Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1977, Blaðsíða 37

Frjáls verslun - 01.08.1977, Blaðsíða 37
Afleiðing þess að ráða óhæfan mann innan fjölskyldunnar getur verið afdrifaríkari heldur en ef um utanaðkomandi væri að ræða. einnig má alltaf finna einhver göt í kerfinu. Þegar þeir aðilar, sem standa að skiptunum, eru samhentir og sammála um að komast sem ódýrast út úr þeim, er auðveld- ara að hliðra sköttunum til og jafnvel að minnka þá. Það verð- ur að sundurliða og meta þá valkosti, sem gætu verið hag- kvæmir og það getur borgað sig að leita til utanaðkomandi að- ila, sem sérþekkingu hafa á þessum málum. Enga staðlaða lausn er hægt að gefa við óskum manna í þessu efni, því forsendur manna og óskir eru mjög mismunandi, en leiðin að lausninni er að mestu sú sama: að kanna, sund- urliða og meta valkostina og taka ákvörðun á þeim grund- velli. • Völdin — Mörgum er það þó meira atriði að tryggja áframhaldandi vöxt og viðgang fyrirtækisins, en bara að koma skiptunum ó- dýrt í kring. Þeir þurfa að finna sér hæfan eftirmann og eins að tryggja honum völd í fyrirtæk- inu, eftir að þeir hætta störfum og ekki síður við fráfall þeirra. Til þess að tryggja þannig einum aðila ,eða fáum völdin, getur verið nauðsynlegt að fá til þess samþykki annarra erf- ingja. Er þá hentugast að frá því sé gengið skriflega í tíma. Eigandi fyrirtækisins, arfleif- andinn, getur í flestum tilfell- um komið því til leiðar í lif- anda lífi. Eins víst er, að lítið tillit yrði tekið til óska hans, kæmu þær fram í erfðaskrá, ef þær færu út yfir þau mörk, sem eiganda er heimilt að ráð- stafa með erfðaskrá. Auk þess getur missætti tafið mjög fyrir skiptunum og hreinlega kippt stoðunum undan rekstrinum. 0 Fjármögnunar- örðugleikar — Það eru einkum tvenns konar aðstæður, sem skapa fjár- mögnunarvandræði við kyn- slóðaskipti. Önnur er erfðafjár- skatturinn, því þó hann sé ekki nema 10% við I. erfð, geta það verið hreinlega allir veltufjár- munir fyrirtækisins, og staðan er mun verri ef um fjarlægari erfðir er að ræða. Hin aðstaðan er að þurfa hugsanlega að kaupa út meðerfingja. Einnig getur það komið til að greiða þurfi fyrri eiganda eftirlaun, ef skiptin fara í raun fram með- an hann er enn á lífi. Þetta er þó ekki stærri hluti af eignum fyrirtækisins en það, að möguleiki ætti að vera á því að fá þetta lánað. En raun- in er sú að erfitt er fyrir fjöl- skyldufyrirtæki að fá rekstrar- lán og algengt er, að fasteignir smáfyrirtækja séu veðsett upp í rjáfur. Sé reksturinn í mikl- um blóma er þetta leiðin út úr vandanum. Greiðsla erfðafjárskatts er ekki frádráttarbær til tekju- skatts. þannig að skatturinn er hærri í raun en skattstiginn segir til um (allt að 55% hærri). 9 Framkvæmdaratriöi — Mikilvægt er að kynslóða- skipti séu undirbúin tímanlega og að tekið sé tillit til þeirra í rekstri fyrirtækisins. Tvö meg- inatriðin eru fjármál fjölskyld- unnar og erfðamálin. Tryggja verður fjölskyldunni tekjur, í því tilfelli að eigand- inn yrði frá vinnu langtímum saman, með tryggingum. Tryggja þarf fjölskyldunni lif- eyri með lífeyrissjóðsréttindum eða eftirlaunum frá fyrirtæk- inu, eða með hvoru tveggja. Jafnvel væri ekki óeðlilegt að ríkisvaldið beitti sér fyrir stofn- un lífeyrissjóðs atvinnurekenda. Ef möguleikar væru á, ætti að leggja fyrir fé til þess að greiða erfðafjárskattinn seinna meir. Gera þarf sem nákvæmasta áætlun um kynslóðaskiptin og taka tillit til þeirra lögfræði- legu og fjárhagslegu atriða, sem áhrif kynnu að hafa. Einn- ig þarf að gera ráðstafanir til þess að tryggja völd stjórnenda fyrirtækisins, í því tilfelli að eigandi þess eða maki félli frá. Taka þarf tillit til skattlagning- ar og að sjá til þess að hægt verði að breyta lánum með per- sónulegum ábyrgðum. Fráfarandi stjórnandi ætti að skilja eftir sig sem nákvæmast- ar heimildir um reksturinn. Þar ætti hann að skrá tilgang sinn með rekstrinum, og hvert hann álítur hlutverk stjórnandans í fyrirtækinu. Þetta gæti komið í veg fyrir þrætur og erfiðleika hjá eftirmanninum. FV 8 1977 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.