Frjáls verslun - 01.08.1977, Qupperneq 81
þessar vélar til viðbótar þeim
sem voru fyrir.
Um árabil hefur IBM á ís-
landi rekið tölvuþjónustudeild,
þar sem boðin eru afnot af
stórri tölvusamstæðu IBM 370/
135. í tölvuþjónustudeildinmi
geta einnig lítil fyrirtæki not-
fært sér kosti tölvunnar við
lausn ýmissa verkefna, og má
sem dæmi nefna vinnslu á
fjárhagsbókhaldi, launabók-
haldi, viðskiptamannabókhaldi,
o.fl.
Hjá IBM á íslandi starfa nú
9 menn í viðgerða- og eftirlits-
deild og 27 í kerfisfræði og
tölvuþjónustudeild. Allt eru
þetta menn sem hafa verið sér-
þjálfaðir ihérlendis og erlendis
og hlotið mikla og íiagnýta
starfsreynslu.
Um áraraðir hefur IBM rek-
ið skóla í gagnavinnslu og gef-
ið út námsskrá, sem send er
reglulega til viðskiptavina. Sú
námsskrá sem nú er í gildi nær
yfir tímabilið september 1977
til janúar 1978 og býður upp á
20 mismunandi námskeið. Bæði
er um að ræða námskeið fyrir
byrjendur og framhaldsnám-
skeið fyrir þá sem eru lengra
komnir. Skóli þessi hefur verið
mjög vel sóttur og sannað nota-
gildi sitt með síaukinni aðsókn.
Á næstunni tekur Frjálst
framtak hf. í notkun tölvu af
gerðinni IBM 32, en fyrirtækið
gefur út Frjálsa verslun, Sjáv-
arfréttir, Iðnaðarblaðið og í-
þróttablaðið, auk fyrirtækja-
bókarinnar íslensk fyrirtæki.
Meginorsök þess að Frjálst
framtak hefur brýna þörf fyrir
Tölvu
Frjáls
framtaks
hf. er ætlað
að sjó um
margvísleg
og flókin
verkefni.
tölvu, er sú að á einu ári hafa
bæst við 11.800 nýir áskrifend-
ur að ritum fyrirtækisins. Alls
þarf því fyrirtækið að ráða yfir
upplýsingum um meira en 24
þúsund áskrifendur að ritum
sínum.
Áætlað er að talvan sjái um
áritanir á útsend blöð, áritanir
á gíróseðla, og geymi allar
nauðsynlegar upplýsingar um
áskrifendur. Einnig er áætlað
að talvan sjái um viðskipta-
mannabókhald, fjárhagsbók-
hald og launabókhald.
Allar upplýsingar um íslensk
fyrirtæki verða geymdar í tölv-
unni, til notkunar vegna fyrir-
tækjabókarinnar. Hún hefur að
geyma 240 þúsund orð, sem
þarf að raða upp í mismunandi
skrár, svo sem fyrirtækjaskrá,
innflytjendur og útflytjendur,
viðskipta- og þjónustuskrá, um-
boðsskrá og nafnnúmeraskrá.
Talvan veitir möguleika til að
stytta vinnslutíma bókarinnar
um marga mánuði og hraða
þannig útkomu hennar, sem
eykur mjög notagildi hennar.
Þá er ætlunin að bjóða þá
þjónustu, að selja áritanir fyr-
irtækja, flokkaðar eftir at-
vinnugreinum.
Kristín Orradóttir mun ann-
ast notkun tölvunnar.
Hver er tramleu$andinn?
Flett'iB upp í „ISLENZK FYRIRTÆKI"
og finnið svarib
FV 8 1977
81