Frjáls verslun - 01.02.1977, Blaðsíða 79
Litið við hjá fyrirtækjum
á Ártúnshöfða
B. M. Vallá
B. M. Vallá var með fyrstu
fyrirtækjunum, sem hófu starf-
semi sína í iðnaðarhverfinu á
Ártúnshöfða, nánar tiltekið að
Bíldshöfða 3. Notaðir eru 15
steypubílar, 4 bifreiðar til efnis-
keyrslu og einn bílkrani.
Starfssvið B. M. Vallá er
framleiðsla á steypu, efnis-
keyrsla, auk þess sem rekið er
bílaverkstæði fyrir steypubíl-
ana. Á lóðinni Bíldsböfða 3 er
steypustöðvarbygging og hús
þar sem er kaffistofa, verk-
stæði og hrcinlætisaðstaða, auk
þess sem á lóðinni eru sand-
og malargeymslur.
B. M. Vallá framleiðir steypu
í mót í nýbyggingar á Stór-
Reykjavíkursvæðin,u. 35 manns
vinna við fyrirtækið á Ártúns-
höfð'a.
Blikk og stál
Blikk og stál hf., Bíldshöfða
12, framleiðir lofthita- og loft-
ræstikerfi og tæki og háspennu-
og lágspennurofaskápa fyrir
spennistöðvar og virkjanir. Þar
eru einnig framleiddar eldvarn-
arhurðir stórar og smáar auk
allrar almennrar blikksmíða-
vinnu til nýbygginga og annars
konar nota.
Umhverfi Blikk og stál hf.
er mjög snyrtilegt og m. a. fékk
fyrirtækið viðurkenningu frá
Félagi blikksmiða fyrir góðan
aðbúnað og vinnuaðstöðu fyrir
starfsfólk.
Stuðlað hefur verið að auk-
inni hagræðingu og rekstrar-
öryggi fyrirtækisins og m. a.
hefur bókhald verið endur-
skipulagt og er nú unnið í tölv-
um svo og launaútreikningar.
Hjá Blikk og stál hf. vinna
um 30 manns.
Kraftur, Val og
Vörðufell
Að Vagnliöfða 3 starfa 3 fyr-
irtæki með aðskilinn rekstur,
en sameiginlega skrifstofu í 700
m- húsnæði.
Kraftur hf. flytur inn vöru-
bifreiðar frá MAN og krana
og sturtur frá Meiller, auk þess
sem fyrirtækið sér um þjónustu
fyrir þessar bifreiðar með því
að reka verkstæði og varaliluta-
lager.
Val hf. selur hins vegar not-
aðar vörubifreiðar og þunga-
vinnuvélar og Vörðufell hf. er
verktakafyrirtæki, sem starfar
bæði í Reykjavík og utan og
er t. d. verktaki við einn hluta
nýju byggðalínunnar. Einnig
annast fyrirtækið alls konar
þungaflutninga.
Hjá fyrirtækjunum þremur
starfa 40-50 manns.
• • •
• • •
• • •
FV 2 1977
81