Frjáls verslun - 01.05.1976, Side 43
Lax- og silungsveiði:
Veiðitíminn að hefjast
- 73.500 laxar veiddust á sl. ári
sambandi. Þjóðgarður yrði þó
aðeins opnaður í landi í ríkis-
eign og við núverandi aðstæður
væri ekki um landakaup að
ræða vegna nýrra þjóðgarða.
Af öðrum verkefnum ráðsins
má svo nefna eftirlit með sex
friðlýstum svæðum í óbyggð-
um. Um það er höfð samvinna
við samgönguráðuneytið og
ferðafélögin. Markmiðið er að
búa svo um hnútana að vin-
sældir ferðamannastaða í ó-
byggðum þýði ekki endalok
þeirra. Gæzlumenn eru þar til
eftirlits og komið hefur verið
upp hreinlætisaðstöðu. Það er
ekki ætlunin að loka þessum
svæðum fyrir umferð en þó er
nú svo komið á nokkrum stöð-
um eins og í Landmannalaug-
um og Herðubreiðarlindum að
þeir þola tæpast meiri átroðn-
ing en orðið er. Sagði Árni að
erfitt væri að leggja hömlur á
ferðir íslendinga í ein'kabílum
sínum en hins vegar hefðu
komið upp hugmyndir um að
takmarka eitthvað sölu á ferð-
um fyrir útlendinga á þessar
slóðir. Annars taldi Árni, að
breyta mætti ferðatilhögun
fyrir þessa útlendu gesti þann-
ig að í stað þess að þeysast milli
fagurra staða í óbyggðum yrði
meiri áherzla lögð á hægari yf-
irferð og þá nær byggð.
# Gönguferðir
Það eru hjólför og sá varn-
ingur, sem ferðalangar hafa
með sér í bílum, sem reynzt
hafa helzti spillingarvaldur í ó-
byggðum. Því hefðu náttúru-
verndarmenn og forystumenn
ferðamála athugað möguleika á
að skapa aukin tækifæri til
gönguferða á hálendinu, því
gangandi fólk veldur ekki
þeirri röskun, sem hinir akandi
gera. í þessu sambandi þyrfti
að setja vörður eða stikur við
ákveðnar gönguleiðir, gera ör-
ugg kort og leiðbeiningar um
þær og byggja litla skála, sem
leita mætti skjóls í ef veður
gerðust válynd. Minntist Árni
sérstaklega á leiðina frá Þórs-
mörk í Landmannalaugar, sem
þannig gæti orðið skemmtileg
gönguleið og líkleg til að auka
áhuga almennings á göngu-
ferðum sem íþrótt.
Lax- og silungsveiði getur
verið ákaflega skemmtileg í-
þrótt, að ekki sé talað um cf
maður fær einn stóran. Þessi
íþrótt og þó sérstaklega lax-
veiðin hefur aukist mikið und-
anfarin ár, og færist það nú í
vöxt að fjölskyldan fari saman,
tjaldi við fallegt stöðuvatn eða
á, njóti umhverfisins og reyni
að veiða upp úr ánni eða vatn-
inu fallegan fisk í matinn.
Hákon Jóhannsson er formað-
ur Landssambands stangveiði-
félaga og hjá honum fékk F.V.
upplýsingar um lax- og silungs-
veiði í sumar.
Silungsveiðitíminn hefst al-
mennt 1. apríl og endar í lok
september. Misjafnt verð er á
veiðileyfum, en meðalverð á
eina stöng á dag er um 1000 kr.
í góðu vatni. Sagði Hákon, að
best væri fyrir einhvern með-
lim fjölskyldunnar að vera í
stangveiðifélagi, en með því
móti er hægt að kaupa veiði-
kort á 500 kr. og gegn fram-
vísun þeirra er svo hægt að
kaupa lausa veiðidaga hjá
stangveiðifélögum innan land-
sambandsins.
Heimilt er að veiða lax í 90
daga eða 3 mánuði á ári í hverri
á. Laxveiðitíminn stendur yfir
frá 20. maí til 20. september,
eða í fjóra mánuði, þannig að
vaikostir eru fyrir hendi hve-
nær þessi þriggja mánaða veiði-
tími hefst. Almennast er að
byrja laxveiðitímann fyrst í
júní og enda í byrjun septem-
ber.
Laxveiðileyfi eru ákaflega
mismunandi eftir veiðitíma og
ám, en almennt kostar veiði-
leyfi á sæmilega góðum tíma í
góðri á um 11—14 þúsund krón-
ur á dag. Heimilt er að veiða
Ætl‘ann ké að fá ‘ann?
12 tíma á dag venjulega með
hvíldum um miðjan dag.
Bestu veiðiárnar á landinu sl.
ár miðað við stangafjölda sam-
kvæmt upplýsingum Veiðimála-
stofnunarinnar eru Elliðaárnar
með 2071 lax, en aðrar ár sem
eru miklar laxveiðiár eru:
Norðurá, Grímsá, Laxá í Kjós
og Laxá i Aðaldal.
Laxveiði hefur aukist gífur-
lega siðustu 20 árin og til gam-
ans má geta þess, að árið 1950
veiddust 17 þúsund laxar hér á
landi en á síðasta ári voru þeir
73.500 samkvæmt upplýsingum
Veiðimálastofnunarinnar. Þessi
veiðiaukning er fyrst og fremst
fiskræktun: að þakka og sagði
Hákon, að stangveiðifélög og
stangveiðimenn hefðu haft þar
forgöngu, þó hann vildi á engan
hátt gera lítið úr störfum ann-
arra. Nú er Stangveiðifélag
Reykjavíkur með miklar fram-
kvæmdir á Tungufljótssvæðinu
og er nú verið að rækta þar upp
fyrir lax. Einnig hafa fiskirækt-
arframkvæmdir verið miklar á
Lagarfljótssvæðinu á vegum
Stangveiðifélags Reykjavíkur.
FV 5 1976
41