Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1977, Page 21

Frjáls verslun - 01.10.1977, Page 21
Decca Radar Ltd Hefur selt 75 þús. radartæki um allan heim síðan 1949 IVIörg fullkomnustu skip íslenzka flotans búin Decca tækjum I tímariti Dccca Kadar Ltd. í London, sem Scann er nefnist, var í vetur birt litmynd af togaranum Guðmundi Jónssyni sem Slippstöðin á Akureyri smíðaði, og þess getið, að skipið væri búið Decca- radar bæði 3 cm og 10 cm ásamt Decca Navigator og Trackplotter auk Loran C. Það er greinilegt, að Decca telur sér heiður og sóma af því að geta um þessa framleiðslu sína um borð í „fullkomnasta vciðiskipi, sem smíðað hefur verið á Islamdi“ eins og það er orðað. Decca Radar var stofnað árið 1949 en í fjögur ár þar á undan hafði fyrirtækið Decca Navi- gator Co. verið starfandi og unnið að þróun radíomiðunar- búnaður. Þessi fyrirtæki vinna náið samani og hafa með tíman- um framleitt allar tegundir af elektrónískum siglingatækjum, sem algengt er að nota á sjó. FRUMSMÍÐI í ÍSLENSKT SKIP Saga skiparadarsins er svo til samtengd sögu Decca Radar Ltd. þó að fyrirtækið væri að vísu ekki algjör þrautryðjandi á sínu sviði. Hjá Decca í Lond- on hittum við að máii P. Daone, forstjóra útflutningsdeildar, sem skýrði okkur frá því að forveri Decca, fyrirtækið Cossor 'hefði smíðað radartæki í skip árið 3 947 og var nýsköpunar- togarinn Ingólfur Arnarson fyrsta fiskiskipið, sem fékk slíkt tæki. Cossor hefur hætt framleiðslu á radartækjum og má það skrifast á reikning sam- keppninnar frá Decca, sem ár- ið 1949 setti á markað nýjan radar, svokallaðan Type 159, sem þegar hlaut mikla viður- kenningu iþar eð ihann var minni, traustari og ódýrari. Síð- an hefur þessari tækni fleygt fram í áfönigum með tilkomu nýrra tækja fyrir smábáta, sér- stakra gerða radara til að forð- ast árekstra, radara, sem sýna Nýjustu gerðir radara frá Decca á meðal tækjabún- aðar í far- skipi. raunverulega hreyfingu skipa o.s.frv. 75 ÞÚS. TÆKI SELD Fullkomnustu tækin, sem nú eru framleidd fyrir togara hafa 48 sjómilna drægi en minni tækin, sem henta smærri veiði- skipum hafa drægi að 36, 24 eða 12 mílum. Fyrir nokkrum mánuðum fögnuðu Decca-menn þeim á- fanga að hafa selt 75 þúsund radartæki. Þessi tala er senni- lega jafnhá og nemur sölu allra annarra radarframleiðenda í heiminum samanlagt. Útflutningsforstjóri Decca tók fram, að þó erfitt væri að fá nákvæmar tölur, mætti þó áætla, að Decca framleiddi um helming allra skiparadara í heiminum, en um 90% allrar framleiðslu fyrirtækisins í Bret- landi er flutt út til 76 landa. Þar að auki eru radartæki frá Decca seld til sjóherja í 80 löndum. FV 10 1977 3\

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.