Frjáls verslun - 01.05.1979, Page 36
boðið stöðluð forrit. Vissulega
væru B 80 tölvurnar þannig aö
notandinn gæti búið til forrit sjálf-
ur. Það væri yfirleitt svo mikil vinna
að ef þau væru til borgaði sig í öll-
um tilvikum að kaupa þau í stöðl-
uðu formi og aðlaga síðan að
þörfum fyrirtækisins.
Einingakerfi
Það nýjasta frá Burroughs eru
skermar með 64 K minni, raunar
sjálfstæðar tölvur sem geta unnið
margvísleg verkefni. Áki gat þess
til merkis um þróunina á þessu
sviöi að minniseiningin hefði
lækkað svo mikið í verði á undan-
förnum árum, að þessir skermar
væru með sama minnisrými og
tölva Mjólkursamsölunnar, en hún
hefði verið með stærri tölvum
þegar hún var tekin í notkun
73/74.
Þannig mætti fá tölvu nú með
500-1000 K minni fyrir sama verð
og 64 K kostaði fyrir 5 árum síðan.
Þar að auki sagði Áki að verð á
tölvutækjum hefði lækkað veru-
lega á síðustu árum. Þetta nýja
tölvuskermakerfi fra Burroughs
(Modular Terminals) er þannig
uppbyggt að hægt er að raða
saman tækjum sem uppfylla ná-
kvæmlega fjölbreyttustu kröfur
notenda. Við þessa skerma má
tengja svo til hvaða jaöartæki sem
er auk þess sem hægt er að tengja
þá viö kjarnatölvu, annaðhvort á
staðnum eða fjarlæga um síma-
línu.
Með þessum nýju tækjum opn-
uðust möguleikar fyrir smærri
fyrirtæki, sem þannig gætu not-
fært sér tölvutæknina fyrir mun
minni stofnkostnað en áður hefði
verið hægt. Með skermtölvunum
mætti síðan byggja upp fullkomið
tölvukerfi stig af stigi eftir því sem
efnahagur leyfði eða þörfin eykst.
Þannig mætti þyrja með eina
skermtölvu og nota hana fyrir
bókhaldsvinnslu, síðan mætti
bæta viö sjálfvirkum prentara og
nota tölvuna fyrir birgðahalds-
skráningu og söluskipulag og
þannig koll af kolli.
Aco hf mun sýna þessar raðein-
ingar og annan tölvubúnað á al-
þjóðlegri vörusýningu sem haldin
verður í Laugardalshöllinni seinni
hluta sumars en eins og er vinnur
fyrirtækið að gagngerri endur-
skipulagningu söludeildar og
hyggst beita skipulagðri sölu-
kynningu meöal íslenzkra fyrir-
tækja á næstunni.
SMURSTÖÐIN
Hafnarstræti 23
Er í hjarta borgarinnar
Smyrjum og geymum bílinn á
meðan þér eruð að versla
36