Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1976, Page 27

Frjáls verslun - 01.05.1976, Page 27
vatnsorkuverum og orkan seld verksmiðjunum á sama verði og hún var boðin til Union Carbide. Það er hætt við að þær niðurstöður gæfu töluvert frábrugðna mynd af arðsemi virkjana en nú er haldið að þjóðinni. Það sem hugsandi menn hafa einkum haft á móti stóriðju á borð við málmblendiverk- smiðju er einmitt þessi vafa- sama gefna forsenda, að hún verði löðuð hingað með gylli- boðum um ódýra orku, sem ekki er fyrir hendi nema nið- urgreidd af þrautpíndum skatt- borgurum þessa lands. Við höf- um enga ódýra orku upp á að bjóða, og það or ógeðfelld póli- tík þegar stóriðja á að rísa með því að láta heimilin í landinu greiða niður rándýra orku, svo hægt sé að gefa hana erlendum spekúlöntum. "'T Stóriðja gæti tvímælalaust orðið stoð og stytta í því ein- hæfa atvinnulífi, sem nú virð- ist ætla að verða hengingaról þjóðarinnar. Það er hins vegar hreint glapræði að ætla að setja upp stóriðju og reka hana á meðgjöf. Ef hún getur ekki greitt það verð sem henni ber þá er einfaldlega ekki um neinn rekstursgrundvöll að ræða og hún getur aldrei orð- ið annað en baggi á þjóðinni. Maður skyldi ætla að þetta væri nú öllum Ijóst eftir þær umræður sem undanfarið hafa staðið um íslenskan landbún- að, þar sem virðisaukinn er svo lítill, að réttmæti þessa at- vinnuvegar í núverandi mynd orkar beinlínis tvímælis. Ef þannig væri að stóriðju- málum staðið, að erlendum fjármagnsaðilum væri sjálfum gert að kosta þær virkjanir sem nauðsynlegar reyndust fyr- ir stóriðjurekstur þeirra, en ríkið eignaðist þær virkjanir svo smám saman með árunum, þá fyrst kæmi í ljós hvað „ódýr“ íslensk orka er í raun oe veru. Rísi einhver stóriðja á þeirri forsendu er ekki loku fyrir það skotið að hún reynd- ist þjóðhagslega hagkvæm. # Alíslenzlt stóriðja framtíðarinnar Ég er þeirrar skoðunar að sú stóriðja sem okkur er hag- kvæmust og um leið viðráðan- leg án erlendrar eignaríhlut- unar sé stórfelld ræktun nytja- fiska. Viða á íslandi svo sem á Vestfjörðum eru svo stór- kostlega hagkvæm skilyrði frá náttúrunnar hendi til þess að stunda sjávarbúskap, að ekk- ert er þvi til fyrirstöðu að við gætum á nokkrum áratugum orðið ein ríkasta þjóð veraldar, ef einungis fyndust eftir í land- inu svo sem 10—20 einstakl- ingar, sem þyrðu að hugsa í stærri einingum en kerfið skammtar nú á tímum. í erlendum blöðum má lesa að lax og silungur sé nú næst- um horfinn úr ám víðast hvar í Evrópu vegna mengunar, og veiði í ám og vötnum í Noregi og Svíþjóð fari minnkandi með hverju ári. Á Íslandi eru enn algjörlega ómenguð svæði þar sem jarðvarmi og sjávarföll skapa ákjósanlegustu skilyrði til fiskiræktar og sjávarbúskap- ar í stórum stíl. 9 Hlutverk íslands í fæðuöflun veraldar FAO og UNESCO hafa gefið út rit þar sem gerð er grein fyrir þýðingu sjávarbúskapar í framtíðarfæðuöflun veraldar. Því er spáð að fólksfjöldi á jörðinni muni aukast svo ört að hann hafi tvöfaldast árið 2000. Núverandi magn fiskjar sem unnið er í heiminum er árlega um 75 milljón tonn. Sér- fræðingar FAO áætla að strax árið 1985 verði þörf heimsins fyrir fiskmeti orðin 100 milljón tonn, og þar sem sýnt þykir að það magn verði ekki veitt á út- höfum vegna þverrandi fisk- stofna og verndaraðgerða, sé sjávarbúskapur ein af fáum leiðum sem mannkynið á völ á til að komast hjá alvarlegri hungursneyð í stórum hlutum heimsins. Á næstkomandi áratugum mun fæðubúskapur taka stökk- breytingum í veröldinni og fæðutegundir svo sem vatna- fiskur mun hækka gífurlega í verði á heimsmarkaði. Nú þeg- ar eru ræktuð um 5 milljón tonn af fiski árlega aðallega í Asíu, og þar af eru um 3,7 milljón tonn ferskvatnsfiskur. Má benda á að verðmæti þess fisks sem ræktaður er t.d. á Filipseyjum var 500 þúsund dollarar árið 1950 en er nú 21 milljón dollarar á ári og fá filipseyingar um 400 kg af fiski af hverjum hektara á ári. # IJtilokum mengunariðju Við eigum að stefna að því af miskunnarlausri hörku, að útiloka alla mengunariðju frá Islandi og beita okkur af al- efli fyrir því að fyrirbyggja hugsanlega mengun, sem hlot- ist gæti af meðferð efna og sorps í landinu. Takist okkur að halda þessu landi hreinu þá þurfum við ekki að kvíða framtíðinni, þótt efnahagur þjóðarinnar sé í rúst þessa stundina. Fyrst af öllu þurfum við að hreinsa til í stjórnarkerfi landsins, losa okkur við alþingismenn, sem hvorki hafa ábyrgðartilfinn- ingu eða nægilega greind til þess að fara með umboð kjós- enda, sem sagt u. þ. b. 30 nýja þingmenn. Síðan ætti að stefna mark- visst að því að byggja upp stórfellda fiskirækt, og þar er óhætt að mæla fjárfestingu í milljörðum, því arðsemin er meiri en af nokkrum þeim iðnaði sem nú nefnist iðnaðar- tækifæri og er úthlutað sem hreppsómögum af ríkinu, Með sjávarbúskap verður fjárhags- leg afkoma tryggð og sá iðnað- ur gæti orðið undirstaða efna- hags og framfara á fslandi —- íslensk stóriðja, sú eina sem ekki mengar umhverfi sitt. Þetta er sú „orkumynd“ sem reynast mun ódýrust þegar fram líða stundir. FV 5 1976 25
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.