Frjáls verslun - 01.10.1977, Blaðsíða 43
Fjölmiðlun í Bretlandi
Brezka útvarpið og frétta-
stofur aðalheimildir erlendra
frétta á íslandi
Rætt við fulltrúa AP, Reuters og Visnews
Islenzkir fjölmiðlar hafa lengi flutt íslenzkum almcnningi fréttir af viðburðum erlendis sam-
kvæmt heimildum frá London — fróftastofu Reuters og brezka útvarpinu. Fyrir svo sem hálfum
öðrum áratug bættist fréttastofan Associated Press í kópinn en hún er í rauninni bandarísk með
útibúi í London, sem íslenzk blöð og ríkisfjölmiðlar hafa samband við. Til viðbótar þessu hefur
sjcnvarpið haft náin sambönd við brezkar sjónvarpsfréttastofur, sem bafa fréttakvikmyndir til
dreifingar eins og UPITN og Visnews.
Umsjónarmenn útvarps BBC á arabísku. Brezka útvarpið sendir
um allan heim á ensku og á erlendum tungumálum.
Brezk blaðamennska eins og
hún gerist bezt, hefur jafnan
þótt til fyrirmyndar og Bretar
hafa haft orð á sér fyrir að
leyfa fjölmiðlum að starfa
frjálslega án opinberrar hnýsni
og afskiptasemi. Þetta hefur ef-
laust átt mikinn þátt í að öflug-
ar fréttastofur, sem fjölmiðlar
um allan heim telja sig geta
treyst fyrir áreiðanleik, hafa
risið í London, fyrir utan þau
ágætu ytri skilyrði, sem slíkar
stofnanir njóta með því að
starfa í heimsmiðstöð eins og
þessi borg hefur lengi verið.
IIEIMSÞJÓNUSTA BBC
Mjög oft vitna íslenzkir fjöl-
miðlar í fréttir brezka útvarps-
ins í frásögnum af erlendum at-
burðum. Brezka útvarpið BBC
sendir út fréttir og annað út-
varpsefni til allrar heimsbyggð-
arinnar ýmist á ensku eða fjöl-
mörgum öðrum tungumálum,
sem notuð er í útvarpssending-
um til einstakra landa. Frétta-
menn BBC starfa víða um
heim en sífellt verða fleiri ljón
á vegi þeirra í starfinu og sam-
kvæmt síðustu athugunum
munu það aðeins vera 30 af
143 ríkjum í Samtökum sam-
einuðu þjóðanna, sem virða
frelsi til upplýsingamiðlunar i
raun og sannleika. í Asíu eru
aðeins örfá lönd opin vestræn-
um fréttamönnum og hefur á-
standið í þeirri heimsálfu stór-
versnað eftir að striðinu í Indó-
kína lauk. Fréttamönnum hefur
verið gert erfiðara um vik í
ýmsum löndum Afríku og það
gerist æ algengara að þeim sé
vísað úr landi fyrir að segja
réttar fréttir af atburðum þar
syðra. Svona eru aðstæður til
öflunar frétta, en íbúa sömu
heimssvæða þyrstir í tíðindi og
fróðleik eins og kannanir benda
til. Mikið er hlustað á sending-
ar brezka útvarpsins um heirn
allan og á það ekki sízt við
um austantjaldslöndin.
LITLAR BREYTINGAR
EFTIR HELSINKI
Starfsmenn BBC hafa ekki
getað merkt breytt andrúms-
loft í A-Evrópu þrátt fyrir
Helsinki-sáttmálann. Gestir frá
kommúnistaríkjunum hafa oft-
FV 10 1977
5:i