Frjáls verslun - 01.05.1976, Qupperneq 91
------------ AUGLÝSING-----
H—HKMIHM
KÖLIM - borg kaupstefnanna í V. - Þýzkalandi
Síðasta ár var ár kaupstefn-
anna í borginni Köln í Vestur-
Þýskalandi, en þar voru haldn-
ar 20 ka'upstefnur og sýningar
og framleiðsluvörur 13.500 fyr-
irtækja frá 84 löndum kynntar.
Kaupstefnurnar löðuðu að sér
hvorki meira né minna en 730
þúsund kaupendur og gesti víðs
vegar að úr heiminum.
Skýrslur sýningarnefndar
sýna að erlend þátttaka var yf-
ir 30%. Flestir erlendu þátttak-
endurnir voru frá Frakklandi,
Ítalíu og Bretlandi.
70 MILLJÓN MARKA VELTA
Kaupstefnusamtökin í Köln
hafa á síðastliðnum þremur ár-
um aukið ársveltuna um 37%.
Árið 1972 nam heildarársvelta
47.4 milljónum v-þýskra marka
og á þessu ári er gert ráði fyrir
70 millión marka veltu. Velta
síðasta árs nam 65 milljónum
marka.
Með tilliti til þessa hefur ver-
ið reist tveggja hæða sýningar-
höll og gert er ráð fyrir annarri
sjö hæða bvggingu. Þegar sýn-
ingarrými þessi verða tekin í
notkun geta kaupstefnusamtök-
in. í Köln boðið upp á 33 kaup-
stefnur á ári.
Sennilega er vinsælasta kaup-
stefnan í Köln ,,Photokina“
ljósmyndavörusýningin, en ‘hún
er nú haldin í 14. sinn. Þessi al-
þjóðlega sýning er haldin í sam-
ráði við þýsku iðnliósmynda-
samtökin og þegar hafa yfir 600
fyrirtæki frá 27 löndum til-
kynnt þátttöku í sýningunni,
sem haldin verður í september
n.k.
1.4 MILLJÓNIR NÆTUR-
GESTA
íbúar borgarinnar eru nú um
ein milljón. Iðnaður hefur
blómgast eftir að síðari heims-
stvrjöldinni lauk og Köln er nú
miðstöð Ford fyrirtækisins í
Evrópu.
Flugvöllurinn í Wahn liggur
í 11 km fjarlægð frá borginni,
og þjónar hann einnig höfuð-
borg Vestur-Þýskalands, Bonn
og milli borganna liggja hrað-
brautir.
Á síðasta ári var tala nætur-
gesta 1.4 milljónir og hafði tal-
an aukist frá árinu áður. Er-
lendir næturgestir í borginni
voru um 440 þúsund og var
aukningin 4.5% frá síðasta ári.
ÁHUGAVERÐAR SÝNINGAR
FYRIR ÍSLENDINGA
Auk „Photokina“ sýning-
arinnar í september n.k. er
áhugavert að nefna alþjóðlega
sýningu á skrifstofuvörum, sem
haldin verður í október og al-
þjóðlega IMB sýningu í nóv-
ember n.k. Ættu báðar þessar
sýningar að vera hvatning
mörgum íslenskum aðilum til
þess að kynnast aukinni hag-
ræðingu á þessum sviðum.
Ferðamiðstöðin hf. Aðal-
stræti 9, hefur einkaumboð
fyrir vörusýningar í Köln,
skipuleggur ferðir á þær og
útvegar hótel. Ferðamiðstöð-
in hf. getur sem umboðsaðili
fyrir allar vörusýningar í Köln
veitt þátttakendum ýmis konar
þjónustu, svo sem útvegað sýn-
ingarskrár, aðgöngumiða og
annað sem til greina kæmi.
ATHYGLISVERÐAR
FORNMINJAR FRÁ TÍMUM
RÓMVERJA
Köln er ekki einungis ný-
tískuleg kaupstefnumiðstöð
heldur hefur hún frá fornu fari
verið falleg borg og enn í dag
býr hún yfir mörgum fornurn
minjum, sem vert er að taka
myndir af. Dómkirkjan í Köln
hefur þó ætíð verið langvinsæl-
asta myndaefnið meðal ferða-
manna, enda er hún ein tignar-
legasta kirkja í heimi.
Undir gistihúsinu „Wirtshaus
im Spessart er ferðamönnum
gefin kostur á að sjá 100 m
skolpræsilagnir, sem lagðar
voru á tímum Rómverja og
einnig er vert að minnast á
Wallraf Richartz safnið í vest-
urhluta borgarinnar, sem geym-
ir fræg listaverk Kölnar skóla
frá 14. og 16. öld. Þeir sem á-
huga hafa á að skyggnast nán-
ar í sögu borgarinnar geta
fræðst um híbýli og lifnaðar-
hætti manna á liðnum öldum í
hinu nýbyggða rómversk-þýska
safni, sem er við hiiðina á dóm-
kirkjunni í Köln.
„KÖLNARVATN 4711“
Köln er ævaforn borg og get-
ur rakið aldur sinn langt aftur
í aldir m.a. til ársins 16 e.K. en
þá fæddist í Köln Agrippina
eiginkona Claudiusar keisara
Rómverja. Ennþá frægari er
borgin þó fyrir töluna „4711“,
en tala þessi var krituð á hús
eitt í Köln árinð 1810, þegar
hermönnum Napoleons var
skipað að merkja hús borgar-
innar.
í húsi þessu bió maður að
nafni Giovanni Maria Farina,
ítali, sem hafði það að atvinnu
að búa til Kölnarvatn, ilmvatn.
Gerði hann borgina fræga á
„Kölnarvatni 4711“.
FV 5 1976
83