Frjáls verslun - 01.05.1976, Blaðsíða 69
Verzlunm Diddabúð:
Kaupir mikið af vörum
beint frá útlöndum
Rætt við eiganda verzlunarinnar,
Onnu Hertervig
Gamla apótekið á Siglufirði hefur lengi staðið lítt notað og glugg-
arnir þar horft tómir við vegfarendum á Aðalgötunni. En eftir sl.
áramót fór skyndilega að færast Iíf í tuskurnar og í febrúar var
opnuð tískuvershm í húsnæðinu. Það var Anna Hertervig sem
stóð fyrir þessum umsvifum, en hún er siglfirðingum góðkunn
fyrir verslunarstarf sitt um fjölda ára. Þegar Frjáls verslun heim-
sótti Siglufjörð fyrir skömmu var Anna heimsótt í nýju búðina,
sem hún nefnir Diddabúð, og beðin að segja frá starfseminni.
— Ég hef stundað versluni frá
árinu 1958 og hef alltaf verslað
með fatnað, sagði Anna. — Yið
maðurinn minn vorum lengi
með verslunina Túngötu 1 og
þar vorum við með kvenfatnað,
herrafatnað, skó og ýmsar smá-
vörur. Það má segja að það hafi
verið eins konar vöruhús. Þegar
ég flutti verslunina hingað
breyttist reksturinn og nú legg
ég aðaláhersluna á herrafatnað,
kvenfatnað, barnaföt og snyrti-
vörur. Ég er með svolítið af
skófatnaði, en það er bara lítið.
SMEKKLEGAR INNRÉTT-
INGAR
Innréttingarnar í Diddabúð
eru smekklegar og nýtískulegar
og minna lítið á apótekið, sem
var þarna áður fyrr. — Það var
trésmíðaverkstæðið Bútur, sem
sá um innréttingar hérna, sagði
Anna. — Þeir eru smekklegir í
sér strákarnir þar. Svo vann
fjölskyldan við þetta eins og
gengur og gerist. Þetta var mik-
il fyrirhöfn að flytja fyrir utan
kostnaðinn, sem var umtals-
verður. En ég fékk sæmilega
hagkvæm lán í Verslunarbank-
anum. Öðru vísi hefði þetta
ekki verið hægt. Húsnæðið
hérna er í eigu rafvirkja á
staðnum, en hann hefur leigt
mér það til 5 ára. Ef ég hætti
rekstrinum eftir þessi fimm ár,
þá fær hann innréttingarnar.
LÍTIÐ UM NÝJUNGAR
Að sögn Önnu hefur lítið ver-
ið um nýjungar í verslunar-
rekstri á Siglufirði á síðustu
árum. — Hér hefur þó alltaf
verið mikið til af vörum miðað
við stærð staðarins, sagði hún.
En kannski hefur ekki alltaf
verið hugsað svo mikið um
tískufyrirbrigði. Ég reyni að
fylgjast með því sem er að ger-
ast á markaðinum, fer oft utan
til að versla og kaupi mikið
beint frá útlöndum. Eins fæ ég
dálítið af unglingafatnaði frá
sonum mínum, en þeir reka
verslunina Kastalann í Reykja-
vík. Aðdrættir eru kostnaðar-
samir hér á Siglufirði, eni það er
ekki hægt að láta það koma
fram á vöruverðinu. Við erum
bundin við sömu álagninguna
og aðrir þótt við höfum meiri
kostnað, sagði Anna.
ÞEKKI FLESTA VIÐSKIPTA-
VININA
— Það er gaman að stunda
verslun hér á Siglufirði, sagði
Anna Hertervig. — Ég þekki
flesta viðskiptavinina og veit
orðið nokkuð um smekk þeirra.
í sumum tilfellum veit ég líka
betur en fólkið sjálft hvaða
númer það notar af fötum.
Þetta verður til þess að ég veit
nokkurn veginn hvort ég á það
sem hentar viðskiptavininum í
það og það skiptið og fólk veit
af þessu. Hvað afkomuna snert-
ir, þá get ég ekki sagt annað
en að ég sé ánægð. Það er ekki
hægt að moka inn peningum við
verslun hér, en með talsvert
mikilli vinnu tekst manni að
hafa það gott. Og þegar maður
hefur gaman af þessu líka er
ekki hægt að kvarta, sagði
Anna Hertervig að lokum.
I
Ferstiklu
Hvalfiröi
Fyrir
ferðamanninn:
• Kaffi
• Mjólk
• ís
• Tóbak
• Ferðavörur
• Benzín, olíur
• Hamborgarar
• Kjúklingar
• Svínakótilettur
• Franskar kartöflur
— Veiðileyfi seld —
Veitinga-
húsiö
FERSTIKLU
SÍMI 93-2111
FV 5 1976
63