hafa starfað hjá, þau hafa met-
ið nýjar hugmyndir stúdent-
anna og viðhorf og er blaðinu
kunnugt um að víða hafi þeir
unnið mikið gagn í fyrirtækj-
unum. Sama er að segja um þá
fáu íslendinga, sem farið hafa
út.
FJÁRMAGN SKORTIR
Guðjón sagði, að sjaldan hafi
verið eins mikill einhugur í ís-
lenzku AISESC-nefndinni að
hef ja AISESC til þess álits hér-
lendis sem það nýtur víðast
erlendis. Til þess þarf fjár-
magn, og er ötullega unnið að
útvegun þess með frjálsum
framlögum og fleiri aðferðum.
Þess má geta að erlendis taka
atvinnuveitendur þá nýstúd-
enta oftast íramyfir, sem tekið
hafa þátt í stúdentaskiptum
AISESC, vegna þess að þeir
hafa þá víðtækari menntun og
þjálfun en aðrir.
Markmið AISESC-nefndar-
innar hér er að styrkja 10 til
15 viðskiptafræðinema til utan-
farar árlega í þeim tilgangi að
auka þekkingu þeirra og
reynslu í ýmiskonar fyrir-
tækja- og atvinnurekstri. Auk
þess vill AISESC á íslandi
minnst 10 störf í íslenskum fyr-
irtækjum til handa erlendum
stúdentum. Þegar þessu tak-
marki hefur verið náð, mun
AISESC á íslandi hefja upp-
byggingu skipulegs ráðstefnu-
halds með þátttöku viðskipta-
fræðinema og forsvarsmönnum
fyrirtækja.
RÁÐSTEFNUR
AISESC gengst fyrir fjölda
ráðstefna í þeim tilgangi að
kryfja einhverja málaflokka til
mergjar og dreifa svo niður-
stöðum sem víðast. Þannig er
nú í undirbúningi ráðstefna um
skipaútgerð, sem haldin verður
í sambandi við margar smærri
ráðstefnur um sama málefni í
fjölda V-Evrópuríkja. Hópur af
hverri ráðstefnu mun svo mæta
á aðalráðstefnuna og kynna sín-
ar niðurstöður og á aðalráð-
stefnunni verður svo unnið að
einni allsherjar niðurstöðu,
byggðri á niðurstöðum hinna
ráðstefnanna. Þær upplýsingar
og niðurstöður, sem fram koma,
dreifast svo með þátttakendun-
um víða um heim og gildi
þeirra hefur tvímælalaust átt
sinn þátt í því að vinnaAISESC
það álit, sem samtökin njóta
víðast. Kemur það m.a. fram í
því að fjölmörg stórfyrirtæki
víða í heiminum, beinlínis
sækjast eftir að fá erlenda
stúdenta til starfa í gegnum
stúdentaskiptin og auk þess að
greiða stúdentunum ákveðin
laun, styrkja þau AISESC með
beinum fjárframlögum.
Heimsþekkt hótelpostulín með
yfir 30 ára reynslu hér á Iandi.
• MATSÖLUSTAÐIR
• HÖTEL
• VEITINGAHOS
• FÉLAGSHEIMILI
• SJOKRAHÚS
• SKIPAFÉLÖG
um allt land staðfesta langa og
góða endingu.
Leitið upplýsinga hjá umboðs-
mönnum:
JÓH. ÓLAFSSON & CO
KLETTAGÖRÐUM 43 — SÍMI 82644
FV 5 1976
29