Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1977, Page 20

Frjáls verslun - 01.08.1977, Page 20
Sv.: — Ég hef varið mestu af þeim í nýja húsið. fyrir ut- an bæinn. Ég fer ekki á verð- bréfamarkaðinn. Ræktunarland er góð fjárfesting. Ég keypti land í Plains fyrir allmörgum árum af því að enginn annar vildi kaupa og hérna bjó ég. Sp.: — Hafa byggingaraðilar komið fram með hugmyndir um nýtingu þessa Iands? Sv.: — Það hefur ýmislegt borið á góma. Allt frá einsher- bergis íbúðum til kínverskra hóruhúsa. Sp.: — Af hverju fluttirðu heimilið 25 kílómetra út fyrir Plains? Sv.: — Áður en Jimmy hóf kosningabaráttuna fyrir þrem- ur árum keypti ég landið um- hverfis húsið hans. Ég ætlaði að byggja þar vegna þess að fjölskyldan var búin að sprengja gamla húsið utan af sér og það var 60 ára gamalt. En eftir að Jimmy var kosinn komu nokkrir Kanadamenn og keyptu landið við hliðina með það fyrir augum að setja þar upp tívolí, sem átti að heita „Jimmy’s Backyard". Það átti ekki að vera meira en 50 metra frá lóðinni fyrir nýja húsið. Ég ætlaði mér hins vegar ekki að búa svo nærri skemmti- garði þó að ég haldi aftur á móti að ekkert verði úr hon- um. Þegar þetta hús utan bæj- arins var falt, keypti ég það, aðallega til að vera nær skól- anum, sem krakkarnir ganga í. Sp.: — Hefurðu haft byssur í húsinu í öryggisskyni? Sv.: — Það hafa allir byssu í húsinu hér um slóðir. Ég er venjulega með sjö eða átta byssur tiltækar. Sp.: — Líka þér illa allar breytingarnar, sem orðið hafa í Plains? Sv.: — Ég skal viðurkenna, að ég stuðla frekar að túrista- plágu en hitt. Ég kann vel við ferðafólkið og fer daglega niður á benzínstöð til að tala við það. En það er erfitt að vera til taks allan sólarhringinn og þetta reynir á starfsfólkið hjá mér og alla aðra. Sp.: — Átt þú ekki sjálfur hagsmuna að gæta í ferða- mannaiðnaðinum? Sv.: — Ég hef heyrt sögur um að ég eigi ferðaskrifstofu en ég á ekki baun í henni. Ég leigi út pláss á benzínstöðinni fyrir mann, sem gerir út bíl í skoðunarferðir og ég fæ pró- sentu af þeim viðskiptum. Það er svona 800, 1000 eða kannski 1500 dollarar á mánuði. Eg veit þetta ekki nákvæmlega. Sp.: — Heldurðu að Plains komi að öllu leyti heil út úr því að vera ferðamannaparadís, ef bróðir þinn verður endur- kjörinn og gegnir forsetaemb- ættin,u í átta ár? Sv.: — Ég held okkur takist það. Það verður þó eitthvað að halda ferðamönnunum hér. Annars veit ég ekki hvað myndi gerast. Plains er ferðamanna- bær fremur en nokkuð annað nú orðið. Margir hafa lagt mik- ið að veði í ferðamannaþjón- ustu. Sp.: — Svo vikið sé að fjöl- skyldumálum ykkar. Ríkti mik- il samkeppni milH ykkar bræðranna, þegar þið voruð drengir? Sv.: — Ég var bara fjögurra ára, þegar Jimmy fór í háskóla. Allir spyrja, hvernig það hafi verið að alast upp með hon- um. Við ólumst ekki upp sam- an. Ég vissi að ég átti bróður, sem hét Jimmy og hann kom heim annað slagið. En ég þekkti hann raunverulega ekki fyrr en hann kom heim úr flotanum. Sp.: — Mamma ykkar segir að þú sért skarpari en forset- inn. Sv.: — Það er eitt af því fáa sem ég er sammála þeirri konu um. Sp.: — Hafa samskiptin við bróður 'þinn breytzt eftir að hann var kosinn forseti? Sv.: — Persónuleg tengsl hafa ekkert breytzt. Ég varði 10 eða 12 klukkutímum með honum, þegar hann kom hing- að til Plains snemma í ágúst og það er meiri tími en ég eyddi með honum alla kosningabar- áttuna. Ég hef líka verið tvisv- ar í Washington og hitt hann þar. Mér geðjast ekkert að því að dveljast í stórborgum eða einhverju eins og Hvíta húsinu. Ef boðið er í partí eða þess hátt- ar, þá kæri ég mig ekkert um að fara. Sp.: — Það hefur verið haft eftir þér, að þú hefðir verið mótfallinn ýmsum útnefning- ,um bróður þíns í mikilvæg embætti. Sv.: — Það er ekki satt. Ég hef aldrei látið skoðun mína í ljós. Eina yfirlýsing mín var sú, að sumar útnefningarnar væru mér ekki að skapi en aðr- ar væru það, eins og útnefning Bert Lance. Ég trúi alveg ein- dregið á að sigurvegarinn eigi að láta vini sína og stuðnings- menn hafa mikilvægustu emb- ættin. Hinu má fleygja fyrir einhverja aðra. Sp.: — Er það rétt, að þú ætlir að vinna að kjöri George Wallace, ef hann gefur kost á sér til öldungadeildarinnar? Sv.: — Ef Wallace ríkisstjóri þarf á hjálp minni að halda mun ég veita hana. Sp.: — Hvernig brást forset- inn við þeim tíðindum? Sv.: — Ég sagði honum frá þessu áður en ég bar málið upp við blaðafulltrúa Wallace. Ég sagði honum að þetta væri eina kosningabaráttan, sem ég ætl- aði að skipta mér af. Hann bara horfði á mig. Alls engin við- brögð. Sp.: — Hefur þú einhver á- form um að komast áfram í pólitík, svo sem að taka þátt í borgarstjórnarkosningum? Sp.: — Ég hef tvisvar gefið kost á mér sem borgarstjóri en nú er ég fluttur úr bænum og get þess vegna ekki farið aftur í framboð. Ég sækist ekki eftir frama í stjórnmálum. 20 FV 8 1977

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.