Frjáls verslun - 01.05.1979, Side 41
Skrifstofutækni hf. :
Otivetti - tölvur -
D TSgreiðslureiknar
Hjá Skrifstofutækni hf. hittum
vió aö máli þá Stefán Ingólfsson
framkvæmdastjóra og Svein Á.
Lúðvíksson, sölustjóra. Skrifstofu-
tækni hefur selt tölvur og tölvu-
búnað í nokkur ár. Þekktasta
merkið er án efa Olivetti og hafa
þeir boðið mjög athyglisverða
smátölvu hérlendis sem kallast
P6060. Olivetti framleiðir einnig
mun stærri og afkastameiri tölvur
svo sem A5, A6, A7 og TC800 og
eru nú um 91 þúsund slíkar tölvur
í notkun í heiminum, en t.d. TC800
er útstöð eða ,,terminal“ með
mjög fullkomna sjálfstæða
vinnslumöguleika.
Nokkrar tölvur af gerðinni
P6060 eru þegar í notkun hér-
lendis. T.d. er Hitaveita Reykjavík-
ur með eina slíka og notar hana til
útskrifta á hitaveitureikningum í
Hafnarfirði og Garðabæ. Álestrar
eru færðir inn jafnóðum úr af-
lestrarbókum. Sveinn Á. Lúðvíks-
son sagði að þaö munaði miklu
fyrir Hitaveituna að hægt er að
skrá aflestra jafnóðum inn á P6060
en ekki þyrfti að bíða eftir að allur
aflestur sé kominn úr hverfunum.
Fyrir bragðið yrði innheimta Hita-
veitunnar mun virkari. Prentari
P6060 skrifar út hitaveitureikning-
ana.
Á Reyðarfirði er P6060 notuð af
GSR, en það er útgerðarfyrirtæki
með margt manna á launum. Þar
er tölvan notuö við bókhald og
launaútreikning. Einn af kostum
P6060 kemur að góðum notum í
launabókhaldi hjá útgerðarfyrir-
tækjum. Hann er sá að tölvan get-
ur hvenær sem er tekið við skrán-
ingu t.d. á fyrirframgreiðslu launa,
jafnvel þótt hún sé í allt öðru verk-
efni þá stundina. Þannig er hægt
að framkvæma fjölmörg mismun-
andi atriði eftir þörfum í stað þess
aö þurfa aö bíða eftir því að tölvan
Ijúki við það verkefni sem hún er
að vinna á hverjum tíma.
Bókhald og verkfræði
Stefán Ingólfsson sagði að Oli-
vetti P6060 væri fyrst og fremst
hönnuð með það fyrir augum að
geta jöfnum höndum framkvæmt
öll þau tölvuverkefni sem fyrirtæki
Innskriftarborð P 6060 tölvunnar
af meðalstærð þyrftu á að halda.
P6060 væri alhliða tölva (General
Purpose) og væri þannig í einu
tæki tölva, diskadrif, prentari og
grafriti (plotter). Þá væri einnig
hægt að fá fjölbreytt úrval jaðar-
tækja meö tölvunni þannig að
hægt væri að ,,klæðskerasauma“
tölvukerfi fyrir mjög mismunandi
þarfir, og það á mjög ódýran hátt.
Vegna þess að forritin eru á
,,Extended BASIC“ máli, er mjög
auðvelt að breyta og aðlaga forrit
að mismunandi þörfum, notandinn
gæti framkvæmt það sjálfur með
því aö ráöfæra sig við tölvuna, en
hún er þannig forrituð að hún
leiðir notandann stig af stigi áfram
þar til forritið er nothæft.
Stefán sagöi einnig að Skrif-
stofutækni hefði lagt á það áherzlu
að bjóða þann hugbúnað með
tölvunum sem nauðsynlegur væri
til þess aö notandinn geti nýtt
tölvuna á sem hagkvæmastan
hátt. Þeir væru með stöðluð forrit
fyrir bókhald og launaútreikning
og verið væri að vinna að forriti
fyrir tollútreikninga.
Þá mætti einnig geta þess að
Olivetti býður mjög fjölbreyttan
hugbúnað til nota við tæknileg
verkefni og þyrfti yfirleitt lítið sem
ekkert að breyta honum til þess að
hann kæmi t.d. verkfræðistofum
að fullum notum.
DTS-greiðslureiknar —
hraðvaxandisala
Sveinn Á. Lúðvíksson sagði aö
verzlunarfyrirtækin í landinu hefðu
verið fljót að taka við sér þegar
þeim stóðu til boða DTS-greiðslu-
reiknar. Fyrst framan af hefði fólk
gjarnan ruglað þessum tækjum
saman við rafeindabúðarkassa, en
það eina sem tækin hafa sameig-
inlega er peningaskúffa.
Greiðslureiknarnir eru fram-
leiddir af bandaríska fyrirtækinu
Data Terminal Systems, eða DTS.
Þeir hafa náð gífurlegri útbreiðslu í
Bandaríkjunum og í Evrópu á síö-
ustu 3—4 árum og hafa valdið
byltingu að því leyti að vinnuað-
staða afgreiðslufólks í stærri kjör-
búðum hefur gjörbreytzt til hins
betra. Á síðasta einu og hálfu ári
hefur Skrifstofutækni selt og séð
um uppsetningu á yfir 150
greiðslureiknum. Stærsti kaup-
andinn hingað til er Hagkaup í
Reykjavík.
Sveinn sagði að það væri eng-
um blöðum um það að fletta að
kaupmenn sem hefðu keypt
greiðslureikna stæöu betur að vígi
41