Frjáls verslun - 01.05.1979, Blaðsíða 15
ordspor
Flugleiðir standa nú í viðræðum við ný-
stofnað flugfélag, sem mun fljúga á miíli
Chile og Bandaríkjanna. Er hugsanlegt
að Flugleiðir taki að sér bókunar- og
farskrárþjónustu fyrir þetta félag og að
tengslin þróist upp í að verða þau sömu
og við Air Bahama. Þá er einnig verið að
ræða um leiguflug í vetur fyrir aðila, sem
flýgur á milli Bandaríkjanna og eyja í
Karabiska hafinu. Flug til nýrra áfanga-
staða er mjög á dagskrá hjá Flugleiðum.
Þar er Cinncinatti í Ohiofylki í Banda-
rikjunum efst á blaði. Þaðan hefur verið
mikið um leiguflug til Evrópu en erfitt
með áætlunarflug
•
Menn eru stöðugt að spá í það, hver verði
ambassador íslands í Kaupmannahöfn
síðar á þessu ári og taki við embœttinu af
Agnari Kl. Jónssyni, sem nú lœtur af
störfum í utanríkisþjónustunni fyrir ald-
urssakir. / vetur bar nafn Magnúsar
Torfa ólafssonar hátt i þessu sambandi.
Gylfi Þ. Gíslason hefur líka verið talinn
líklegur og síðast heyrðum við Einar
Agústsson nefndan. Þá er því við að bœta,
að nokkrir starfsmenn utanríkisráðu-
neytisins með ambassadorstitil eru starf-
andi hér í ráðuneytinu og koma að sjálf-
sögðu til greina.
Nýlega var auglýst til umsóknar starf
forstöðumanns lista- og skemmtideildar
sjónvarpsins. Þegar þetta er ritað er um-
sækjendalistinn orðinn alllangur í munn-
mælum. Við höfum fregnað að Hinrik
Bjamason, framkvæmdastjóri Æsku-
lýðsráðs Reykjavíkur, muni vera meðal
þeirra, sem ætla að skila umsókn fyrir 1.
júni og sé hann manna líklegastur til að
verða fyrir valinu. Hinrik hefur numið
sjónvarpsfræði, var fyrsti umsjónarmað-
ur bamatíma sjónvarpsins, er forystu-
maður í félagi kvikmyndagerðarmanna
og hefur auk þess mikla reynzlu í stjóm-
unarstörfum hjá Reykjavíkurborg.
•
Veltir hf. hefur náð geysigóðum árangri í
sölu Volvo-bíla hér á landi og þykja bíl-
arnir henta mjög vel íslenzkum aðstœð-
um. Samkeppnisaðilar í bílaverzluninni
líta nokkrum öfundaraugum til Veltis á
stundum og hafa sinar skýringar á þessum
góða árangri. Sumir tala um Volvo-eig-
endur sem sértrúarsöfnuð. Einn bílainn-
flytjandi var nýlega spurður um galdurinn
við sölu Volvo hér á landi. Hann svaraði
einfaldlega: „Lestu nafnið afturábak. “
•
Mjög lítið framboð verður á lóðum til
íbúðarhúsabygginga á þessu ári í
Reykjavík. Hins vegar eru horfur á að
mikill slagur geti orðið um nokkrar lóðir
inni í borginni, sem skipulagsaðilar eru
nú að gera ráð fyrir til þéttingar byggðar.
Er Laugardalssvæðið þar með i myndinni
og eins svæði innar við Suðurlands-
brautina nálægt Skeiðarvogi.
•
Nú virðist nýtt tímabil vera að renna upp
hjá Flugleiðum. Sigurður Helgason, sem
nú er einn forstjóri hefur hafið skipulags-
og mannabreytingar og mun hann sveifla
öxinni víða. Öll ákvarðanataka stjórn-
enda Flugleiða hefur fram til þessa verið
seinvirk og tafsöm, en starfsmenn fyrir-
tœkisins segja að nú dynjiyfir þá ákvarð-
anaregn.
Um þessar mundir standa yfir breytingar
á SAAB umboðinu. Sveinn Bjömsson,
sem stofnaði umboðið er nú að draga sig
út úr því en við taka fyrrverandi eigin-
kona hans og böm. Fyrirtækinu verður
gefið nýtt nafn og mun það heita Töggur
h.f.
15