Frjáls verslun - 01.10.1977, Blaðsíða 27
British Leyland
IVIesta útflutningsfyrirtæki
Breta
Hefur um 160 þús. manns í vinnu
*«<•
Vörubíll frá British Leyland með sérstökum gröfubúnaði.
Bílar frá British Leyland cru
nctaðir í 174 löndum heims', —
vörubílar, fólksbílar og almenn-
ingsvagnar. Um 80% af MG.
Triumph og Jaguar-sportbílum,
sem framleiddir eru í Bretlandi
cru scldir í Bandaríkjunum og
Kanada. Land Rover bílarnir
hafa verið fluttir út til næstum
allra landa heims fyrir um 700
milljcnir sterlingspunda.
íslendingar kannast vel við
framleiðslu frá British Leyland
eins og Land Rover bílana, sem
hafa um árabil komið í stað
þarfasta þjónsins á íslenskum
bújörðum og á seinni árum
orðið æ eftirsóttari ferðabílar
til notkunar i byggðum og ó-
byggðum. Leyland-vörubílar
eru nú fluttir til landsins í vax-
andi mæli og Strætisvagnar
Kópavogs hafa keypt nokkra
Leyland-almenningsvagna til
notkunar í leiðakerfi sínu. Um-
boðsaðili fyrir Leyland-verk-
smiðjurnar hér á landi er P.
Stefánsson h.f.
VERKSMIÐJUR í 43
LÖNDUM
Leyland rekur verksmiðjur i
43 löndum og þannig er til
dæmis samsetningarverksmiðja
fyrir vörubíla í Danmörku.
Annars er það fólksbílafram-
leiðslan, sem er umfangsmesti
þátturinn í starfsemi fyrirtæk-
isins eða um 70% og starfa nú
120 þús. manns í 36 verksmiðj-
um víðsvegar um Bretland, sem
fólksbilana smíða. Eru það teg-
undirnar Austin, Morris, MG,
Mini, Rover, Jaguar, Daimler,
Triump og Vanden Plas.
Alls starfa í verksmiðjum
Leyland um 160 þús. manns í
Bretlandi og 25 þús. i öðrum
löndum. Fyrirtækið er stærsti
útflytjandi í Bretlandi og hef-
ur sala til útlanda numið um
fimm og hálfum milljarði sterl-
ingspunda af heildarsölu fyrir-
tækisins síðan 1968, en hún
nemur 11.400 milljónum punda.
Brezka rikið á nú 95% í
British Leyland en hin 5% eru
í eigu 103 þús .hluthafa. Þess-
vegna eru stjórnendur fyrirtæk-
isins ábyrgir bæði gagnvart
brezkum stjórnvöldum og
fjölda annarra hluthafa.
RÍKISFRAMLÖG
Framlög ríkisins til styrkt-
ar verksmiðjum Leyland hafa
skapað bættan rekstursgrund-
völl fyrirtækisins. sem starfar
í harðri samkeppni við aðra
bílaframleiðendur um heim all-
an. Önnur aðalfyrirtæki í Ley-
land-samsteypunni eru Leyland
Truck and Bus, sem starfrækir
12 stórar verksmiðjur með 29
þús. starfsmönnum. Leyland
Special Products er annað fyr-
irtæki, sem smíðar ýmis konar
þungavinnuvélar og hernaðar-
tæki, það hefur 12 þús. manns
i vinnu í 16 verksmiðjum í
Bretlandi. Leyland Internation-
al er svo sérstakt fyrirtæki, sem
annast þjónustu við önnur
lönd og hefur umsjón með
rekstri verksmiðja Leyland er-
lendis.
Þess má að lokum geta, að
fulltrúi frá Leyland Truck and
Bus hefur verið nýlega hér á
landi á vegum P. Stefánssonar
h.f. Verkefni hans var að skipu-
leggja þjónustu við eigendur
Leyland-vörubíla og fór hann
þeirra erinda út á land m.a.
Leyland-vörubílar og almenn-
ingsvagnar verða á bílasýning-
unni miklu, sem haldin verður
i Reykjavík á næsta vori.
FV 10 1977
37