Frjáls verslun - 01.08.1977, Qupperneq 69
Mikill framkvæmdahugur er í Grundfirðingum og nýlokið er
byggingu skóla og byggja á íþróttahús á næsta ári.
Grundarf jörður:
Enginn atvinnu-
leysisdagur síðan
skuttogarinn
Runólfur kom
— rætt við Árna Emilsson, sveitarstjóra
með sölu á byggingarvörum á
staðnum. Úr því að það gekk
vel fóru fleiri að hugsa sér til
hreyfings. Þegar við bættust
fleiri verslanir með þetta sama,
þá varð rekstrargrundvöllurinn
erfiður fyrir okkur alla.
— Á svona stað er varla á
færi nema mjög fjárstferkra að-
ila að versla með byggingarvör-
ur, sagði Vigfús. — Við þurf-
um að eiga allar tegundir af
vörum á staðnum og það kostar
mikla lagermyndun, sem aftur
kostar mikla peninga. Nálægð-
in við Reykjavík gerir að fólk
verslar bar ef hlutirnir fást
ekki hér. Hins vegar er veltan
hjá mér of hæg til að hægt sé
að endurnýja lagerinn eðlilega.
Það er algengt að vörur hjá
mér eru talsvert ódýrari en þær
sem fást í Reykjavík og er það
bara af því að þær hafa legið
hjá mér í nokkra mánuði. Þá
er lánsfjárfyrirgreiðsla lítil sem
engin, enda eru engir aðilar
sem fjármagna neitt fyrir versl-
unina. Það pl' bara hægt að fá
vaxtaaukalán og gjaldfrestur
við vörukaup er alltaf að stytt-
ast. Þá er mikið um lánavið-
skipti á svona stað og margir
sækja í að hafa mánaðarvið-
skipti. Þegar allir þekkjast er
erfitt að neita um svoleiðis, en
þetta verða erfið viðskipti þeg-
ar greiðslur byrja að dragast.
BJARTSÝNN Á
FRAMTÍÐINA
— Þrátt fyrir þessa erfið-
leika sem ég hef lýst hér er ég
nokkuð bjartsýnn á framtið
verslunar hér, sagði Vigfús. —
Þó hér hafi verið öldudalur i
viðskiptum sýnist manni ýmis-
legt ben'da til að uppgangur sé
að hefjast á ný og skilningur
fólks fer vaxandi á þörfinni
fyrir svona þjónustu. Það hef-
ur verið mikið um að vertíðar-
fólk hafi farið með fullar hend-
ur fjár til Reykjavíkur eftir
vertíð og verslað gífurlega, en
fengið það sem vantar á milli
út á krít hjá heimakaupmönn-
um. Þetta þarf að breytast og
fólk þarf að opna augu sín fyr-
ir því að það er ekki allur á-
vinningur fólginn í því að
versla í Reykjavík.
í nýrri skrifstofu Eyrarsveit-
ar í Grundarfirði hitti Frjáls
verslun fyrir sveitarstjórann
Árna Emilsson og var hann
beðinn að segja lesendum blaðs-
ins frá atvinnulífi og fram-
kværndum á staðnum.
— Stærsta fyrirtækið hérna,
sagði Árni, er Hraðfrystihús
Grundarfjarðar h.f. Hreppurinn
á smá hlut í fyrirtækinu, en
einstaklingar og félög standa að
því að mestu. Fyrirtækið er
með alhliða fiskverkun, tekur
við um 70% af afla togarans
Runólfs og er með viðskipti við
4 báta að auki. Hjá frystihúsinu
hafa að undanförnu verið marg-
ir útlendingar við störf, m.a.
stúlkur frá Ástralíu og hafa
nokkrar þeirra sest að. Fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins er
Hringur Hjörleifsson. Fiskverk-
un Soffaníasar Cecilssonar er
einnig nokkuð stórt fyrirtæki.
Á þess vegum er útgerð á 4
bátum og alhliða fiskverkun.
Mest er þó verkað af saltfiski,
en einnig er fiskverkunin með
nokkra rækjuvinnslu. Rækju-
vinnsla Júlí,usar Gestssonar er
fiskverkunarfyrirtæki hérna,
sem hefur verið með alhliða
fiskverkun, en starfsemi þar
liggur niðri sem stendur. Af út-
gerðarfyrirtækjum ber fyrst að
nefna Guðmund Runólfsson h.f.
sem gerir út skuttogarann Run-
ólf, en það fyrirtæki er mynd-
að af einni fjölskyldu á staðn-
um. Það verður að taka það
fram, að koma togarans varð
mikil efling fyrir atvinnulífið
hér og forsenda alls konar
framfara. Hann hefur ýtt und-
ir ýmsar framkvæmdir, bæði
FV 8 1977
69