Frjáls verslun - 01.10.1977, Side 23
Massey - Ferguson:
Selur um 200 dráttarvélar
árlega til Islands
Massey - Ferguson í Bretlandi hefur flutt út dráttarvélar
fyrir 1000 milljón pund síðan 1952
Flcstir Islendingar, sem komnir eru til vits og ára muna sennilega eftir gráu, litlu traktorunum,
sem fóru að ryðja sér til rúms á íslenzkum sveitabæjum á árunum upp úr 1950. Þetta var Fergu-
son dráttarvélin, sem þótti liprari í allri meðferð en aðrar t'egundir svipaðra tækja ,sem notað-
ar höfðu verið til þess tíma í sveitum á Islandi. Raunar má scgja, að þessi Ferguson dráttarvél hafi
slegið í gegn um gjörvallan heim eftir síðari heimsstyrjöldina.
Traktorar á færihandi í verksmiðju Massey-Ferguson.
Enn er nafnið Ferguson áber-
andi á tækjabúnaði í íslenzkum
landbúnaði, því að Massey-
Ferguson selur hingað til lands
um 200 dráttarvélar á ári, sam-
kvæmt upplýsingum A.F. Dawe,
blaðafulltrúa Massey-Ferguson,
sem við hittum að máli í Lond
on.
UMBOÐ HJÁ
DRÁTTARVÉLUM
Það eru Dráttarvélar, sem
haft hafa umboð fyrir Massey
Ferguson á íslandi í 28 ár og
af ýmsum tækjum til landbún-
aðarstarfa. sem fyrirtækið
framleiðir, eru það einkanlega
dráttarvélar, sem seldar eru tii
fslands. Samkvæmt upplýsing-
um þeirra í London eru það
Zetor-dráttarvélar, sem aðal-
lega keppa við Ferguson hér-
lendis og mun markaðshlutdeild
beggja vera svipuð. Það er
minnsta gerðin af dráttarvélum
Ferguson, sem aðallega er seld
til fslands, eða MF 135.
Frá þvi árið 1952 hafa Mass-
ev-Ferguson verksmiðjurnar i
Bretlandi flutt út dráttarvélar
fyrir 1000 milljón pund og er
fyrirtækið nú í 9. sæti af helztu
útflutningsfyrirtækjum í Bret-
landi.
VERKSMIÐJUR VÍÐA
UM HEIM
Massey-Ferguson er sam-
steypa með verksmiðjur víða
um heim. Framleiðslan skiptist
í þrjá meginþætti, landbúnaðar-
vélar, vélar til iðnaðar og bygg-
ingartæki og díselvélar.
Massey-Ferguson er nú
stærsti framleiðandi dráttarvéla
í hinum vestræna heimi. Per-
kins Engines, sem er eitt af fyr-
irtækjum Massey-Ferguson-sam-
steypunnar er einn helzti dís-
elvélaframleiðandi í heiminum
en af öðrum framleiðslutegund-
um samsteypunnar má nefna
garðsláttuvélar og vélsleða.
í öllum verksmiðjum Massey-
Ferguson starfa nú 68 þúsund
manns en þær eru alls 50 í 12
löndum, en séu samstarfsfyrir-
tæki talin með, sem framleiða
samkvæmt leyfum, eru það aUs
90 verksmiðjur í 30 löndum,
s:m selja tæki með merki Mass-
ey-Ferguson.
í Bretlandi starfa fimm verk-
smiðjur Massey-Ferguson og
fjórar sem framleiða Perkins
díselvélar. Sarfsmenn í þeim
eru 21 þús. talsins. Samanlagt
nam sala Massey- Ferguson í
Bretlandi og Perkins-verksmiðj-
anna 452,5 milljónum punda í
fyrra en þær fluttu út fyr-
ir 337 milljónir.
FV 10 1977