Frjáls verslun - 01.05.1976, Síða 65
verðbólgan sem fylgdi því og
þá varð smám saman lítið úr
þessum lánum sem hvíldu á
húsinu. Ég byggði svo við hús-
ið til þess að verslunarrekstur-
inn kæmist betur fyrir. Fyrst
var ég eingöngu með matvörur
en síðar bætti ég við fatnaði og
ýmsum fleiri vörum. Eihnig sel
ég mikið í umböðssölu.
ÁHUGAMAÐUR UM FERÐA-
MÁL
Gestur Fanndal er ekki ein-
göngu þekktur sem kaupmaður,
heldur er hann kunnur fyrir á-
huga sinn á ferðamálum og þá
aðallega flugmálum. — Ég hef
reynt að berjast fyrir því að
flugsamgöngum væri haldið
uppi við Siglufjörð, því það er
mikils virði fyrir alla þjónustu-
starfsemi á staðnum. Farþega-
fjöldinn á síðasta ári sýnir líka
að fólkið hér kann að meta flug-
ið. Vængir, sem fljúga hingað
núna fluttu 4500 farþega fram
og til baka frá Siglufirði en
Siglfirðingar eru bara um 2000.
Þetta jafngildir því að allir
Siglfirðingar hafi flogið til
Reykjavíkur og heim aftur á
síðasta ári og tekið með sér 2500
gesti, sem hafa snúið aftur
heim. Ég hef haft umboð fyrir
Loftleiðir frá 1962 og hef einnig
afgreiðslu fyrir Vængi.
„ÚTSÖLUR ERU VITLEYSA“
Gestur er maður sem hefur
ánægju og áhuga á sínu starfi
og fastmótaðar skoðanir á ýms-
um málum þar að lútandi. T.d.
fordæmir hann útsölur. — Ut-
sölur eru vitleysa sem ekki ætti
að eiga sér stað, sagði hann. —
Með útsölum er verið að eyði-
leggja markaðinn og koma í veg
fyrir að yfirlit fáist yfir þörf
almennings. Þannig er líka ver-
ið að selja á lágu verði þann
lager sem á að vera lifibrauð
kaupmannanna. Mikið af þessu
skapast af þrýstingi sölumanna.
Þeir reyna að selja án þess að
vita hvað markaðurinn þarfn-
ast mikils af vörunni. Það verð-
ur til þess að kaupmenn sitja
uppi með of mikið af vörum og
verða að setja þær á útsölu.
Okkur vantar meira af sölu-
mönnum sem þekkja markað-
inn og selja mátulega mikið af
vörum þannig að þetta komi
ekki fyrir.
Annað sem Gesti finnst vanta
hér eru kauphallartilkynningar
um verðlag erlendis. — Ef við
fengjum betra tækifæri til að
fylgjast með verðsveiflum er-
lendis vissum við betur hvern-
ig við stæðum, sagði Gestur. —
Sykurævintýrið var gott dæmi
um þetta. Margir kaupmenn
sátu uppi með miklar birgðir
af dýrmætum sykri þegar ó-
dýrari sykur fór að koma á
markaðinn. Þessir kaupmenn
þurftu að lækka verðið og töp-
uðu miklu fé. Ef þeir hefðu haft
betra tækifæri til að fylgjast
með heimsmarkaðinum er ekki
víst að þeir hefðu farið svona
illa út úr þessu.
FÁMENNIÐ GERIIt HÆRRI
ÁLAGNINGU NAUÐSYN-
LEGA
Að dómi Gests er álagningin
í dag fyrir neðan þurftarlág-
mark eins og hann kallar það.
— Það er illmögulegt fyrir
kaunmenn að halda sér gang-
andi með þessari álagningu,
sagði hann. — Því meira fá-
menni sem er á staðnum, þvi
meiri álagning þarf að vera.
Hérna er bara hægt að umsetja
lagerinn tvisvar til þrisvar á
ári og nýr lager kostar oftast
meira en við fengum fyrir þann
gamla. Ef ég kaupi t.d. 50 bíl-
dekk á hausti og sel þau ekki
fyrr en að vori þá er álagningin
farin. Mér finnst að álagnine
ætti að ráðast meira af því
hversu sárt fólk vantar vöruna.
Eitt af því sem Gestur kvart-
aði undan var símakostnaður,
— Ég verð náttúruleea að halda
sambandi við Reykjavík vegna
innkaupa og annars, sagði hann,
en mér finnst mikið að þurfa
að borga 60—70 þúsund krónur
ársfjórðungslega fyrir símann.
Ég vona að komið verði á ein-
hvers konar jöfnunargjaldi til
að iafna þessu réttlátlegar nið-
ur á símnotendur.
En eins og áður sagði er Gest-
ur ánæeður með sitt starf. —
Ég tel það aðalatriði að gera sig
ánæeðan með það sem maður
starfar við og vorkenni þeim
sem eru óánægðir í starfi, sagði
Gestur Fanndal að lokum.
Síldarverksmiðjur:
Bræddu
aðeins
*
■
12 sólar-
hringa
— Við bræddum 12500 tonn
af loðnu á síðustu vertíð, fyrsta
löndun var 31. jan. og sú síð-
asta 'um miðjan mars. Loðnan
kom í tveimur hrotum til okk-
ar. Fyrst þegar hún var fyrir
Austurlandi og síðan þegar hún
var við Faxaflóa og Breiðafjörð.
Magnið var svo til jafnt í báð-
um hrotunum.
Þetta sagði verksmiðjustjóri
S.R. á Siglufirði, Markús Krist-
insson, þegar Frjáls verslun
hafði tal af honum á dögunum.
En að sögn Markúsar er það lít-
ið verkefni fyrir verksmiðjuna
á Siglufirði að bræða 12500
tonn. — Þetta magn hefði ekki
fyllt hjá okkur þróarrýmið,
sagði Markús. Verksmiðjan af-
kastar um 1000 lestum á sólar-
hring eins og við höfum rekið
hana, en það er hægt að láta
hana afkasta 1500 lestum. Svo
þetta var ekki nema 12 sólar-
hringa verk. Það sem eftir er
ársins fram á næstu loðnuver-
tíð stendur þessi stóra verk-
smiðja verkefnalaus. Hins veg-
ar erum við alltaf að vona að
eitthvað verði úr loðnuveiðum
fyrir Norðurlandi eins og um
hefur verið talað. Það voru
tveir bátar við leit þarna í
fyrra, en ís hamlaði veiðum. Ef
loðna færi að veiðast þama í
júlí og ágúst, þá er Siglufjörð-
ur vel í sveit settur til að taka
á móti þeim afla, sagði Markús.
ÁNÆGÐUR MEÐ
NÝTINGUNA
Þótt Markúsi þætti loðnu-
magnið ekki mikið sem unnið
var úr í verksmiðjunni á síð-
FV 5 1976
59