Frjáls verslun - 01.05.1979, Page 77
Hvað var ég að selja í dag?
Sveinn Áki Lúðvíksson hjá
Skrifstofutækni hf. er í því alla
daga að selja greiðslureikna, en
það eru afgreiðslutölvur fyrir
verzlanir og fyrirtæki, framleiddar
af bandaríska fyrirtækinu Data
Terminal Systems. Þótt
DTS-greiðsIureiknar séu enn
nýjung á íslandi skipta þau fyrir-
tæki hundruðum sem þegar hafa
fest kaup á þessum tækjum. Hvað
segir sölumaður DTS-greiðslu-
reikna við væntanlega kaupendur.
Sveinn Áki hefur orðið:
Sérverzlanirnar
með sérþarfir
Ef ég er að seglja sérverzlun
DTS-greiðslureikni, verður hann
að fullnægja sérstökum þörfum
slíkra verzlana og þær geta verið
eins breytilegar og verzlanirnar
eru margar. Sumar sérverzlanir
geta sparað sér mikla vinnu með
því móti að fá nótuprentara nieð
greiðslureikninum. í stað þess að
þurfa að eyða tíma í að skrifa
nótur getur afgrieðslumaðurinn,
t.d. í byggingavöruverzlun eða á
bcnsínstöð, látið greiðslureikninn
skrifa nótuna með sjálfvirkum
prcntara þar sem vöruheitin eru
skrifuð með allt að 10 bókstöfum
með því að styðja á einn hnapp.
Byggingavöruverzlun Kópa-
vogs valdi DTS-greiðslureikni
með nótuprentara í sína bygg-
ingavöruverzlun. Esso notar
einnig greiðslureikni frá okkur á
bensínstöðinni við Borgartún og
við hann er tengdur sjálfvirkur /
nótuprentari.
Hægt er að benda á önnur
fyrirtækis em eru með dæmigerð-
ar sérþarfir þar seni DTS hefur
leyst málið. Ég nefni Hljóm-
plötudeild Fálkans hf sem dæmi:
Þeir völdu DTS-440 greiðslu-
reikni vegna þess að þeir gátu
sundurliðað plötusöluna og for-
ritað föst verð á mismunandi
plötum sem þá hafa ákveðin af-
gricðslunúmcr. Þegar plata er
seld er númerið slegið inn,
greiðslurciknirinn leitar uppi
verðið, segir hvað hún kostar og
skráir sem sölu. Þannig er hægt
að vita nákvæmlega hver salan er
eftir daginn, vikuna eða mánuð-
inn fvrir ákvcðna plötuflokka, t.d.
popp, sönglög, klassík jazz o.s.frv.
Þeir fá þannig upplýsingar um hve
margar plötur þeir selja í hverjum
flokki.
Fálkinn vildi einnig sundurliða
afslátt sein gefinn er af plötum,
t.d. hve mikill afsláttur var gefinn
í dag á poppi, klassík o.s.frv. Það
gefur auga leið að með þessu tæki
er liægt að halda uppi verulega
virkri verzlunarstjórn sem er fljót
að skila sér. DTS-greiðsluriekn-
irinn cr cina tölvan á markaðnum
sem getur gert þessa hluti án þess
að kosta incira en sæmilegur
búðarkassi.
Skrifstofutækni hf.
Tryggvagötu Rvk.
Sími 28511.
69