Frjáls verslun - 01.05.1979, Page 33
CANON BX-1. f einu tæki, tölva, diskdrif og prentari.
SkrifvéHn :
Canon BX-1 tölva fyrir
smærri fyrirtæki
Skrifvélin, Suðurlandsbraut 12,
kynnti nýlega nýja smátöivu frá
Canon. Hún kallast BX-1. Þessi
tölva er á stærð við meðalritvél. I
þessu eina tæki er sambyggt
tölva, prentari og diskettudrif.
Forrit eru á „Canon Extended
BASIC“ og eru upplýsingar og
forrit geymt á stökkdiski (floppy
disk).
Innsláttarborðið er skipulega
uppbyggt og þarf aðeins einn
áslátt fyrir hverja skipun. Prentar-
inn skrifar 80 stafi eða tákn í hverja
línu og með honum er hægt að láta
tölvuna vinna línurit. Pappírinn er
hægt að færa bæði upp og niður.
Geymslurými á diskettustöð er
71,7 K byte og er hægt að geyma
45 mismunandi forrit á hverri
diskettu. Ljósaborð er með 16
stöfum. Hámarksskrefafjöldi í for-
riti er 9999 skref.
Þótt Canon BX-1 sé ekki fyrir-
ferðarmikið tæki er næsta ótrúlegt
hve mikla möguleika hún skapar
þeim sem notar hana. Tölvan sjálf
kostar nú í byrjun maí 79 aðeins
um 2 millj. kr. og er það veruleg
verðlækkun fyrir búnað meö sam-
bærilegum möguleikum.
Hentar víða
Hægt er að tengja margvísleg
jaðartæki við Canon BX-1, t.d.
skerm, aukaprentara, diskettustöð
með 1 M byte minni auk fjölda
annarra tækja sem byggjast á RS-
232-C (V-24) milliboðun (inter-
face).
Þessi smátölva hentar víða og
getur gjörbreytt vinnuaðstöðu í
mörgum smærri fyrirtækjum. Hún
er ekki dýrari en það, að t.d.
smærri verkfræöistofur ráða við
að kauþa hana og þar yrði hún
ennfremur fljót að borga sig. Tölv-
an getur annast alla verkfræðilega
útreikninga, hún gerir línurit,
skrifar út reikninga, getur geymt
fyrri útreikninga, t.d. burðarþol
auk þess sem hægt er að nota
hana sem skráningartæki fyrir
teikningar. Teikningalistar geta
verið inni á minni og hægt að kalla
fram númer og geymslustað
teikninga fyrir ákveðin verkefni,
eða ákveðna viðskiptavini. Með
BASIC málinu er auðvelt að forrita
smærri verkefni, t.d. í sambandi
við kostnaðaráætlanir, verkáætl-
anir eða tilboðagerð þannig að
tölvan geti sýnt mismunandi
niðurstööur ákveöinna valkosta,
eða áætlanir byggðar á mismun-
andi forsendum. Þetta er talsvert
atriði fyrir þá tæknimenn sem
starfa að tilboðaútreikningi, annað
hvort hjá verkfræðistofum eða
verktökum.
Fyrir heildsölu- eða verzlunar-
fyrirtæki hentar BX-1 til þess að
vinna verðútreikninga, tollreikning
og lagerskráningu auk þess sem
tölvan skrifar út reikninga, reiknar
söluskatt og geymir, reiknar laun
o.fl. o.fl. BX-1 er einnig hægt að
nota til þess að halda skrá yfir við-
skipti einstakra kaupenda og fær
þá notandinn útskrift yfir stööu
hvers viðskiptavinar þegar hann
óskar. Að sjálfsögðu er einnig
hægt að nota Canon BX-1 í bók-
haldi.
33