Frjáls verslun - 01.10.1977, Page 18
manns í Bretlandi og útflutn-
ingur þessara iðngreina nam 3,4
milljörðum punda samanlagt í
fyrra.
Fataiðnaður Breta er einn
hinn stærsti í Evrópu og hefur
sýnt mikla hæfni til að laga
sig að breyttum aðstæðum með
tilliti til klæðaefna, breyttra
krafna og ástands á mörkuðum
auk hinnar síbreytilegu tízku.
Þessi iðngrein framleiðir fyrir
markaði um allan heim og víða
hefur verið komið á fót dótt-
urfyrirtækjum til framleiðslu
erlendis. Sama má segja um
skóiðnaðinn, sem stendur
traustum fótum í Bretlandi.
Sum svæði í Bretlandi hafa orð-
ið kunn fyrir framleiðslu á til-
teknum gerðum skófatnaðar.
Þannig koma inniskór frá Ross-
endale í Lancashire og kven-
skór og barnaskór frá Leichest-
er og Norwich.
9 Tilbúin fataefni
Auk þess að vera mjög gjald-
gengir í útflutningi á fullunn-
um fatnaði selja Bretar öðrum
þjóðum fataefni ýmist náttúru-
leg eða tilbúin. Elztu tilraunir
með tilbúin efni má rekja til
Bretlands og með framhalds-
þróun hafa verð fundin upp og
notuð margvísleg ný efni fyrir
fataiðnaðinn. Tvær aðaltegund-
irnar, sem nú eru notaðar, eru
jafnframt þær elztu, það er efm
úr sellulósatrefjum eins og ray-
on og úr gervitrefjum eins og
nylon og terelyne, sem eru að
öllu leyti tilbúin. Meðal þeirra
efna, sem Bretar hafa þannig
þróað á nokkrum áratugum eru
Terylene, Courtelle, Accrilan
og Orlon.
Á síðustu öld var bómullar-
iðnaðurinn helzta framleiðslu-
grein fyrir neytendamarkað i
Bretlandi og bómullarfatnaður
mesta útflutningsvara. Harðn-
andi samkeppni frá ódýrari
vinnumörkuðum hefur knúið
brezk fyrirtæki á þessu sviði til
að gera margvíslegar lagfæring-
ar í hagræðingar skyni. Helztu
kaupendur á brezkum bómull-
arefnum eru Irland og Dan-
mörk.
Allt frá því á miðöldum hef-
ur ullarvefnaður verið ein af
höfuðgreinum brezks atvinnu-
lífs. Nú er ullin notuð sem
blanda saman við tilbúin efni
í síauknum mæli.
# Járn - ocj stál
Ýmsar tækninýjungar í járn-
og stálframleiðslu hafa átt upp-
tök sín í Bretlandi, sem er nú
sjöundi mesti stálframleiðandi
í heimi. Árið 1967 voru 14
stærstu stálframleiðslufyrirtæk-
in sameinuð og gerð að ríkis-
eign í samsteypunni British
Steel Corporation. Samsteypan
annast nú 85% allrar stálfram-
leiðslu Breta.
Námaiðn-
aðurinn
er mikil-
vægur
þáttur
í bresku
atvinnulífi
og þar
hefur ný
tækni
rutt sér
til rúms.
STOFNANIR, FÉLÖG
VERZLUNARRÁÐ
ÍSLANDS
er allsherjarfélagsskapur
kaupsýslumanna og fyrir-
tækja. Tilgangur þess er að
vinna að sameiginlegum
hagsmunum þeirra, að
styðja að jafnvægi og vexti
efnahagslífsins og efla
frjálsa verzlun og frjálst
framtak.
Vcrzlunarráð íslands,
Laufásvegi 36,
Reykjavík. Sími 11555.
Skrifstofan er að Hagamel 4,
sími 26850.
V erzlunarmannaf élag
Reykjavík.
©
KAUPMANNASAMTÖK
ÍSLANDS
Marargötu 2.
Símar 19390-15841.
FÉLAC ÍSLENZKRA
STÓRKAUPMANNA
er hagsmunafélag stórkaupmanna
innflytjenda og umbo&ssala.
FÉLAC iSLENZKRA STÓRKAUPMANNA
TJARNARCÖTU 14 -- REVKJAVÍK — SÍMI I0G50.
28
FV 10 1977