Frjáls verslun - 01.10.1977, Page 29
Peter Boon, stjórnarformaftur Hoover
Takið málstað Bretlands!
Vitnað í nokkrar upplýsingar í bæklingi, sem hann hefur gefið
út til að sýna fram á forystuhlutverk Breta á ýmsum sviðurn
Sííiasta áratug hafa Bretar átt' við mikla efnahagsörðugleika að glíma og almenningur þar í
landi virtist hafa misst trúna á framtíðina, þegar vinnudeilur lömuðu framleiðsluna og órói á
vinnumarkaðin,um var í hámarki. Erlendis var þessu lýst þannig, að Bretland, þetta fyrrverandi
stórveldi stæði nú frammi fyrir meiriháttar uppgjöri og brezka bjóðin yrði að átta sig á breyit'tum
aðstæðum. Því væri ekki lengur að heilsa, að Bretland gæti lifað á nýlendum eins og forðum og
raunar væri enginn grundvöllur fyrir viðgangi forysturíkis á Bretlandseyjum. Þeir voru ófáir Bret-
arnir, sem tóku undir þetta.
Ekki hafa 'þó allir getað sætt
sig við þennan söng og er Pet-
er Bonn, formaður stjórnar
Hoover-verksmiðjanna einn
þeirra. Hann tók sig til og gaf
út smápistil ,,Speak Up For
Britain“ með upplýsingum um
fyrri afrek Breta á hinum
ýmsu sviðum og greinargerð
um stöðu einstakra málaflokka
nú. Hann segir m.a.:
§ Eitt fremsta
i&nríki heims
Bretland er eitt fremsta iðn-
ríki heimsins og meiriháttar út-
fly tj andi verksmiðj uframleiddr-
ar vöru svo sem bíla, raf-
magnstækja og annarra véla,
efnaicnaðarvöru, vefnaðarvöru
og háþróaðra tækja á sviði flug-
vélaiðnaðarins og rafeindaiðn-
aðar.
Staðreynd: Af 20 stærstu iðn-
aðarsamsteypum í Evrópu eru
fimm, þar á meðal sú stærsta,
í Bretlandi.
Staðreynd: Um 42% allra
vinnandi manna í Bretlandi
starfa í framleiðsluiðnaði,
námaiðnaði og byggingariðnað-
inum.
Staðreynd: Framleiðsla á
hvern starfsmann í iðnaðinum
hefur aukizt um 9% síðan
1970 og í verksmiðjuiðnaðinum
um 12%.
Og það er ekki aðeins þunga-
iðnaðurinn, sem sýnir framfar-
ir. Brezki matvælaiðnaðurinn
er annar stærsti í heirni. Árið
1975 jókst útflutningur hans
um 16% frá fyrra ári. Kexfram-
leiðsla Breta nýtur sérstakra
vinsælda erlendis og þannig
seldist sex sinnum meira af því
árið 1975 en árið áður.
Staðreynd: Árið 1975 fluttum
við út súkkulaði og konfekt
fyrir meira en 90 milljón pund,
te fyrir 31 milljón og 21%
aukning varð í útflutningi á
sterku öli.
0 Vinnustöðvanir
„Nei, það er ekki rétt, sem
við Bretar segjum um sjálfa
okkur“, heldur Peter Boon á-
fram. „Það heyrir til undan-
tekninga fyrir flesta okkar að
fara í verkfall. Flestir átta sig
ekki á því að vinnustöðvanir í
Bretlandi eru fáar miðað við
önnur lönd.
Staðreynd: Fjöldi vinnustöðv-
ana fyrstu sex mánuði ársins
1976 var lægri en nokkru sinni
á jafnlöngum tíma síðan 1953.
Staðreynd: Skýrslur sýna að
á þriggja ára tímabili 1971 til
1973 kom aldrei til vinnustöðv-
unar í 98% af öllum verk-
smiðjum í Bretandi.
Það var þegar árið 1875 að
samningar milli atvinnurekenda
og launþega voru uppteknir í
Bretlandi, friðsamlegar kröfu-
aðgerðir verkalýðsfélaga leyfð-
ar.
FV 10 1977
39