Frjáls verslun - 01.05.1979, Qupperneq 80
Höfn rósanna, fornar
minjar, sól og sjór
Ferðaskrifstofan Út-
sýn hefur margt að
bjóða í sumar.
Ferðaskrifstofan Útsýn býður
upp á eins og undanfarin sumur,
mjög fjölbreytta sumaráætlun 25.
árið í röð. Oftast hefur Útsýn farið
með tarþega sína til Spánar, en
þetta er 21. sumarið, sem Útsýn
skipuleggur ferðir þangað. Það
nýjasta í sumaráætlun Útsýnar er
hins vegar ferð til landsins helga,
ísrael. Undanfarin ár hafa einnig
verið skipulagðar ferðir til ítalíu,
Júgóslavíu og Grikklands. Þar að
auki eru skipulagðar ferðir til
Parísar í sumar, og ferðir til
Norðurlandanna, London og
Glasgow.
Á síöasta ári var notuö DC-8
þota, 249 sæta farkostur, til flutn-
inga á farþegum ferðaskrifstof-
unnar Útsýn til sólarlandanna viö
Miðjaröarhafið. Með loftbrúnni til
sólarlandanna hefur Útsýn þannig
getaö boöið lækkuö fargjöld, aö
sögn Arnar Steinsen hjá ferða-
skrifstofunni Útsýn.
Júgóslavía, háþróað ferðamanna-
land.
Nú þriöja árið í röð býöur ferða-
skrifstofan Útsýn feröir til Júgó-
slavíu meö beinu flugi, en Júgó-
slavía hefur átt mjög vaxandi vin-
sældum að fagna sem sumarleyf-
isstaður, og er orðið háþróað
ferðamannaland. Örn sagði, að
Júgóslavía væri ódýrt land, þar
væru góð hótel og ódýr matur.
Hann sagði einnig, að engin
ástæða væri fyrir ferðamenn að
óttast jarðhræringar á þessum
staö, en þeir jarðskjálftar, sem
valdið hafa svo miklum usla eru
_ Frá Grikklandi.
72
órafjarri þeim stað sem dvalist er á.
Um tvo staði er að velja, ef
dveljast á í Júgóslavíu. Portoroz
og Porec. Á vesturströnd Istria
skagans við Piran flóann, sem
liggur inn úr Adríahafinu er Por-
toroz, höfn rósanna, en það er
frægur heilsubaðstaður. Þar eru
nýtísku hótel og veitingahús. Kring
um bæinn eru hæöir skógi vaxnar
og vínekrur og fyrir neðan breið
sandströndin.
Porec er lítil borg um 50 km
sunnan við Portoroz á vestur-
strönd Istria skagans, en í ná-
grenni borgarinnar hefur á s.l. ár-
um risið miðstöð íþrótta og útilífs,
þar eru góðar baðstrendur og
hótel og skemmtanalíf er þar mik-
ið.
Grikkland með fornar minjar, sól
og sjó.
Gestur í Grikklandi á margra
kosta völ, segir í ferðabæklingi
Útsýnar. Þetta er annað sumarið,
sem Útsýn býður feröir til Grikk-
lands með beinu flugi. Dvalist er í
baðstrandarbænum Vouliagmeni,
skammt fyrir utan Aþenu. Meðan á
dvölinni stendur er farið til Aþenu,
og hinar fornu söguminjar borgar-
innar, sem svo mikill Ijómi stendur
af, skoöaöar, þ.á m. Akropolis
hæö og hofin þar, Dionysosar
leikhúsið, Agora svæðið og margt
fleira.
Örn sagði, að aðalfararstjóri Út-
sýnar í Grikklandi, Sigurður A.
Magnússon, sem mjög er kunn-
ugur sögu Grikkja í fortíð og nútíð,
færi með ferðamennina á þær
helstu slóðir sem gaman væri að
koma á, t.d. til Delfi, Korintu og
Epidaurus, og fræddi þá um þjóölíf
og menningu.
Spánn og ítalía.
Svo sem undanfarin ár er farið til
Costa del Sol og Costa Brava á
Spáni, og verða farnar þangað
tveggja og þriggja vikna ferðir í allt
sumar. Einnig verður farið í fjöl-
margar ferðir til Lignano, gullnu
strandarinnar á ítalíu. Útsýn býður
einnig upp á siglingu um austan-
vert Miðjarðarhafið og er m.a.
kómið til Feneyja, en þar hefst
ferðin, Aþenu, Istanbul, Dubrovnik
í Júgóslavíu og ýmissa annarra
staöa.
Loks má geta þess, að ferða-
skrifstofan Útsýn hefur í fjölda ára
haft umboð fyrir dönsku ferða-
skrifstofuna Tjæreborg og býður
m.a. upp á ferð um Rínar- og
Moseldali í sumar, en ekið er í
langferðabílum frá Kaupmanna-
höfn.