Frjáls verslun - 01.08.1977, Síða 65
gerS Lúðvíks Þórarinssonar
sem er afkastamikið fyrirtæki
og bakar fyrir svo til allt nesið.
Brauðgerðin er nýlega flutt í
nýtt húsnæði, en þar starfa 4-5
menn. Sindri h.f. er lítil vél-
smiðja, gamalgróið fyrirtæki
hér, sem veitir bátaflotanum
þjónustu. Þar er einnig rekin
varahlutaverslun. Að jafnaði
vinna 10—12 menn hjá Sindra.
Netagerð Sigurðar Sigurðsson-
ar er vaxandi fyrirtæki sem fær
aukin verkefni með tilkomu nýs
togara hérna. Steypustbðin
Bjarg h.f. sér útnesinu fyrir
steypu, en í landi Ólafsvíkur er
mikið af góðu steypuefni. Fimm
menn vinna hjá Bjargi en fram-
kvæmdastjóri er Stefán Jóhann
Sigurðsson. Þá er hér Röra-
steypa sem Eiríkur Ögmunds-
son rekur. Ýmis þjónustuiðnað-
ur er einnig í Ólafsvík. Tvö
bílaverkstæði eru í gangi, raf-
iðnaðarmenn, trésmiðir og pípu-
lagningamaður sjá um þjónustu
við húsbyggjendur o.s.frv. Hér
er ýmislegt í athugun með að
koma af stað nýjum iðnaði.
SÍS og Álafoss hafa verið að at-
huga möguleika á að stofnsetja
hér fyrirtæki, niðursuða þarf
að komast á fót hér og sífellt
er verið að kanna möguleika á
að koma upp loðnubræðslu. Það
á hins vegar sjálfsagt langt í
land.
VERSLUNARFYBIRTÆKI
Stærstu verslunarfyrirtækin
í Ólafsvík eru útibú frá Kaupfé-
lagi Borgarfjarðar, sem er með
alhliða verslun og Matvöru-
verslunin Hvammur. Síðar-
nefnda fyrirtækið er nýlega
flutt í nýtt og gott húsnæði.
Eigandi þess er Jóhann Jóns-
son. Nokkrar sérverslanir eru
hérna. Vík er verslun með
byggingavörur, smá útgerðar-
vörur og vinnufatnaíS. Eigandi
er Vigfús Vigfússon. Verslun
Jóns Gíslasonar ep með bækur
og ritföng, fatnað og ýmsar
smávörur. Kassinn, sem Ágúst
I Sigurðsson rekur er umboðs-
verslun með húsgögn og fl.
Verslun Sigríðar Þóru er tísku-
verslun og Valverk er bygging-
arvöruverslun sem Sveinbjörn
Sigtryggsson rekur. Að lokum
er svo ein verslun sem selur
Alexander Stefánsson,
sveitarstjóri.
ýmsar rafmagnsvörur og raf-
tæki og er það Tómas Guð-
mundsson rafvirki sem á hana.
— Hjá Ólafsvíkurhreppi eru
alltaf talsverðar framkvæmdir
í gangi, sagði Alexander. —
Fyrirferðarmestar eru gatna-
gerðarframkvæmdir, en á síð-
ustu tveimur árum er búið að
vinna við þær fyrir 100 milljón-
ir. Gerð hefur verið 10 ára á-
ætlun um gatnagerð hér og sem
stendur erum við 2 árum á und-
an áætlun. Hér er verið að ljúka
byggingu leikskóla sem á að
taka 2x40 börn. Teikningarnar
lagði Menntamálaráðuneytið til
en Guðmundur Kr. Guðmunds-
son og Ólafur Sigurðsson eru
arkitektar að húsinu. Það er
byggt samkvæmt öllum nýjustu
kröfum og er gert ráð fyrir að
stækka megi húsið og bæta við
dagvistun. Af öðrum bygginga-
framkvæmdum hreppsins má
nefna 6 leiguíbúðir sem lokið
var við á sl. ári og verið er að
undirbúa smíði á 8 íbúða blokk.
í ársbyrjun var tekið í notkun
nýtt áhaldahús, en þar er einn-
ig rekin skipaafgreiðsla. Sér
hreppurinn um þann rekstur.
Þar er aðstaða fyrir hafnarvörð,
radíóþjónustu og bílavog er við
húsið. Helmingur hússins er
ætlað sem aðstaða fyrir útibú
frá hafrannsóknarstofnun og í
viðbyggingu sem á að rísa verð-
ur aðstaða fyrir fiskmat.
Vélsmiðjan
Sindri Ólafsvík:
Viðskiptin
aðallega
við
bátaflotann
í Ólafsvík er starfrækt lítil
vélsmiðja, sem heitir Sindri hf.
Einn af aðaleigendum fyrir-
tækisins og skrifstofustjóri þess
heitir Hrefna Bjarnadóttir, en
hana tók Frjáls verslun tali
þegar blaðið heimsótti Ólafsvík
fyrir skömmu.
— Faðir minn keypti þetta
fyrirtæki árið 1943, sagði
Hrefna, en fyrri eigandi þess
Bjarni Sigurðsson hafði þá
starfrækt það um tíma. Við
systkinin, upphaflega 4, keypt-
um svo fyrirtækið 1965. Núna
störfum við tvö systkini við
þetta. Starfsemin sem fer fram
hjá vélsmiðjunni er ýmis véla-
viðgerðavinna, en aftur á móti
er minna um nýsmíði. Þó eru
smíðaðar netaskífur sem faðir
minn fann upp og eru ekki
smíðaðar á sama hátt neins
staðar annars staðar. Þær eru
að öllu leyti handunnar hjá
okkur. í sambandi við vél-
smiðjuna er svo lítil verslun
sem selur ýmsa varahluti í vél-
ar, reiðhjól, verkfæri, útvörp,
saumavélar og yfirleitt hluti
sem tilheyra vélum. Þetta er
eina verslunin á staðnum sem
selur varahluti, en það eru
fleiri sem hafa verið með verk-
færi. Svo höfum við líka verið
65
FV 8 1977