Frjáls verslun - 01.10.1977, Síða 9
Háþróuð brezk tækni. Unnið
við að húða transistora með
gulli og títaníum áður en þeir
eru settir í neðansjávarsíma-
strengi.
í stað þess að þurfa að flytja
hana inn. Þess má geta að olía
nam 48% orkunotkunar 1972 og
var allt innflutningur. Búist er
við að Bretar verði orðnir sjálf-
um sér nógir árið 1980 að þessu
leyti.
Þeir hafa því sannarlega
fundið auðlind í stað þeirrar
sem þeir misstu á Islandsmið-
unum.
• VIÐSKIPTI ÍSLANDS OG
BRETLANDS 1976
Innflutningur frá Bretlandi
nam 10,1% heildarinnflutnings
árið 1976. Það ár var tiltölulega
mest flutt inn frá Sovétríkjun-
um, V.-Þýskalandi og Banda-
ríkjunum, en Bretland kom í
fjórða sæti. Er þetta talsverð
breyting frá undanförnum ár-
um, því að árið áður var inn-
flijtningur tiltölulega mestur
frá Bretlandi og Vestur-Þýska-
landi og til lengri tíma litið hef-
ur hlutdeild innflutnings frá
Bretlandi og Vestur-Þýskalandi
minnkað (var 13-15% 1968—
1970). Aðal skýringin á þessu
er verðhækkun olíunnar, því að
80—90% af kaupverðinu er
hreinn ágóði seljandans.
í útflutningi kemur Bretland
nr. 2 með 12,1% úflutningsverð-
mæta 1976, á eftir Bandaríkjun-
um með 20,0%. Næsta ár þar
á undan var útflutningur til
Bretlands tiltölulega minni,
eða 8—10%. Aukningin stafar
aðallega af útflutningi áls, en sú
almenna þróun hefur verið á
síðustu árum að þýðing Banda-
ríkjamarkaðar hefur farið til-
tölulega vaxandi, þótt nokkrar
sveiflur hafi orðið þar á, þann-
ig að hlutdeild annarra mark-
aða hefur minnkað. Tölulega
kaupum við heldur meira af
Bretum en þeir af okkur.
Séu viðskiptin við Breta árið
1976 sundurliðuð nánar skv.
verslunarskýrslum kemur eftir-
farandi í ljós:
Útflutningur (fob) ’76 M. kr.
Sjávarafurðir: 3.460
Þar af: Nýr fiskur 242
Fryst þorskflök 279
Loðnulýsi 865
Þorskmjöl 865
Loðnumjöl 517
Aðrar sjávarafurðir 732
Landbúnaðarafurðir 147
Þar af ull 28
Kindainnmatur frosinn 37
Refa- og minkaskinn 64
Aðrar landbúnaðarvörur 18
Iðnaðarvörur 5.229
Þar af ullarlopi, ullarband 26
Prjónavörur úr ull aðallega 62
Kísilgúr 47
Á1 5.002
Aðrar iðnaðarvörur 92
Annað 17
Alls 8.853
Innflutningur (cif) M. kr.
Korn- og matvörur o.þ.h. 426
Jarðolíuafurðir 635
Kemisk efni,
málning og lökk 182
Lyfja- og lækningavörur 217
Umvötn, sápa o.þ.h. 213
Plastefni, óunnin 248
Vörur og efni úr
gúmmí og pappír 452
Efni og vörur úr baðmull
og tilbúnar vörur úr
spunaefnum 498
Pípur og vír 288
Málmvörur 214
Aflvélar aðrar en rafmagns 207
Landbúnaðarvélar og tæki 320
Aðrar vélar og tæki
(þ.á.m. rafm.) 660
Vélknúin farartæki 634
Fatnaður (nema
loðskinnsfatnaður) 554
Skófatnaður 183
Ýmislegt, ót.a. 2.715
Alls 8.646
SJÁVARFRÉTTIR
koma nú út í hverjum
mánuði.
•
Upplag
SJÁVARFRÉTTA
er nú á sjöunda
þúsund eintök.
Fjórfalt stærra blað en
nokkuð annað
á sviði
sjávarútvegsins.
®
SJÁVARFRÉTTIR
er Iesið af þeim, sem
starfa við
sjávarútveginn og
taka ákvarðanir
um innkaup vöru og
þjónustu fyrir
útgerð, fiskiðnað, skipa-
smíðastöðvar, vél-
smiðjur og aðra aðila á
sviði sjávarútvegs
og þjónustu-
greina hans.
•
Eflið viðskiptin við
sjávarútveginn
og kynnið vörur
og þjónustu í
SJÁVARFRÉTTUM.
SJÁVARFRÉTTIR
Ármúla 18.
SÍMAR 82300 OG 82302.
FV 10 1977
19