Frjáls verslun - 01.08.1977, Blaðsíða 73
Þórsnes hf. er saltfiskverkun
sem starfar hér og gerir einnig
út tvo báta. Þeir heita Þórsnes
I og II og eru 70 og 150 tonn.
Hjá fyrirtækinu eru um 50
starfsmenn að skipverjum á
bátunum meðtöldum. Forstjóri
er Ingvar Ragnarsson en fram-
kvæmdastjóri Halldór Jónas-
son.
Rækjunes h.f. er fyrirtæki
sem gerir út tvo 50—60 tonna
báta og rekur skelfiskverkun.
Um 40—50 manns vinna hjá
fyrirtækinu og er skelin að
mestu handunnin þar. Aðaleig-
andi Rækjuness er Sigurjón
Helgason og er hann jafnframt
skipstjóri á öðrum bátnum.
Sigurður h.f. heitir útgerðar-
fyrirtæki hér sem gerir út tvo
stóra báta. Þá er mikil trillu-
útgerð frá Stykkishólmi og
margir sem stunda grásleppu-
veiðar á vorin.
IÐNFYRIRTÆKI
Eitt aðal iðnfyrirtækið í
Stykkishólmi er skipasmíða-
stöðin Skipavík h.f. Stöðin
vinnur mikið að viðgerðum fyr-
ir bátaflotann hérna og eins fyr-
ir báta víðs vegar að. Þar er
líka alltaf einhver nýsmiði í
gangi. Núna er stöðin nýbúin
að fá stálskrokk austan af Nes-
kaupstað og verður gengið frá
honum hér. Hreppurinn átti áð-
ur meirihluta skipasmíðastöðv-
arinnar, en á síðasta ári varð
samruni við Vélsmiðju Kristj-
áns Rögnvaldssonar, og eignuð-
ust eigendur hennar þá meiri
hluta fyrirtækisins. Hjá Skipa-
vík vinna um 40 manns.
Tvö trésmíðaverkstæði eru
rekin í Stykkishólmi. Annars
vegar Trésmiðja Stykkishólms
h.f. og hins vegar Trésmiðjan
Ösp h.f. Bæði fyrirtækin veita
alhliða trésmíðaþjónustu,
byggja hús fyrir fólk, bjóða í
verk og smíða innréttingar eft-
ir pöntunum. Viðskiptavinirnir
eru aðallega í Stykkishólmi, en
nokkuð er um verkefni víðar
um Snæfellsnes og í Dalasýslu.
Verkstæðin hafa unnið mikið
saman að stórum verkefnum
eins og hóteli og félagsheimili
sem nýlega voru tekin í notkun
Ellert Kristinsson.
í Stykkishólmi. Framkvæmda-
stjóri hjá Ösp er Skúli Ingvars-
son en Ellert Kristinsson er
framkvæmdastjóri Trésmiðju
Stykkishólms en starfsmenn
eru 20—25 hjá hvoru fyrir-
tæki.
VERSLUNAR-
FYRIRTÆKI
I verslunarrekstri eru stærstu
fyrirtækin Kaupfélag Stykkis-
hólms og Hólmkjör h.f. Kaup-
félagið er með verslun í þrem-
ur deildum, matvörudeild, vefn-
aðarvörudeild og byggingavör-
um. Um annan rekstur er ekki
að ræða hjá félaginu, nema
hvað það á 30% í sláturhúsi á
staðnum. Um 10 manns vinna
hjá Kaupfélaginu en kaupfé-
lagsstjóri er Halldór S. Magn-
ússon.
Hólmkjör h.f. hét áður Versl-
un Sigurðar Ágústssonar h.f.
Eigendur Hólmkjörs, þeir Bene-
dikt Lárusson og bræðurnir
Bjarni og Svanlaugur Lárus-
synir keyptu verslunina af Sig-
urði Ágústssyni fyrir u.þ.b. 10
árum og ráku hana lengi í
gömlu verslunarhúsi sem hann
átti. Verslunin flutti svo í nýtt
húsnæði í vor og var nafninu
þá breytt. Þar vinna einnig um
10 manns.
FRAMKVÆMDIR
HREPPSINS
I yfirliti yfir atvinnulíf i
Stykishólmi er ekki hægt að
ganga fram hjá framkvæmdum
hreppsins, sem alltaf eru tals-
verðar, sagði Ellert Kristinsson.
Það hefur t.d. verið mikið unn-
ið að gatnagerð að undanförnu.
Búið er að leggja bundið slit-
lag á helstu göturnar í bænum
og lagt var á götur í nýjasta
íbúðahverfinu meðan það var
enn í byggingu.
Hreppurinn hefur nýlega lok-
ið byggingu hótels. Ffam-
kvæmdir við það hófust upp-
haflega 1967, en lágu lengi
niðri. Þá er einnig lokið við
byggingu félagsheimilis, sem er
byggt við hótelið, en félags-
heimilið var tekið í notkun í
febrúar á sl. ári.
í ráði er að hefja rekstur
elliheimilis á vegum hreppsins,
en gamla heimavistarhúsið við
barnaskólann verður tekið und-
ir það. Hreppsnefndin hefur
samþykkt að kaupa húsið af
ríkinu, en málið mun ekki vera
komið gegnum öll ráðuneyti
ennþá. Áður en húsið verður
tekið í notkun þarf að skipta
um hitakerfi í því og setja nýj-
ar innréttingar í það. En við
höfum áætlað að koma því i
gagnið næsta vetur.
HAFNAR-
FRAMKVÆMDIR
Af hafnarframkvæmdum er
það helst á döfinni að koma
upp nýrri viðlegubryggju við
skipasmíðastöðina, en sú
bryggja yrði aðallega notuð til
viðgerða. Þá er brýn þörf á að
bæta aðstöðu smábáta í höfn-
inni hérna, en það er framtið-
arverkefni. Hjá Stykkishólms-
hreppi vinna alls um 40 manns
með öllu. En áður en þessu
spjalli lýkur langar mig einnig
að minnast á sjúkrahús sankti
Fransiskusarreglunnar, sem
nunnurnar hérna reka af mikl-
um myndarskap. Það er mikill
atvinnuveitandi hér í Stykkis-
hólmi, sagði Ellert Kristinsson
að lokum.
FV 8 1977
73