Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1977, Qupperneq 57

Frjáls verslun - 01.02.1977, Qupperneq 57
Minkabú Loðfelds: Spáð 50 millj. króna útflutningsverðmæti á næsta ári ATVINNUUPPBYGGING — Samt er það knýjandi spurning á hvern hátt megi tryggja áframhaldandi upp- byggingu á Sauðárkróki at- vinnulega séð. Hér eru 3 tog- arar, 2 frystihús, og öflug kaupfélagsstarfsemi auk margra minni iðnfyrirtækja og þjónustufyrirtækja. Samt tel ég ljóst að meira verði að koma til ef bærinn á að halda áfram að vaxa og dafna og nægileg atvinna á að vera til að taka við fólksfjölgun. Hingað á Sauðárkrók vantar ekki stór- iðju sem ýmsa dreymir þó um. S-líkt hentar ekki stað á stærð við Sauðárkrók, að mínu viti. Það sem okkur vantar og ber að stefna að er að koma hér á fót meðalstóru framleiðslufyr- irtæki sem gæti tekið 50—150 manns í vinnu og framleiddi eingöngu úr íslensku hráefni og orku. Slík fyrirtæki eru til en vegna draumóra um stór- iðju er þessu gefinn alltof lítill gaumur. VERKSMIÐJA TIL AÐ VINNA ÚR BLÁGRÝTI? Án efa mætti stofnsetja og reka hér verksmiðju sem til dæmis notaði einfaldlega blá- grýti til sinnar framleiðslu sem væri aðaluppistaðan í hráefnis- notkun fyrirtækisins. Þetta gerist rneð þeim hætti að verk- smiðjan blátt áfram bræðir grjót og vinnur síðan úr því. Sumar slíkar verksmiðjur nota einnig skeljasand til viðbótar við blágrýtið og fer það eftir því hvers konar verksmiðju er um að ræða. Framleiðsluvör- urnar gætu verið basaltull, sement, hellur, flísar, rör, trefj- ar í steinsteypu og fleira bæði fyrir markað innanlands og ut- an. Þessar verksmiðjur nota talsverða .raforku þetta frá 5— 25 MW og veita fjölda manns vinnu. Það er mikið hagsmunamál fyrir íbúana á Sauðárkróki þar sem öll skilyrði eru fyrir hendi til að stofnsetja og reka slíka verksmiðju, að þessu máli verði sinnt. Þegar blaðamaður FV var á ferð á Sauðárkróki fyrir skömmu var viðeigandi að eiga viðtal við forstöðumann minka- bús Loðfelds hf., Reyni Bardal, þar sem nýlega höfðu borist fréttir af miklum verðhækkun- um á minkaskinnum erlendis. Reynir Bardal stundaði nám í Noregi í tvö ár, fyrst við vinnu á minkabúi en síðan í loðdýra- skóla. Hann réðst til Loðfelds 1970 og sá um að kaupa dýrin áður en hann kom heim, 1000 læður og 200 karldýr. — Byrjunarerfiðleikar voru þó nokkuð miklir, sérstaklega hvað markaðinn snerti. Skinna- verð var mjög breytilegt fyrstu árin og var í lægð fyrir 3 ár- um. Þá þurftu dýrin að laga sig að breyttum aðstæðum. Sú þekking, sem við komum með frá Noregi samræmdist ekki ís- lenskum aðstæðum, og tók þó nokkurn tíma að finna út þá fóðursamsetningu, sem hentaði miðað við það hráefni, sem við höfum á boðstólum. STOFNINN LÍTILL — Það sem hefur háð búinu er hve stofninn er lítill og er nú unnið að stækkun hans. Reglugerðin um minkarækt er mjög ströng, sérstaklega hvað snertir byggingar, þannig að kostnaður er ærið mikill og uppbyggingin tekur meiri tíma en æskilegt hefði verið. Nú er búið að reisa skála, sem hýsir 2000 dýr og er verið að flytja dýrin í hann. Þessi fjölgun á stofninum er fengin af Suður- landi frá minkabúi, sem var lagt niður. Ástæðan fyrir því að þeir hættu er fyrst og fremst sú að möguleikarnir á hráefni í fóðurblöndu eru miklu verri en hér. í rauninni voru búin sameinuð. í framhaldi af þessu má það koma fram að hér á Sauðárkróki er möguleiki á að fæða 15 þúsund dýr með nýt- ingu fiskúrgangs úr þeim afla sem berst hér á land. Nú fyrst er kominn rekstrargrundvöllur fyrir búið eftir að það er kom- ið í þessa stærð. Eftir því sem búið verður stærra verður reksturinn hagkvæmari. Ef got- ið gengur eins vel í vor og við reiknum með, verður stækkað áfram út frá þessum stofni. Reynir Bardal í minkabúi Loðfelds á Sau'ðár- króki. FV 2 1977 59
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.