Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1977, Blaðsíða 7

Frjáls verslun - 01.10.1977, Blaðsíða 7
Það yrði of langt mál að telja hér hvernig opinber stjórn og eftirlit er með hinum ríkis- reknu fyrirtækjum. Þau hafa í reynd verulegt sjálfstæði, þótt þau starfi eftir viðmiðunarregl um frá viðkomandi ráðherra sem ber ábyrgð á rekstrinum. ® „ÓSÝNILEGAR TEKJUR“ MIKLAR Um 30% vinnandi manna starfa í framleiðsluiðnaði (42fJ ef byggingariðnaði og námu- greftri er bætt við) og um 45% í þjónustugreinum. Þetta beinir huganum að því hve „ósýnileg- ar tekjur“ Breta eru miklar. þ.e. tekjur á þjónustujöfnuði fyrir flutninga, af ferðamönn- um, tryggingum, bankastarf- semi erlendri fjárfestingu o.fl. Munu þeir koma næstir Banda- ríkjunum í tekjum af þessu tagi. Árið 1975 námu þessar tekjur rúmum 11 millj- örðum sterlingspunda og tekju- afgangur nam 1,5 milljarði (f) en hallinn á vöruskiptum var það ár um 3 milljarðar (£) á fob verði. Árið áður var sam- svarandi halli um 5 milljarðar (£), en var síðast hagstæður 1971. Þrátt fyrir mikla skuldasöfn- un erlendis á síðustu árum eru eignir Breta erlendis enn þá meiri en skuldirnar. Rikisstjórn- in stefnir að því að draga úr lántökum hins opinbera úr 9% af þjóðarframleiðslu fjárlaga- árið 1976-1977 í 6% 1977-1978. .Almcnna niðurstaðan af þess- um hugleiðingum er sú að Bret- ar hafa séð það svartara í efna- hagsmálum en nú og að veru- legur árangur hefur náðst á síð- ustu misserum við að koma þjóðarbúinu á réttan kjöl. Og það hlýtur að vera uppörvandi að reka kjölinn niður í olíu og láta skipið ganga fyrir henni Kauphöllin í L.mdon. Fjármagnsmarkaðurinn þar í borg er enn afarmikilvægur í alþjóðaviðskiptum. „Það hlýtur að vera uppörvandi að reka kjölinn niður í olíu og láta skipið ganga fyrir henni.“ ve:ði, auknum tryggingabótum o.fl. Athyglisvert er að árang- ur hefur orðið meiri hjá Bret- um en okkur í baráttunni við veiðbólguna. Á móti hefur markmiðið um fulla atvinnu orðið að vikja en atvinnuleysi hefur verið um 5 ¥2% að undan- förnu í stað 1-2% að jafnaði 1947—1967. e ÝMSIR ORÐNIR ÓÞOLINMÓÐR Það verður áreiðanlega strembið að varðveita þennan árangur sem náðst hefur því að ýmsir aðiljar eru orðnir óþol- inmóðir. Þannig hafa ýmsir hóp- ar farið fram á 30% launahækk- un á þessu ári. Miklar deilur hafa verið sem kunnugt er um ríkisumsvif og þjóðnýtingu. Um fjórðungur allra vinnandi manna starfar hjá hinu opin- bera. þar af um fjórðungur hjá ríkisfyrirtækjum (námugreftri, raforku -og gasframeiðslu, stál- iðnaði, járnbrautum, flugi, öðr- um flutningum og pósti og síma). Nýlega hefur breska olíufélagið verið stofnað til að annast nvtingu olíunnar í Noi’ð- ursjónum og vinna að þjóðnýt- ingu skipasmíðaiðnaðar og flug- vélaiðnaðar. svo og til að sjá t.il þess að hið opinbera eignist hafnir í einkarekstri og taki að sér vöruflutninga á sjó. FV 10 1977 17

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.