Frjáls verslun - 01.08.1977, Blaðsíða 77
einhverju af sunnanverðu nes-
inu líka. Við getum ekki nýtt
allt það kjöt sem kemur í okk-
ar hlut svo við séljum töluvert
af því suður.
— Áður en við fluttum hing-
að vorum við einnig með veit-
ingarekstur, sagði Benedikt.
Við rákum veitingastofuna Te-
húsið, sem stendur hér niðri í
plássinu. Við ætlum okkur að
flytja þann rekstur í þetta hús,
en hann hefur legið niðri í sum-
ar vegna anna okkar við ým-
islegt annað.
VINNSLA Á
SLÁTURAFURÐUM?
Hólmkjör er nú einna stærsta
verslunin í Stykkishólmi og að
sögn eigendanna er hún vel i
sveit sett. — Byggðin er mikið
að færast til, sagði Benedikt, og
mest er byggt hérna í kring
um okkur. Þegar við fluttum
hingað jókst veltan töluvert og
styrkir það skoðun okkar um
staðsetninguna. Við ætlum nú
að snúa okkur að því að ljúka
frágangi við húsið og svo höf-
um við hug á því að nýta það
sem best. T.d. væri hugsanlegt
að nota allt plássið í kjallaran-
um við vinnslu á sláturafurð-
um. Um þetta er þó ekkert ráð-
ið enn, sagði Benedikt.
Búðardalur:
Hótel Bjarg hefur starfað
í 27 ár
— og margt hefur breytzt á þessum árum
— Við hjónin byrjuðum með gistihúsrekstur f> rir 27 árum og þá var þetta með fyrstu húsun-
um hérna iuppi á barðinu, sagði Borghildur Hjartardóttir hótelstjóri á Bjargi í Búðardal begar
Frjáls verslun heimsóit'ti hana. — Húsið var smærra til að byrja með, sagði Borghildur, — en svo
brann það 1963 og þá byggðum við það upp í þeirri mynd sem það er nú. Við fengum lítið út úr
tryggingu fyrir gamla húsið og ég veit eiginlega ekki enn hvernig við klóruðum okkur út úr því
að byggja aftur. En við unnum
mundsson.
Hótel Bjarg er opið allt árið,
en að sögn Borghildar eru við-
skiptin dræm yfir veturinn. —
En við kunnum ekki við að
loka á það fólk sem þarf á
þessu að halda að vetrinum,
sagði hún. — Á sumrin getur
fólk mikið frekar bjargað sér
með því að tjalda en á veturna
er þörfin miklu brýnni fyrir
gististaði.
VAKAÐ EFTIR BÍLUNUM
— Það er margt sem hefur
breytst síðan við byrjuðum
með hótelið, sagði Brynhildur.
— Þá kom það fyrir að áætl-
umarbílarnir frá Melgraseyri,
sem tóku farþega úr bátnum
frá ísafirði, voru upp í 14 tíma
á leiðinni hingað. Þá vakti
maður eftir bílunum til að gefa
fólkinu að borða og hlúa að því
eftir ferðina. Þá var líka verið
að byggja upp vegakerfið hérna
á Vesturlandi og ég bjó oft út
margra daga nesti fyrir ýtu-
menn og hefilstjóra. Svo mér
finnst að ég hafi sjálf hálf
partinn tekið þátt í uppbygg-
ingu vegakerfisins hérna.
— Á sumrini er hér mikil
ikið sjálf við bygginguna, ég og
umferð, sagði Brynhildur, —
en í sumar var þetta með
minnsta móti. Tíðin var vond
framan af og þá var eins og
fólk veigraði sér við að ferðast.
í ágúst varð tíðin aftur góð og
'þá virtist fólk liggja mikið í
tjöldum. Ég vil hins vegar
benda fólki á að rúmin hér eru
mjög ódýr, svo það ætti alveg
að vera óhætt að koma og gista.
Hvað veitingareksturinn snert-
ir, þá eru orðnir of margir að-
ilar með veitingar á staðnum.
Félagsheimilið hérna við hlið-
ina er með veitingastofu og
tvær sjoppur eru með einhvern
grillmat. Ég er bara með svona
heimilislegan íslenskan mat og
heimabakaðar kökur. Grill hef
ég ekki fengið mér enn og veit
ekki hvort ég geri það. Mér
finnst að gestirnir kunni vel
við þann aðbúnað sem þeir
hafa fengið og margt fólk kem-
ur hér ár eftir ár til dvalar.
ÓVISS UM FRAMTÍÐINA
— Ég er svolítið að velta því
fyrir mér hvernig verður með
framtíð þessa reksturs, sagði
Brynhildur. — Þetta er oft
maðurinn minn Ásgeir Guð-
mjög erfitt og ekki virðist mað-
ur geta fengið mikið af lánum
eða styrkjum til að halda þessu
gangandi. Oft erum við skuld-
ug eftir veturinn og verðum þá
að ná því upp að sumrinu. Nú
fer líka að koma að því að
gera þarf mikið við húsið og
ekki veit maður hvaðan taka
á fé í það. Við erum að vona
að farið verði að nota Heydals-
veg og Laxárdalsheiði á norð-
urleið á vetrum, en það er mik-
ið snjóléttari leið en Holta-
vörðuheiði. Verði það gert
eykst umferð hér og vonandi
viðskiptin um leið. Það væri
svolítið erfitt að hætta með
hótelið þegar maður er búinn
að standa í þessu svona lengi.
Þess vegna býst ég við að við
reynum að skrölta eitthvað á-
fram. Við förum varla út í
neinar stórbreytingar á rekstr-
inum úr þessu. Ég vona bara að
okkar gestir haldi áfram að
koma eins og þeir hafa gert og
ég vil að lokum bara biðja fyrir
bestu kveðjur til ok'kar góðu
viðskiptavina.
FV 8 1977
77