Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1977, Page 29

Frjáls verslun - 01.02.1977, Page 29
Fyrningar og skattalög eftir Arna Arnason, rekstrarhagfræðing Umræður um fyrningar fjár- muna í atvinnurekstri hafa or'ðið nokkuð háværar hin síð- ustu ár. í þeim umræðum hef- ur orðið ljóst, að fyrningar eru bæði umdeildur og jafnframt misskilinn rekstrarkostnaður. Sumir véfengja réttmæta til- vist þeirra, aðrir misskilja eðli þeirra og tilgang, en versti ó- vinurinn er sennilega óðaverð- bólgan, sem gerir að engu, þeg- ar fram í sækir, fyrningar, sem miðast við upphaflegt kaupverð eigna. HVAÐ ERU FYRNINGAR? iFyrningar fyrirtækja eiga að vera gjaldfærsla fyrir úreld- ingu og slit þeirra fjárfesting- arfjármuna sem notaðir eru í atvinnurekstri á hliðstæðan hátt og fy.rirtæki þyrftu að greiða öðrum leigu fyrir afnot slíkra fjármuna, ef þau ættu þá ekki sjálf. Flestum er að sjúlf- sögðu ljóst, að eignir ganga úr sér við notkun, en tæknilega úreldingin er sízt léttvægari vegna hinnar öru tækniþróun- ar. Þessir tveir þættir, slit og úr- elding, ákvarða æskilegan notk- unartíma eigna í atvinnu- rekstri. Mat fyrninga ræðst þá af því, að draga frá kaup- eða kostnaðarverði eignarinnar nið- u.rlagsverð hennar, en dreifa mismuninum yfir æskilegan notkunartíma eignarinnar, með hliðsjón af sennilegri hegðan þess verðmætataps eða þeirrar verðmætanotkunar sem á sér stað. Sennilega er algengast að mesta verðmætatapið verði fvrstu árin sem kallar á flýti- fyrningu einhvers konar, en jöfn árleg fyrning er þó ein- földust og algengust. ÖNNUR VIÐHORF Ekki leggja þó allir þennan skilning í skilning í eðli og til- gang fyrninga. Þrenns konar misskilningur er algengastur: O Að fyrningar séu til þess að endurheimta kaupverð eigna með því að draga það í á- föngum frá hagnaði hvers árs. í góðærum eigi því að fyrna mikið, í hallærum lít- ið. Þetta er misskilningur. Fyrningar eru árlegur kostn- aður burtséð frá afkomu og geta myndað raunverulegt tap í atvinnurekstri á sama hátt og laun og hver annar rekstrarkostnaður sem er umfram tekjur. 9 Að fyrningar séu til þess að endurnýja eignir í atvinnu- rekstri. Svo er ekki. f áfram- haldandi rekstri eru gjald- færðar fyrningar að vísu oft- ast nýttar til endurnýjunar eigna en fyrningum er ekki ætlað að tryggja það að svo megi verða. ® Að fyrningar séu til þess að standa undir vöxtum og af- borgunum, sem tekin voru við kaup á viðkomandi eign. Þetta eru tvö aðskilin mál, enda á að meta fyrningar eins hvort sem eign er fjár- mögnuð með lánum, eigin fé eða fengin sem gjöf. Þess- ir þættir hafa engin áhrif á slit og úreldingu, enda getur lánstími ýmist verið lengri eða skemmri en endingar- tími eigna og lántökukostn- aður og afborganir samsvara ekki endilega æskilegri til- högun á gjaldfærslu fyrn- inga. ÞJÓÐHAGSLEG ÁHRIF Ef verðlag er stöðugt, er mat á nauðsynlegum fyrningum til- tölulega auðleyst tæknilegt við- fangsefni. Óðaverðbólgan rugl- ar hins vegar myndina, þar sem gjaldfærðar fyrninga.r verða á verðlagi kaupárs eignarinnar en ekki á verðlagi þess árs sem þær eru gjaldfærðar á. Þegar verðlag fer hækkandi ve.rða fyrningar því vanmetnar, þar sem bæði bókhaldsreglur og skattalög eru sniðin að mestu fyrir stöðugt verðlag. Afleiðing þessa verður vanmetnar fyrn- ingar og ofmetinn hagnaður. Því meiri sem verðbólgan er því stærri verður skekkjan. Fjármálaráðherra Bandaríkj- anna lét kanna það fyrir árið 1974, hver áhrif það hefði á 66 milljarða dollara ‘hagnað banda- rískra fyrirtækja eftir sikatt ef fyrningar og vörunotkun væri rétt metin. Niðurstaðan varð sú að ,rétt mat á hagnaði eftir skatt væri 21 milljarður doll- ara eða tæpur Vá af hefðbundnu mati. Á árinu 1974 var óðaverð- bólga í Bandaríkjunum að beirra mati, neyzluvöruverð hækkaði um 11% að meðaltali. Ef þetta er reynsla Bandaríkja- manna af 11% verðbólgu eins árs má nærri geta hvaða útreið íslenzk fyrirtæki hafa fengið í árlegri 16% verðbólgu að með- altali síðan 1950 samkvæmt vísitölu byggingarkostnaðar. Þetta vanmat fyrninga hefur margvisleg þjóðhagsleg áhrif, einkum ferns konar: 1. Afkoma atvinnuveganna, metin samkvæmt hefðbundn- FV 2 1977 31

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.