Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1979, Side 54

Frjáls verslun - 01.05.1979, Side 54
„Sermeq Vodka eða Greenland Vodka — yodkað, sem kom inn úr kuldanum. Vodkað, sem fær tandur- hreint bragðið djúpt undan Grænlandsjökli." Þannig hljóðaði kynning á nýrri áfengistegund, sem kom á markaðinn í Danmörku fyrir örfáum árum og fjallað var lítillega um í ritinu Danish Review, sem segir frá ýmsum nýjum útflutningsvörum dönskum. Við lásum þá grein á sínum tíma hér á Frjálsri verzlun og hugsuðum: ,,Þeir eru bjartsýnir þessir." Það gat engan veginn verið auðhlaupið að því að vinna markað fyrir nýja danska vodkategund, þar sem heimsfræg rússnesk, amerísk eða pólsk merki hafa verið ríkjandi. Að vísu datt okkur helzt í hug, að ein- hverjir sérvitringar kynnu aö hafa gaman af þessu, menn sem væru forframaðir í vínmenningunni og söfnuðu nýjum tegundum. Hvað sem þessum hug- renningum okkar leið birtist Greenland Vodka svo einn góðan veðurdag í Fríhöfninni á Keflavíkurflug- velli og í útsölum Áfengisverzlunar ríkisins. Það var greinilega búið að brjóta ísinn fyrir þetta ískalda vodka úr Grænlandsjökli og það jafnvel þúiö að ná fótfestu hér á landinu kalda. Vatn og hvönn frá Grænlandi Svo gerðist það í vor, að við vorum enn að fletta hinu merka riti Danish Review og sáum þá að fram- leiðandi Greenland Vodka var farinn að selja Kvan-- ákavíti, sem við töldum af alkunnri getspeki að myndi örugglega sverja sig eitthvað í ætt við okkar hvannarrótarbrennivín. Og það kom líka á daginn, þegar við kynntum okkur betur útlistanir framleið- andans á aðferðunum, sem notaðar eru við blöndun þessa drykkjar. Þar er þess getið, að Eiríkur rauði hafi flutt með sér hvönn af íslandi til Grænlands og ræktað hana þar enda hafi jurtin verið eitt helzta meðalið gegn algengum sjúkdómum þeirra tíma, einkanlega skyrbjúg. Nú er hvönnin flutt frá Eiríksfirði til Danmerkur, þar sem alkóhólið dregur úr henni bragðgjafa, síðan er því blandað saman við kristaltært vatnið úr ísbreið- unni inn af Narssarssuaq við Eiríksfjörð. Það er vínfyrirtækið danska, Golf Wine & Sþirit í Skovlunde fyrir utan Kaupmannahöfn, sem á þennan hátt hefur kynnt nýjar markaðsvörur sínar. Með því að höfða til ferskleikans og hreinleikans, sem þannig er tengdur óspilltri náttúru Grænlands og ísvatninu, hefur náðst undraverður árangur í sölu á þessum nýju áfengismerkjum, þrátt fyrir gífurlega samkeppni, sem fyrir var á þessum markaði. Og ef einhver skyldi halda, að vatnsflutningar frá Grænlandi væru einhver blekking, gerð í auglýsingaskyni, þá er það víðs fjarri. í stöðvum Golf Wine & Spirit sáum við stóra tanka, sem notaðir eru til þessara flutninga með skiþum Grænlandsverzlunarinnar og reikningar yfir þessi viðskipti sýna, að í fyrra borgaði fyrirtækió 100 þús. d.kr. fyrir flutninginn á um 100 þús. lítrum af bráðnum jöklum Grænlands til Kaupmannahafnar. Þeir Dines Dreyer forstjóri Golf Wine & Spirit og Olav Jensen, sölustjóri, greindu okkur svo frá, að notkun grænlenzka vatnsins gerði gæfumuninn hvað ferskleika framleiðslunnar áhrærði, en vatnið í vodkað og ákavítið er blandað vínanda áður en það er F/ytja vatn Danska vín fyrirtækið Golf Wine & Spirit hefur náð góðum árangri í sölu Sermeq- vodka, kenndu við Grænland og ákavíti með bragðbæti úr grænlenzkri hvönn. flutt frá Grænlandi til að það fúlni ekki á leiðinni. Stönglar og blöð hvannarinnar eru flutt í kæliskipum til Danmerkur. Mikill markaður í fríhafnar- verzlunum Aðalmarkaður fyrir vodka og ákavíti frá Golf Wine & Spirit er á Norðurlöndum og í Þýzkalandi. Vodkað er líka selt til Bandaríkjanna og á alþjóölegan markað 52
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.