Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1977, Síða 35

Frjáls verslun - 01.08.1977, Síða 35
anda fyrirtækisins að þakka, að það blómstri, eða hon- um um að kenna, þegar ekki gengur sem skyldi, þá sýnir reynslan að hann er driffjöðrin í fyrirtækinu, eða þegar verst gengur, veikasti hlekkurinn. Ein mikilvægasta ákvörðun stjórnandans er að velja sér eft- irmann. Flest smáfyrirtæki eru byggð upp og skipulögð að persónu- legum viðhorfum og smekk stjórnandans. Vantar þá gjarn- an grundvöllinn að því að nýr maður geti komist inn í hlutina með litlum fyrirvara. Stjórn- endur, sem komnir eru á sex- tugsaldurinn, telja stjórnskipu- lagið hjá sér það gott að allt gangi af sjálfu sér, en þurfi fyr- irtækið einn daginn á nýjum stjórnanda að halda, er það ó- undirbúið og fyrirtækið stend- ur þá höllum fæti. # Hvaða kröfur ber að gera til eftir- manns, sem stjórnanda ? — Ef til vill hefur núver- andi stjórnandi sjálfur byggt upp fyrirtækið, eða þá að hann er af annarri eða þriðju kyn- slóð í fjölskyldufyrirtækinu og hefur alist upp í því. Þá er lík- legt að hann hafi lítið velt því fyrir sér hvað þurfi til að stjórna slíku fyrirtæki, heldur ályktað sem svo að hann stjórn- aði eins og ætti að gera það. En þegar að því kemur að velja eftirmann má slík blinda ekki ríkja. Eftirmaðurinn verð- ur að hafa einmitt þá eiginleika, sem þörf er á í þessu fyrirtæki. Líta verður raunsætt jafnt á veiku punktana í fyrirtækinu, og á þá sterkari og meta horf- ur og möguleika fyrirtækisins, með það í huga. Á þeim grund- velli ætti síðan að setja upp á kerfisbundinn hátt þær kröfur sem gerðar eru til eftirmanns- ins. Auðvitað er ómögulegt að finna eftirmann, sem uppfyllir allar þær kröfur sem gerðar eru til hans. Hann getur haft annað við sig sem bætir það upp, og bendir til þess að hann nái tökum á þeim sviðum, þar sem reynsluna skortir. Persónu- gjörvingur hans getur haft sér- staka þýðingu, eftir því hvern- ig starfsfólk fyrirtækisins er. Það getur verið mjög mikilvægt að eftirmaðurinn nái samstöðu með þeim aðilum, sem þegar hafa stjórnunarvöld í fyrirtæk- inu og að hann hafi hæfileika til þess að finna þeim góðan samstarfsgrundvöll. # Hvaða kjör býður f yrirtækið ? — Kröfurnar sem gerðar eru til eftirmannsins, á þennan hátt, eru töluvert viðamiklar og þeir sem kynnu að uppfylla þær að mestu, og kæmu tiJ greina að öðru leyti eru mjög fáir. Því verður að gera sér grein fyrir því að eftirmanns- efnin koma einnig til með að gera miklar kröfur til fyrirtæk- isins, og að þær verða einungis að hluta fjárhagslegar. Eftir- maðurinn kann að vilja völd eða áhrif af ýmsu tagi. Loks verður að líta á það hvort fyr- irtækið ræður við að ráða þann sem hæfastur er — eða hvort það hefur á hinn bóginn ráð á því að ráða hann ekki. # Hvar á að leita? — Nokkur hluti stjórnenda fjölskyldufyrirtækja á hér ekki við neitt vandamál að stríða. Einn eða fleiri innan fjölskyld- unnar hafa þá áhuga á að taka við stjórn, og hafa jafnvel menntað sig til þess og undir- búið sig á annan hátt. Þetta er heppileg staða, einkum með til- liti til þess að þá getur eignar- rétturinn og stjórnunin fylgst að. En það er vert að meta raunsætt hæfi sonarins, tengda- sonarins eða dótturinnar tiJ þess að halda um stjórnartaum- ana. Best væri að fá álit hlut- lauss, utanaðkomandi aðila, því afleiðing þess að ráða óhæfan mann innan f jölskyldunnar get- ur verið afdrifaríkari, heldur en ef um utanaðkomandi væri að ræða. En það er minnihlutinn, sem er svo heppinn að þurfa ekki að leita út fyrir fjölskylduna, en hvernig eiga hinir að snúa sér í málinu? Yfirleitt líta menn fyrst í kringum sig í eig- in umhverfi; meðal þeirra sem starfa í fyrirtækinu, vina og kunningja. Annars vei'ður að leita lengra og hafa tal af þeim athafnamönnum, sem fyrirtæk- ið skiptir við, svo sem endur- skoðendur, lögfræðinginn eða ráðgefendur. Einnig mætti reyna að auglýsa í fagtímarit- um eða í dagblöðunum undir nafni fyrirtækisins. En besta lausnin væri væntanlega sú, að leita til ráðgjafafyrirtækis, sem sérhæft er á þessu sviði. Þyi'fti þá að skila því skriflega hvaða kröfur gerðar væru og eins hvað í boði sé. Best væri nátt- úrulega að ráðgjafafyrirtækið gerði eigin úttekt á stöðu og þörfum viðskiptavinarins. Eitt fyrirtæki hefur auglýst nokk- uð slíka þjónustu héi'lendis, Hagvangur h.f. # Skattamálin — Við kynslóðaskipti er það einkum fæi’sla eignaréttar fyr- irtækisins og þar með stjórnun- arvalda til yngi’i aðila, sem máli skiptir. Þessi færsla gerist í öllu falli við fráfall eigandans, en það getur verið hagkvæmt vegna hrumleika hans, eða vegna skattaástæðna, að þau fari fram í lifanda lífi hans. Það er óskynsamlegt að greiða meira til ríkisins, en þörf er á. Skattarnir eru tekjustofn- ar ríkisins og þess vegna ekki alveg hægt að ráða hversu mik- ið hver og einn vill borga. En löggjöfin býður upp á valkosti, sem settir hafa verið í kerfið með vilja. Þessir valkostir eru einkum í því faldir að geta ráð- ið einhvei’ju um það hvenær skattarnir eru greiddir. En FV 8 1977 35
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.