Frjáls verslun - 01.08.1977, Page 84
SKRIFSTOFUTÆKMI HF.:
AUGLÝSING
olivelli
DATA TERIVIIMAL greiðslureiknar
Skrifstofutækni hf. Tryggva-
götu, hefur um nokkurt skeið
boðið greiðslureikna frá banda-
ríska fyrirtækinu Data term-
inal systems. Slíkir greiðslu-
reiknar hafa rut't sér mjög til
rúms í heiminum.
Data terminal systems er ann-
að stærsta fyrirtækið í Banda-
ríkjunum i framleiðslu greiðslu-
reikna og hefur um 2000 um-
boðsmenn um allan heim, sem
annast jafnframt viðgerða- og
varahlutaþjónustu.
DTS greiðslureiknirinn gerö
100 er sérhannaður fyrir sér-
verslanir, minni matvöruversl-
anir og þjónustufyrirtæki. Verð
er 255.000 kr. Hann er mjög
fljótur og hljóðlátur.
Hann hefur sex teljara (to-
tal) sem skipta má niður í fjór-
ar söludeildir. Hann léttir af-
greiðslustörf með því að sýna,
hvað mikið gefa skal til baka
og sem stjórnunartæki getur
DTS 100 sýnt á hvaða tíma sem
er nákvæmlega þá upphæð í
peningum, sem vera eiga í
skúffunni.
DTS gerð 320 er fullkomnari
en gerð 100 m.a. að því leyti,
að hann hefur 12 teljara og fjóra
sundurliðunarteljara. Hann hef-
ur því m.a. teljara fyrir söfn-
un á söluskatti og teljara fyrir
vöru sem ekki er með sölu-
skatti eins og mjólkurvörur.
Afkastageta greiðslureikn-
anna er mikil vegna þess að
þeir hafa biðtakka, og því er
hægt að byrja að afgreiða næsta
viðskiptavin, þó afgreiðslu við
hinn sé ekki lokið. DTS
ereiðslureiknirinn gerð 320
kostar kr. 560.000.
DTS greiðslureiknirinn gerð
400 er mun fullkomnari en
greiðsureiknarnir 100 og 320.
Við gerð 320 og 400 er hægt að
tengja prentara til þess að
skrifa út nótur en auk þess er
hægt að setja við gerð 400
elektroniska vog, sem vigtar og
mar^faldar upp verð sam-
kvæmt vigt. Greiðslureiknirinn
safnar upplýsingum um magn
í kílóum og verði á hverjum
einstökum vöruflokkum.
DTS 400 hefur þrjá prósentu-
reikna, sem geta verði í formi
afsláttar t.d. Greiðslureiknirinn
getur sundurliðað sölu allt að
250 afgreiðslumanna. Hann get-
ur sundurliðað allt að 4000
vöruflokka og geymt í sér verð
á öllum þessum vöruflokkum.
Ef margir reiknar eru i sama
fyrirtæki er hægt að tengja þá
saman og safna upplýsingum úr
þeim öllum í gegnum einn.
Jafnvel þó rafmagnið fari getur
greiðslureiknirinn haldið áfram
að vinna og hann getur geymt
í sér tölurnar í allt að 6 mánuði.
Allir Data terminal systems
greiðslureiknar eiga það
sameiginlegt að þeir hafa full-
kominn leiðréttingarbúnað til
að leiðrétta tölur sem eru rangt
slegnar, hvort sem er í lykla-
borð eða deildir.
Allir margfalda þeir og sýna,
hve mikið gefa á til baka og all-
ir hafa strimil og Ijósaborð,
auk þess sem hægt er að hafa
Ijós á hliðinni eða að aftan fyr-
ir viðskiptavini.
olivetti Logos 43
Olivetti Logos 43 rafeinda-
reiknivélin er mjög fullkomin.
Auk venjulegra i-eikniaðferða
hefur vélin þrjú minni og seg-
ir hún hvað tölur eru margar
sem slegnar hafa verið og með-
altal af þessum tölum.
A jafn einfaldan hátt reikn-
ar hún út mismun í prósentum
á tveimur upphæðum. Logos 43
hefur nýja gerð af konstant,
sem ekki er aðeins fyrir tölur
heldur einnig reikniaðferð.
Olivetti Logos 43 er margt til
lista lagt. Hún hefur sérstakt
minni sem nær yfir tvær aldir
frá 1900—2099. Hún getur t.d.
svarað því hvaða mánaðardag
og vikudag gjalddagi víxils er
sem greiða á eftir 45 daga.
Hún getur einnig lagt saman
klukkustundir, mínútur og sek-
úndur t.d. við útreikning á
vinnukortum.
Verð á vélinni er 68. þús. kr.
Skrifstofutækni hf. býður
fullkomna viðgerða- og vara-
hlutaþjónustu fyrir vélar sínar,
sérhæfða viðgerðarmenn og
fljóta og góða afgreiðslu.
84
FV 8 1977