Frjáls verslun - 01.10.1977, Síða 1
Frank Judd, aðstoftarutanríkisráðherra:
„Þung áherzla verður lögð á
að viðræður verði teknar
upp að nýju í vetur”
„Islendingar ■ of mikilli varnarstöðu í stað þess að móta
stefnu sína fyrir franitíðina”
— Það skal játað, að mér fannst brezki flotinn vera í fáránlegri aðstöðu, þegar þorskastríðin við
íslendinga stóðu yfir, þó ég bæri virðingu fyrir áhöfnuni skipanna sem aðstoðarflotamálaráð-
herra á þeim tíma. Og ég vona að guð forði okkur frá því að til annarrar landhelgisdeilu koini milli
Breta og íslendinga en að þjóðirnar beri gæfu til að ræða hagsmunamál sín eins og vinir enda
byggja Bretar og íslendingar vináttu sína á lan gri hefð.
1970 varð hann ritari Harold
Wilsom, þáverandi leiðtoga
stjórnarandstöðunnar í brezka
þinginu og talsmaður Verka-
mannaflokksins um málefni
flotans. Hann hefur einnig átt
sæti í þingmannanefndum
Breta á þingum Evrópuráðsins.
VIÐRÆÐUR Á NÆSTUNNI?
Frank Judd var hreinskilinn
í viðræðum okkar og það kom
skýrt fram, að hann telur Efna-
hagsbandalagið og íslenzk
stjórnvöld þurfa að taka þráð-
inn upp að nýju til að komast
að samkomulagi um fiskveiði-
mál og minnti hann kurteislega
á, að nökkurrar óþolinmæði
gætti austan hafsins vegna þess
hvað lítið hefði heyrzt frá
Reykjavík um þessi efni og að
íslendingar væru tregir til að
setjast niður og ræða málin.
Taldi hann annað óhugsandi
en að EBE myndi leggja þunga
áherzlu á að viðræður yrðu
teknar upp að nýju í vetur.
Judd sagði, að Bretar væru
algjörlega háðir sameiginlegri
landhelgismálaráðstefnu EBE
og það væri ráðherranefndar
bandalagsins að siá um viðræð-
ur við aðrar þjóðir um fiskveiði-
réttindi. Viðræður bandalagsins
við Sovétríkin og önnur A-
Evrópuríki hefðu gengið mun
Þetta mælti Frank Judd, að-
stoðai'utanríkisráðherra Breta í
upphafi samtals við Frjálsa
verzlun, sem fram fór í utan-
ríkisráðuneytinu brezka fyrir
skömmu. Frank Judd hefur
einu sinini komið sem fulltrúi
ríkisstjórnar sinnar til íslands,
en það var snemrna á þessu ári
er hann átti ‘hér stuttar viðræð-
ur við íslenzka ráðamenn á-
samt Gunderlach, fram-
kvæmdastjóra ráðherranefndar
Efnahagsbandalags Evrópu.
Á FRAMABRAUT
Frank Judd þykir líklegur til
að komast til æðstu metorða í
stjórnm'álaforystu brezka
Verkamannaflokksins en 'hann
er nú helzti samstarfsmaður
David Ówen, utanríkisráð-
herra, og hefur Judd fengið
það verkefni að annast málefni
er snerta samskipti Breta og
annarra þjóða í Efnahagsbanda-
lagihu en sem kunnugt er hef-
ur bandalagið nú sameigimlega
tekið upp viðræður um fisk-
veiðiréttindi við ríkisstjórnir
landa utan þess.
Frank Judd er 42 ára gamall,
viðskiptafræðingur að mennt,
og hefur setið á þingi fyriv
Portsmouth síðan 1966. Af ein-
stökum trúnaðarstöðum sem
hann hefur gegnt má nefna að
Frank Judd er einn nánasti
samstarfsmaður Owens utan-
ríkisráðherra og fer með mál-
efni er snerta aðild Breta að
EBE.
FV 10 1977
11