Frjáls verslun - 01.05.1976, Page 96
AUGLÝSING
VERZLUNIM SPORT:
í versluninni Sport, Lauga-
vegi 13, Reykjavík er til fjöl-
breytt úrval af íþróttavörum
og viðleguútbúnaði. Tjöldin
sem seld eru í versluninni eru
frá Belgjagerðinni, Skjólfata-
gerðinni, Tjaldborg og Magna.
Hafa þessi tjöld reynst vel og
eru nú á hagstæðara verði en
innflutt tjöld. Stærðirnar eru
frá 2ja manna og uppí 5 manna,
en einnig eru til létt tjöld, svo-
kölluð fjallatjöld, sem auðvelt
er að bera á bakinu langar
vegalengdir.
Prímusar og grill margs kon-
ar eru einnig til í úrvali og sala
á grillum hefur aukist sl. ár, en
þó er óhjákvæmilegt að hafa
prímusinn með í ferðina, því
ekki er hægt að steikja allan
mat úti, og ekki nægileg veður-
sæld hér á landi til þess að
grilltækin geti notið sín sem
skyldi.
Fáanleg eru borð og stólar,
sem hægt er að leggja saman
ef svo ber undir. Þeir eru ætl-
aðir til notkunar jafnt úti sem
inni, heima á svölunum eða í
garðinum og úti í guðsgrænni
náttúrunni.
Fjölbreytt úrval af
íþróttavörum og
viðleguútbúnaði
Þeir sem leggja peninga í
fyrsta sinn í útilegu geta kom-
ist af með lítið ef óskirnar eru
litlar og aðeins það allra nauð-
synlegasta keypt. 5 manna tjald
kostar t.d. um kr. 23.000, 2ja
hólfa prímustæki eru til frá kr.
6.680, svefnpokar kosta frá kr.
4.500 og er þá um algengustu
tegund að ræða, en dýrari og
vandaðri svefnpokar eru jafnan
til á lagar.
Verð á vindsængum er um
kr. 3.080, pottasett af ódýrustu
gerð kostar kr. 5.000 og kæli-
taska frá kr. 1.600. Skemmti-
legar „Picknik“töskur með
hnífapörum, diskum, bollum og
brauðboxi kosta frá 4.900 kr. en
einnig eru til vandaðri gerðir
og er innihald þeirra fullkomn-
ara.
Stofnkostnaður til útilegu
fyrir f jögurra manna f jölskyldu
er þannig um kr. 66.000 og er
þá miðað við ódýrustu gerðirn-
ar hverju sinni. Inni í þessu
verði er tjald, prímus, pottasett
og fjórir svefnpokar.
Sport býður uppá úrval
tækja fyrir silungs- og laxveiði-
menn. Kaststengur fyrir börn
kosta rúmlega 800 kr. og með
ódýru lokuðu hjóli, nokkrum
önglum og spúnum og flotholt-
um kosta þær um kr. 3000.
Hringstengur af ódýrri gerð
handa fullorðnum, ásamt hjóli
og því allra nauðsynlegasta er
hægt að fá fyrir tæpar 6.000 kr.
og góðan veiðibúnað má fá fyr-
ir kr. 17.000. Menn gera mis-
munandi kröfur, en góðan veiði-
útbúnað með fluguveiðitækjum
má fá frá 14.000 kr.
Allur útbúnaður fyrir hesta-
menn er einnig til í Sport. Kosta
reiðtygi frá kr. 30.000 og hlífð-
arföt frá kr. 13.000—16.000. í
því verði eru innifalin reiðstíg-
vél, reiðbuxur og hjálmur.
88
FV 5 1976