Frjáls verslun - 01.05.1979, Side 27
Á þennan hátt verður nýtingartími
upphaflegu fjárfestingarinnar oft
mjög stuttur auk þess sem gagn-
gerra breytinga kann að vera þörf í
vinnsluháttum. Þetta hefur Wang
leyst á mjög athyglisverðan hátt
þannig að það sem keypt er í upp-
hafi, þ.e. af grunnþúnaði, má alltaf
stækka og aðlaga að breytilegum
þörfum. Þannig nýtist upphaflega
fjárfestingin að fullu. Þannig getur
fyrirtæki byrjað með tölvutæki frá
Wang sem uppkomin kosta ein-
ungis um 2,5 millj. kr. nú í byrjun
maí.
Siöan má bæta við þennan
tölvubúnað ýmsum jaöartækjum
frá Wang þar til byggt hefur verið
upp kerfi sem annað getur öllum
tölvutækum verkefnum í rekstr-
inum. Þá erum við að tala um
kjarnatölvu, diskadrif, vinnsluút-
stöð eða skerma ásamt prentara.
Með þessu móti er hægt að láta
tölvuna skrá viðskiptamannabók-
haldið auk þess sem hún prentar
jafnóóum út reikninga, nótur og
yfirlit yfir stöðu viðskiptaaðila. Það
er einnig talsvert atriði að Wang
útstöðvar má tengja fjartölvu um
símalínu."
Hugbúnaðurinn til staðar
Ólafur sagði það vera eina af
aðalástæðunum fyrir því hvað
þeim hefði gengið vel að selja
Wang tölvurnar hérlendis, að þeir
hjá Heimilistæki sf hefðu á boð-
stólum fullkominn hugbúnaö, þ.e.
forrit fyrir verzlunar- og iðnfyrir-
tæki svo sem fjárhags- og við-
skiptamannabókhald auk birgða-
halds. Forrit fyrir lifeyrissjóði hafa
þeir einnig á boðstólum og Ólafur
nefndi að forrit fyrir sveitarfélög
væru til fyrir Wang, þau væru að
vísu ekki unnin af tölvudeild þeirra
en gjarnan væri bent á Siglufjarð-
arbæ og Neskaupstað í því sam-
bandi.
Ólafur sagði það vera jafnvel
meira atriði að forritin væru til
staðar, — sjálfar tölvurnar lentu í
öðru sæti. Þetta væru aðilar við-
skiptalífsins að uppgötva. Út-
stöðvar frá Wang eru tvenns kon-
ar. Annars vegar eru skermar
hinsvegar sambyggður skermur
og tölva sem nefnist Wang
PCS-11.
PCS-11 er með 8K minni og 90 K
geymslu á diskdrifi, skerm og
lyklaborð eins og gerist á venju-
legum ritvélum auk talnalykla.
Hægt er að tengja prentara inn á
auk þess sem hægt er að bæta við
allt uppí 64 K minni og auka
geymslu uppí 180 K. PCS-11 er
einnig hægt að tengja við miðtölvu
um símalínu. Forritin eru á BASIC
sem gerir notanda kleift að búa til
sín eigin forrit. PCS-11 er notuð á
mörgum sviðum, t.d. bílasölum,
við læknarannsóknir, hjá trygg-
ingasölum og jafnvel á byggingar-
stöðum.
Tölvur auðvelda störfin
Við báðum Ólaf að lýsa í stuttu
máli þeim búnaði sem algengast
væri að íslenzk fyrirtæki hefðu
áhuga á og þyrftu á að halda.
Hann sagði að það væri varla
hægt þar sem þarfir fyrirtækja
væru mjög mismunandi. Hinsveg-
ar gætum vió tekið nýlegt dæmi
þar sem var fyrirtæki, nokkuð stórt
sem þæði er í iðnaðarframleiðslu,
innflutningi og sölu. Þeir hefðu
fengið Wang kerfi sem byggist upp
á einni miðtölvu (Central Proces-
sing Unit) sem hægt er að setja
upp í 8 K minniseiningum uppí 32
K eftir þörfum, einu 10 mb disk-
drifi, hraðvirkum prentara og
FÆREYJA FERJAN
SmyrUl
SUMARÁÆTLUN
ÍSLAND/FÆREYJAR /SKOTLAND/NOREGUR v.v.
Koma Brottf. 1 2
Seyöisfj. Laugard. 20:00 2/6
Þórshöfn Sunnud. 14.00 23:00 3/6
Scrabster Mánud. 13:00 16.00 4/6
Þórshöfn Þríöjud. 06:00 5/6
Þórshöfn Miövikud. 13:00 6/6
Bergen Fimmtud. 12.00 15:00 7/6
Þórshöfn Föstud. 16:00 23:59 1/6 8/6
Seyóisfj. Laugard. 18:00 2/6 9/6
3456789 10
9/6 16/6 23/6 30/6 7/7 14/7 21/7 28/7
10/6 17/6 24/6 1/7 8/7 15/7 22/7 29/7
11/6 18/6 25/6 2/7 9/7 16/7 23/7 30/7
12/6 19/6 26/6 3/7 10/7 17/7 24/7 31/7
13/6 20/6 27/6 4/7 11/7 18/7 25/7 1/8
14/6 21/6 28/6 5/7 12/7 19/7 26/7 2/8
15/6 22/6 29/6 6/7 13/7 20/7 27/7 3/8
16/6 23/6 30/6 7/7 14/7 21/7 28/7 4/8
11 12 13 14 15 16 17
4/8 11/8 18/8 25/8 1/9 8/9 15/9
5/8 12/8 19/8 26/8 2/9 9/9 16/9
6/8 13/8 20/8 27/8 3/9 10/9 17/9
7/8 14/8 21/8 28/8 4/9 11/9 18/9
8/8 15/8 22/8 29/8 5/9 12/9 19/9
9/8 T6/8 23/8 30/8 6/9 13/9 20/9
10/8 17/8 24/8 31/8 7/9 14/9 21/9
11/8 18/8 25/8 1/9 8/9 15/9
FERDASKR/FSTOFAN
URVAL
vió Austurvöll
simi 26900
Úrval óskar þér gleðilegs ferðaárs 1979
27