Frjáls verslun - 01.05.1979, Side 81
eyjar eru íslendingum orðnar vel
kunnar, þó einkum sem vetrar-
leyfisstaður, en þangað býður
Sunna ferðir allan ársins hring.
Meðan á dvölinni til Kanaríeyja
stendur er boðið upp á fjölmargar
skemmti- og skoðunarferðir.
Skemmtisigling og
Grikklandsferð
16—18 km fyrir utan Aþenu er
baðstrandarbærinn Glyfada.
Þangað fer Sunna með farþega
sína til Grikklands í sumar. Dval-
artími er tvær og þrjár vikur. Hægt
er að fara í dagssiglingu um Eyja-
hafið eða vikusiglingu um sömu
slóðir meðan á Grikklandsferðinni
stendur. Að sjálfsögðu er farið til
Aþenu og Akropolishæð skoðuð
og allar þær fornu minjar sem
borgin býöur upp á, en það eru
einmitt þær sem oft draga íslenzka
ferðamenn sem aðra til Grikklands
jafnframt sólinni. Einnig er farið í
skoðunarferð um Sounion skag-
ann, komiö til Delfi eins sögu-
frægasta staðar á Grikklandi og
farið til Argolis, en í þeirri ferð er
farið um Korintu.
Ferðaskrifstofan Sunna hefur
tekið á leigu skemmtiferðaskipið
Funchal, tæplega 11.000 lestir,
flaggskip Portúgala, til að sigla
með íslenzka ferðamenn og heim-
sækja nokkrar eftirsóknarverð-
ustu borgir Norður-Evrópu. Lagt
er upp frá Reykjavík þann 12.
ágúst og komið til Reykjavíkur aft-
ur þann 26. ágúst.
I ferðinni er t.d. siglt til Þórs-
hafnar í Færeyjum, til Bergen og
Osló, þaðan haldið til Kaup-
mannahafnar, því næst Svíþjóðar,
þá aftur til Kaupmannahafnar og
þaðan er siglt til Amsterdam í Hol-
landi. Frá Hollandsströndum er
siglt til Leith hafnarborgar Edin-
borgar og áfram heimleiðis.
Á skipinu eru alls sjö þilför og
eru farþegaíbúðir á fimm þeirra.
Fjölbreyttar skemmtanir verða um
borð meðan á siglingunni stendur
og leikur íslenzk hljómsveit fyrir
dansi á dansleikjum sem efnt
verður til. I skipinu er m.a. auk
veitingasala, bara, setustofa og
danssala, tollfrjáls verzlun, hár-
greiðslustofur, spilasalur, bóka-
safn, sauna, sundlaug og sól-
baðsþilfar.
í sól og sumaryl á Spáni.
Skemmtisigling
um Norður-Evrópu
með Funchal
I fjöldamörg ár hefur ferðaskrif-
stofan Sunna boðið farþegum
sínum upp á ferðir til Mallorca. En
það er til fleiri suðrænna sólar-
stranda en Mallorca, sem Sunna
fer í sumar þ.á m. til Costa del Sol
og Costa Brava á Spáni, Kanarí-
eyja, Portúgal og Grikklands.
Einnig verður boðið upp á ferðir
til London, og þar að auki siglingu
með skemmtiferðaskipi um Norö-
ur-Evrópu.
Á suðlægar
sólarstrendur
Til Mallorca veröur fariö í allt
sumar og fram í október, mismun-
andi langar ferðir. Dvalizt er á
mismunandi gististöðum, íbúðum
eða hótelum m.a. við Magaluf og
Palma Nova baðstrendurnar.
í Mallorcaferðunum er boðið
upp á ýmsar skoðunarferðir. Hinir
frægu drekahellar austast á eyj-
unni eru skoðaðir, farið er til
Valdemosa og þar er m.a. klaustr-
ið sem Chopin dvaldist í skoðað.
Fariö er í skoöunarferð til For-
mentor skagans og þar komiö í
leöurverksmiðju og glerverk-
smiðju. Sædýrasafnið við Magaluf
er skoðað, farið í næturklúbba-
ferð, Palma er skoðuð og rúsínan í
pylsuendanum hjá mörgum er
grísaveislan.
Á Costa del Sol verður einnig
hægt að fara í fjölmargar skoðun-
arferðir, auk þess sem hægt er að
flatmaga viö sundlaugar eöa
sendnar strendur og láta sólina
sleikja sig. Er helzt að nefna ferðir
til Granada og Malaga, tveggja
daga Afríkuferð til Alsír og Tanger,
Tívolíferð og grísaveizlu.
Á Costa Brava er boðið upp á
skoðunarferð til Andorra, sem er
lítið tollfrjálst ríki í Pýreneafjöllun-
um. Einnig gefst kostur á skoðun-
arferð og bæjarferð til Barcelona
og fylgzt með nautaati í borginni.
Þar er að sjálfsögðu grísaveizla
o.fl. sem ferðamennirnir geta tekið
þátt í.
Til Portúgal verður farið í júní,
júlí, ágúst og september og tekur
ferðin 3 vikur. Þar er dvalizt ýmist í
hótelum eða íbúðum.
Kanaríeyjar eru sólskinsparadís
allan ársins hring, er auglýst hjá
feröaskrifstofunni Sunnu. Kanarí-
73