Frjáls verslun - 01.10.1977, Blaðsíða 24
Bowater - Scott
Selur pappírsvörur til
40 landa
* *
Arssalan til Islands nemur um 180 þúsund pundum
„Við hjá Bowater-Scott liöfum átt erfitt með að skilja stefnu íslenzkra stjórnvalda í tollamálum,
sem birtist meðal annars í jjví, að íslenzkar konur ncit'a salernispappír til að snyrta sig í framan í
stað hess að kaupa andlitsþurrkur til þess. Ástæðan er sú, að á salernispappírnum er 15% tollur
á íslandi en sé pappírinn í formi andlitsþurrka er á honum 70% tollur“.
Kynningarmynd frá Bowater-Scott, þar sem sýndar eru andlits-
þurrkur úr pappír. Tollastcfna íslenzkra yfirvalda gerir það að
vcrxum að salernispappír er notaður í sama tilgangi í stað þess-
arar vöru .
Þetta sagði H. F. Brown, sölu-
stjóri hjá Bowater-Scott í
London í samtali við F.V. en
fyrirtæki hans flytur mikið af
pappírsvörum til íslands. Á
tímabilinu 1973-1976 hefur orð
ið 400% aukning í útflutningi
þeirra til íslands og á þessu ári
er gert ráð fyrir að salan nemi
180 þúsund sterlingspundum.
GÓÐUR ÁRANGUR
Á ÍSLANDI
Hér á landi eru það fyrirtæk-
in Kristján Ó. Skagfjörð og H.
Ólafsson og Bernhöft sem flytja
inn vörur frá Bcwater-Scott,
sem eru aðallega salernisrúllur,
eldhúsrúllur og andlitsþurrkur.
Brown taldi að góður árangur
hefði náðst á markaði á íslandi
og mætti það þakka gæðum
vörunnar og góðri þjónustu,
sem fyrirtækið í London legði
áherzlu á m.a. með vikulegum
sendingum. Þá hefðu umboðs-
mennirnir á Islandi reynzt mjög
vel ,og væri haft reglulegt sam-
band við þá með gagnkvæmum
heimsóknum, helzt tvisvar á
ári.
Þá taldi Brown mikilvægt að
tekið væri tillit til gengismála
á fslandi og efnahagsástandsins
almennit i samskiptum við um-
boðin á íslandi.
Bowater-Scott hefur starfað
síðan 1956 er Bowater Corpora-
tion í Bretlandi og Scott Paper
Company í Bandaríkjunum
sameinuðust á jafnréttisgrund-
velli. Félagið rekur nú tvær
pappírsverksmiðjur í Bretlandi
og dreifingarmiðstöðvar á 21
stað í Bretlandi en samtals eru
starfsmenn 3400 talsins. Bo-
water-Scott hefur mesta fram-
leiðslugetu af öllum fyrirtækj-
um á sínu sviði í Evrópu og
reyndar í heiminum ef Norður-
Ameríka er undanskilin.
FREMSTIR Á SÍNU SVIÐI
Helztu merki Bowater-Scott
eru Andrex og Petal-salernis-
pappír og Fiesta og Scott þurrk-
ur og á Bretlandsmarkaði eru
þeir sölu'hæstir af einstökum
framleiðendum hvað þessar
vörutegundir snertir. Árssalan
er um 100 milljón pund og þar
af er hlutdeild Bowater-Scott
um 47%. Bowater-Scott kemur
næst á eftir Kleenex í sölu á
andlitsþurrkum á brezka mark-
aðnum. Útflutningur Bowater
Scott nær til 40 landa.
34
FV 10 1977