Frjáls verslun - 01.05.1976, Blaðsíða 95
ökutæki, en þaS fyrsta sem
þyrfti að gera væri að prútta
um verðið og kæmi það upp í
vana.
í þriðja lagi fór hann í ó-
gleymanlega skoðunarferð út til
Pattayeyjanna, en þar var hægt
að njóta sólarinnar á sandströnd
af fólk óskaði þess. Fór Sverrir
í bátsferð og skoðaði í gegnum
--------AUGLÝSING------------
plexigler kóralrifin, margs kon-
ar krabbadýr og ótal tegundir
fiska.
Þrátt fyrir það, að ferðin til
Bangkok væri talin meðal dýr-
ustu ferðalaga kvaðst hann per-
sónulega vilja fara slíka ferð
einu sinni enn og mundi jafn-
vel ráðgera hana yfir jólin.
Ferðalög væru orðin kostnað-
arsöm á íslandi og ekki væri
hægt að bera saman gleðina og
notagildið af jólahaldi á Islandi
við ógleymanlega og ævintýra-
lega ferð til Austurlanda.
Ferðaskrifstofan Útsýn mun
að sjálfsögðu gefa ítarlegar upp-
lýsingar um Austurlandaferðir
og eru næstu ferðir áætlaðar í
desember n.k. og í febrúar 1977.
S.Í.S.:
Allt í útileguna
Samband íslenskra samvinnu-
félaga selur mikið úrval alls
konar viðleguútbúnaðar, inn-
lendum og erlendum og hefur
á boðstólum flest allt, sem
nauðsynlegt er að hafa með sér
í útileguna, s.s. tjöld, tjald-
himna, svefnpoka, vindsængur,
töskur undir mataráhöld, grill,
borð og stóla og margt fleira.
Tjöldin eru innflutt að mestu
leyti frá Svíþjóð. Tvenns konar
tjöld eru á boðstólum, venjuleg
ferðamannatjöld frá 2ja—6
manna og jöklatjöld, en þau eru
yfirleitt tveggja manna.
Tjöldin eru ávallt til yfir
sumarmánuðina í öllum kaup-
félögunum og hefur reynslan af
þeim verið mjög góð og salan
einnig. Hægt er að fá tjald-
himna með tjöldunum, en þeir
aftra rigningarvatni frá því að
komast inn í tjaldið og eru því
sérlega hentugir í íslenskri
veðráttu.
Svefnpokarnir eru innlend
framleiðsla frá Gefjun og fást
þeir í mismunandi verð- og
gæðaflokkum. Þá selur Sam-
bandið fjölmargt annað í úti-
leguna s.s. snaga fyrir föt, sem
festir eru innan á tjaldsúlurn-
ar, öskubakka, sem eru hann-
aðir með tilliti til notkunar í
tjöldum, töskur fyrir bolla,
diska og hnífapör, grill, prím-
usa, stóla og borð jafnt til notk-
unar úti sem inni og fjölmarga
smáhluti sem nauðsynlegt er að
hafa með sér í útileguna.
Allar nánari upplýsingar um
viðleguútbúnað veita kaupfé-
lögin um land allt.
3litrlutðsþitl 1 um- F'rjálsrar mr&luntir
\\ aðferð sem skilar árangri
FV 5 1976
87