Frjáls verslun - 01.10.1977, Síða 25
Hoover - verksmiðjurnar
Hafa alls framleitt 25 millj.
ryksugur í Bretlandi
Bretar tala um að „húvera”, þegar þeir grípa til ryksugunnar
í daglegu máli í Englandi er jafnan talað um að „liúvera“ þegar farið er með ryksuguna yfir
teppi og gólf. Þannig hetur tiltekið framleiðslumerki verið yfirfært á heila athöfn þó ekki sé hún
endilega framkvæmd með tækjum af þessari ákveðnu tegund og fleiri séu um markaðinn. Það
framleiðslumerki ,sem þannig hefur fest rætur í tungutaki brezks almennings er Hoover, framleið-
endur ryksuga og fleiri gerða af heimilist'ækjum.
Við litum inn í bækistöðvar
Hoover í Greenford í Middlesex
og hittum þar að máli R.
Stroud, sölustjóra í útflutnings-
deild, en hann hefur um ára-
bil haft samband við umboðs-
aðila fyrir Hoover hér á íslandi.
Stroud tjáði okkur að salan á
Hoover ryksugum til íslands
hefði verið um 1000 ái'ið 1975
og væri markaðsstaða þeirra að
styrkjast enn. Um skeið hefði
Nilfisk sótt mjög á á íslandi en
þróunin væri að breytast Hoo-
ver í hag. Auk þess að selja
hingað ryksugur eru Hoover-
þvottavélar á markaði hér en
aðstaðan verið erfið vegna sam-
keppni frá ítölskum framleið-
endum, sem bjóða tæki á lægro
verði.
MESTI IIEIMILISTÆKJA-
FRAMLEIÐANDI
Hoover er tvímælalaust kunn-
asti ryksuguframleiðandi í
heiminum og mesti framleið-
andi, sem sérhæfir sig algjör-
lega í gerð heimilistækja. Fyr-
irtækið var stofnað fyrir 70 ár-
um í Ohio í Bandaríkjunum en
nú á það verksmiðjur í átta
löndum með 25 þúsund starfs-
mönnum. Tækin frá Hoover eru
seld hjá meir en 60 þús. verzl-
unum í fimm heimsálfum.
Hoover-fyrirtækið í Bretlandi
hefur starfað síðan 1919 og
fyrsta verksmiðja þess var reist
1932. Alls hafa verið framleidd-
ar 25 milljón ryksugur hjá
Hoover í Bretandi á þessum
f einni af
Hoover-
verksmiðj-
lUnum þar
sem steyptir
eru úr plasti
hlutar í
nýju ryk-
sugurnar.
tíma og árleg framleiðsla nú
er um 1,7 milljón stykki.
SELT TIL MEIR EN
100 LANDA
Útflutningsfyrirtæki Hoover,
eða Hoover Export Ltd. er
stærsta útflutningsfyrirtækið á
sínu sviði í Bretlandi og annast
það sölu til meir en 100 landa
en um 40% af allri framleiðslu
Hoover í Bretlandi er flutt út.
í fyrra seldi Hcover Export
meir en 85% af öllum ryksug-
um og bónvélum, sem fluttar
voru út frá Bretlandi og reynd-
ar flytur Hoover meira út af
sinni framleiðslu en nemur út-
flutningi allra þýzkra framleið-
enda á þessu sviði, en Þjóðverj-
ar eru næst stærstir sem ryk-
suguframleiðendur í heiminum.
FV 10 1977
35