Frjáls verslun - 01.05.1976, Blaðsíða 22
INlorræn samvinna:
Greinilega hefur losnað um
böndin eftir EBE-aðild
Danmerkur
- segja áhugamennirnir. Samstarf ríkisstjórnanna fimm
vekur þó' heimsathygli
í virðulegum salarkynnum gamla þinghússins í Stokkhólmi hefur aðalskrifstofa Norðurlandaráðs
aðsetur sitt. Þingið flutti starfsemi sína í önnur húsakynni fyrir nokkrum ámm og fékk Norður-
landaráð þá aðstöðu í gamla húsinu og er þar víða rúmt um einstakar skrifstofur, þannig að starfs-
menn ráðsins geta jafnvel leyft sér að hafa borð tennisbúnað inni hjá sér.
Ekki má þetta þó skoðast
sem dylgjur um að hinir laun-
uðu embættismenn norrænnar
samvinnu hafi ekkert betra við
tímann að gera en að stunda
léttar íþróttir í vinnutíma.
Verkefni þessarar skrifstofu
eru margvísleg enda starfsemi
Norðurlandaráðs mjög víðtæk
og meiri en almenning í aðild-
arlöndunum kann í fljótu
bragði að gruna.
Það er Helge Seip, fyrrver-
andi atvinnumálaráðherra í rík-
isstjórn Per Bortens í Noregi,
sem veitir skrifstofunni í Stokk-
hólmi forstöðu en i höfuðborg-
um Norðurlandanna eru líka
starfandi fulltrúar fyrir fram-
kvæmdastjórn ráðsins og gegn-
ir því starfi hér á landi Friðjón
Sigurðsson, skrifstofustjóri Al-
þingis.
2350 MILLJ. KRÓNA
FJÁRLÖG
Störf skrifstofunnar í Stokk-
hólmi eru aðallega fólgin í und-
irbúningi þinghalds Norður-
landaráðs með útgáfu allra
þeirra skýrsla og gagna, sem
því fylgir. Þá annast skrifstof-
an um verkefni fyrir fimm
fastanefndir ráðsins, sem koma
saman til funda fjórum til
firnm sinnum á ári. Þessir
nefndafundir fara fram í að-
ildarlöndunum til skiptis og
hafa fengið aukna þýðingu eftir
að fundum Norðurlandaráðsins
var aftur fækkað í einn á ári.
Gamla þinghúsið í Stokkhólmi.
landaráðs nú aðsetur.
íslendingar mæta yfirleitt allt-
af til þessara nefndafunda en
auk þeirra fara svo fram fimm
til sex fundir árlega hjá for-
sætisnefndinni, sem Ragnhild-
ur Helgadóttir á nú sæti í fyrir
hönd íslendinga.
Skrifstofan í Stokkhólmi fær
4—5 millj. sænskra króna í
fjárveitingu frá aðildarríkjun-
um á þessu ári. Það er þó að-
eins lítill hluti af fjárlögum
Norðurlandaráðs 1976, sem
hljóða upp á 2350 millj. ísl.
króna. Hlutur íslands þar af er
0,9%.
Hjá skrifstofunni í Stokk-
Þar hefur aðalskrifstofa Norður-
hólmi starfa 16 fastir starfs-
menn og þar á meðal einn ís-
lendingur, Ólafur Pétursson,
sem er starfsmaður samgöngu-
málanefndarinnar. Sú nefnd
hefur haldið fundi á íslandi og
farið til fjarlægra staða, sem
komið hafa við sögu samgöngu-
málaáætlana eins og Svalbarða
og Grænlands. Menningarmála-
nefndin hefur og haldið fund á
íslandi, nánar tiltekið á Húsa-
vik og félagsmálanefnd á Ak-
ureyri. Aðrar fastanefndir
starfa að efnahagsmálum og
lögfræðilegum efnum. Starfs-
menn þessara nefnda hafa að-
setur í Stokkhólmi og hafa
20
FV 5 1976