Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1979, Page 39

Frjáls verslun - 01.05.1979, Page 39
inní tölvunni verða upplýsingar um símtæki og bilanir. Þegar gera þarf nýja símaskrá verður hún keyrð af diskum inn á band sem síðan er hægt að afhenda prentsmiðjunni til setningar. Mogginn í Digital tölvu Morgunblaðið er meó tölvukerfi frá Digital. Þaö er notaö við upp- röðun efnis og skipulag blaðsins. Þeir raða efninu upp á skermum þar sem þeir hafa síðuna fyrir framan sig. Komi einhver ný stór- frétt inn á síðustu stundu er á augabragði hægt að breyta t.d. forsíöunni, þannig að efni færist til. Tölvan getur geymt greinar í dálkasetningu inni á diski og hve- nær sem er má taka þær fram og raða inn á síðu. Það er gert á skerminum og tölvan jafnar á sjálfvirkan hátt efninu niöur í dálka og hefur samtímis yfirsýn yfir allar síður blaðsins. Það gefur auga leið að fyrir blaðamenn og aðra starfs- menn blaðsins eru þetta mun þægilegri vinnubrögð auk þess sem það gefur blaðinu meiri möguleika til þess aö vera í mynd- un fram á síðustu stundu, ef svo má að orði komast. Þessi tölva hjá Morgunblaöinu er síðan tengd beint við offsetvél þannig að blaðið er sett beint af skerminum, án þess að pappírinn sé þar milliliður. á þennan hátt er vinnan einfölduð og gerð mun ör- uggari. Sparisjóðurinn í Keflavík Þá má nefna að Sparisjóðurinn í Keflavík er með nokkuð öfluga tölvu frá Digital og hefur í hyggju að nota þá vél bæði til að þjóna sínum þörfum og sinna viðskipta- aðila. Þannig gætu t.d. sveitarfé- lögin, frystihús og önnur fyrirtæki tengst þessu tölvukerfi spari- sjóðsins um útstöð sem notar símalínu. Þarna er um það að ræða að í einu byggðarlagi geta mörg fyrir- tæki notað þjónustu sem er sam- bærileg við það aö nota eigin tölvu. Til þess aö tengjast þessu tölvuneti sparisjóðsins þurfa fyrir- tækin að leggja út í 2-3 millj. kr. fjárfestingu, sem er ekki mikið fé nútildags miðað við þá byltingu sem slíkt hefur í för með sér fyrir fyrirtækin. Sparisjóðurinn í Kefla- vík hefur síðan kerfisfræðing á sínum snærum, sem aðstoðar fyrirtækin við gerð eða aðlögun forrita. Hin hliðin á þessu máli er aó sjálfsögðu sú, að vegna þess hve tölvur eru orönar afkastamikl- ar skapast möguleikar á því að nýta þær mun betur með því móti að bjóða öðrum aðgang að þeim eins og Sparisjóðurinn í Keflavík gerir. Fyrir bragðið er hann kom- inn með fullkominn tölvubúnað sem annar öllum þörfum spari- sjóðsins, auk þess sem önnur fyrirtæki geta nýtt tölvuna á hag- kvæman hátt. Þessi tölvukerfi eru þannig uppbyggð, að hver aðili, sem notar þau um símatengda útstöð, er meðhöndlaður eins og sjálfstæð eining. Það er ekki hægt fyrir einn aðila að komast inn í verkefni annars eða nota geymdar upplýsingar annarra. Þegar not- aðar eru útstöðvar með minnis- rými og vinnslugetu er nánast enginn munur á því fyrir fyrirtæki að vera tengd kjarnatölvu um símalínu og hafa yfir eigin tölvu- búnaði að ráða, nema að það fyrr- nefnda er mun ódýrara og hag- kvæmara í rekstri.“ Verzlunarbankinn Auk annarra aðila sem Frosti Bergsson nefndi þá notar Verzlunarbankinn Digital tölvu. Það er nokkuð stórt kerfi þar sem unnin eru öll hefðbundin banka- verkefni svo sem víxlar, spari- sjóðsbækur, innheimtur o.fl. o.fl. f tölvudeildinni hjá Skagfjörð. Verzlunarbankinn er hinsvegar með sína tékka í vinnslu hjá Reiknistofnun bankanna. Þá er Lífeyrissjóður verzlunar- manna með Digital tölvubúnað. Þar er unnið dæmigert bókhalds- verkefni eftir forriti sem unnið var af starfsmönnum Kristjáns Ö. Skagfjörö eftir óskum Lífeyris- sjóðsins, sem sjálfur skipulagði forritið og er það nú talið vera eitt fullkomnasta forritið fyrir lífeyris- sjóð hér á landi. Það var Pétur Blöndal fram- kvæmdastjóri lífeyrissjóðsins sem stjórnaði því verkefni. Framkvæmdasjóður — Fram- kvæmdastofnun ,,Þetta eru orðin það mörg kerfi sem við höfum sett upp, að það er ómögulegt að telja þau öll upp", segir Frosti. ,,Það má að lokum nefna nokkuð öflugt Digital tölvu- kerfi sem Framkvæmdasjóður ís- lands á og rekur en það er einnig notað af Byggðasjóði, Þjóðhags- stofnun og öðrum deildum Fram- kvæmdastofnunar ríkisins. Þeir nota tölvuna til þess að hafa yfirlit yfir öll lán bæði innlend og erlend, afborganaeftirlit og yfirleitt allt sem svo stórar lánastofnanir þurfa að hafa á reiðum höndum. Að lokum vil ég benda á að viö bjóðum fjölbreytt úrval staðlaðra forrita með okkar tölvum auk þess sem við höfum skipulagt þjón- ustukerfi uppá að bjóða." 39
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.