Frjáls verslun - 01.10.1977, Qupperneq 17
hýsa og bifhjóla. Það eru fjór-
ar stórar samsteypur sem láta
mest að sér kveða á þessu sviði,
British Leyland, Ford, Chrysler
United Kingdom og Vauxhall,
sem framleiða samanlagt um
98% allra bíla og 93% af öll-
um vélknúnum farartækjum til
notkunar á landi. Það sem eftir
er af heildinni framleiða smærri
verksmiðjur, sem hafa sérhæft
sig í smíði þungavinnuvéla, á-
ætlunarvagna, lúxus- og sport-
bíla. Þó að bílainnflutningur til
Bretlands hafi aukizt mjög á
allra síðustu árum selja Bretar
þó enn meira af bílum til út-
landa en þeir kaupa, en stærsti
markaður fyrir brezka bíla er-
lendis er í Bandaríkjunum.
Mikill hluti af bílum, sem Bret-
ar flytja út er ætlaður til sam-
setningar erlendis.
Bretar framleiða um fjórð-
ung alls heimsútflutnings á
dráttarvélum til notkunar í
landbúnaði og það eru tvö stór-
fyrirtæki, sem ráða þeim mark-
aði.
0 Flugvélaiðnaður
Flugvélaiðnaðurinn brezki er
einn hinn stærsti sinnar tegund-
ar í heiminum. Hann annast
framleðslu á flugvélum til al-
mennra samgangna og til hern-
aðarlegra nota, ennfremur á
þyrlum, fjarstýrðum eldflaug-
um, lcftpúðaskipum, geimtækj-
um og margs konar útbúnaði
fyrir flugvélar og flugvelli.
Brezka ríkisstjórnin vinnur nú
að því að sameina fjögur fyrir-
tæki á þessu sviði og gera að
almenningseign. Það er British
Aircraft Corporation, Hawker
Siddeley Aviation, Hawker
Siddeley Dynamics og Scottish
Aviation. Þetta nýja ríkisrekna
lelag nefnist British Aerospace.
Svo til öll framleiðsla á flug-
vélahreyflum fer fram í verk-
smiðjum Rolls Royce. Aðal-
markaðir fyrir brezka flugvéla-
iðnaðinn eru í Bandaríkjunum,
Frakklandi og Vestur-Þýzka-
landi. Af þeim flugvélategund-
um, sem Bretar framleiða um
þessar mundir má nefna far-
þegaflugvélar eins og Hawker
Siddeley HS 748, Trident og
einkaþotuna HS 125, ennfrem-
ur BAC One-Eleven og Britten-
Norman Islander/Trislander,
sem eru gerðar fyrir stuttar flug-
brautir. Tilraunum með nýja
flugvélategund fyrir stutta flug-
velli var lokið í fyrra. Sú teg-
und er nú í framleiðslu og nefn-
ist Shorts SD3-30.
Hljóðfráa þotan Concorde,
sem Bretar hafa smíðað í sam-
vinnu við Frakka, var tekin í
notkun í janúar 1976. Á sviði
herflugvéla má nefna Hawker
Siddeley Harrier, sem hefur sig
á loft og lendir lóðrétt. Þessi
flugvél hefur verið seld í tals-
verðum mæli til Bandaríkj-
anna. Hawk nefnist æfingaflug-
vél, sem Bretar hafa náð góðum
árangri með og í samvinnu við
Frakka hafa þeir smíðað onrstu-
þotuna Jaguar en í samstarfi
við Þjóðvei-ja og ítali vinna þeir
nú að smíða Törnado-orrustu-
þotunnar.
Á sviði þyrlusmiði er um að
ræða samsjarf Breta og Frakka
og Bretar hafa ennfremur tekið
upp samstarf við aðrar Evrópu-
þjóðir í framleiðslu á gervi-
tunglum fyrir fjarskipti og til
vísindalegra athugana.
Engir standa Bretum framar
í framleiðslu loftpúðaskipa.
Winchester og Mountbatten eru
tvær tegundir, sem seldar hafa
verið til annarra landa. Auk
þessa er mjög umtalsverður út-
flutningur á flugvélahreyflum
frá Bretlandi.
# Skipasmíðar
Brezkur skipasmíðaiðnaður
er fimmti stærsti í heimi og
byggir á langri hefð Breta í
skipasmíðum. Margar skipa-
smíðastöðvarnar hafa verið
teknar til endurskipulagningar
og unnið hefur verið að því að
sameina 19 stærstu skipasmíða-
stöðvarnar, 12 viðgerðarfyrir-
tæki og nokkur önnur fyrirtæki
í vélaframleiðslu í einni ríkis-
rekinni samsteypu, British
Shipbuilders. ,Um 30% af fram-
leiðslu brezku skipasmíðastöðv-
anna er til útflutnings.
Við framleiðslu bla, flugvéla
og skipa vinna um 920 þúsund
Stolt brezka flugvélaiðnaðarins, hljóðfráa farþegaþotan Concorde.
Tæknileg fullkoninun en fjármálalegt glapræði — eins og mál
horfa við í dag.
FV 10 1977
27