Frjáls verslun - 01.05.1979, Side 86
Nema land á
JAMAICA
Nú er líka hægt að fara til Möltu.
Miðjarðarhafseyjan Malta er einn sá staöur, sem
Samvinnuferðir—Landsýn býður upp á í sumar. Á
þessari sögufrægu eyju eru ákjósanlegar baðstrend-
ur, gott loftslag, veitingahús, sundlaugar, verslanir og
fjöldamargt annað. Þessi perla Miðjarðarhafsins eins
og hún er oft nefnd er aðeins 248 ferkm. að stærð, og
hefur verið gegnum aldirnar bitbein stórveldanna við
Miðjarðarhafið.
Þessi nýi ferðamannastaður í augum l’slendingsins
er árangur af samstarfi Samvinnuferöa—Landsýnar
og dönsku verkalýðshreyfingarinnar. Ferðin hefst
með því að flogið er til Kaupmannahafnar, og þaðan
til Möltu, þar sem dvalist er í skemmtilegum garðhús-
um í márískum stíl. Eftir hálfs mánaðar dvöl á Möltu
kemur vikudvöl í Kaupmarinahöfn, og er dvalið þar í
sumarhúsum dönsku verkalýðshreyfingarinnar, í út-
jaðri borgarinnar í eina viku.
Samvinnuferðir — Landsýn fyrsta
íslenska ferðaskrifstofan, sem
býður upp á ferðir þangað.
„Á Jamaica eru börnin ber“ segir í dægurlaga-
texta, sem stundum er sunginn í íslenska útvarpinu.
Jamaica — það er staður sem íslendingar hafa ekki
haft mikið af að segja, og vita ef til vill lítið um, annað
en það, að höfuðborgin þar heitir Kingston, eyjan er í
Karabíska hafinu, og þar er ákaflega sólríkt. Nú ætlar
íslensk ferðaskrifstofa að nema þar land, og bjóða
upp á ferðir þangað í sumar, en það er ferðaskrif-
stofan Samvinnuferðir— Landsýn.
Þeir hjá Samvinnuferðum — Landsýn segja, að á
Jamaica sé auðvelt aö sjá og upplifa aldagamalt
þjóðlíf eyjaskeggja og njóta um leið allra nútíma
þæginda og þjónustu.
Á Jamaica er séð um allt
Það er óhætt að segja, að mikið er lagt upp úr
þjónustunni á Jamaica. Ferðamennirnir frá Islandi fá
til afnota sérstakt hús, og fylgir hverju húsi mat-
reiðslumaður, þjónustustúlka og garðyrkjumaður,
sem einungis þjóna gestum hússins með því að mat-
reiða, sjá um matarinnkaup, hreingerningar o.fl.
Á Jamaica er margt hægt að gera sér til skemmt-
unar. Þar eru góðar baðstrendur, tær sjór, fagurt
landslag, skemmtistaðir, veitingahús og golfvellir svo
eitthvað sé nefnt. í lok ferðarinnar er gefinn kostur á
dvöl í New York, en þangað er fyrst flogið frá íslandi á
leið til Jamaica. Feröirnar til Jamaica taka 18 daga.
Fyrsta ferðin var í byrjun maí, en einnig eru ráðgerðar
ferðir í júní og ágúst.
Stuttar ferðir til eyjarinnar grænu.
Ein eyjan enn er í sumaráætlun Samvinnuferða—
Landsýn. Sú eyja er miklu nær okkur, oft kölluð Eyjan
græna, er frændur okkar írar byggja. írland hefur
notið vaxandi vinsælda sem ferðamannaland, og
hana hafa margir (slendingar sótt heim. Stuttar ferðir
til útlanda hafa notið sívaxandi vinsælda, en einmitt er
boðið upp á stuttar ferðir til Irlands. Aðallega er dval-
ist í Dublin, en þar að auki er farið til nokkurra þekktra
ferðamannastaða í suður- og vesturhluta landsins.
írland býöur upp á margvíslega skemmtun. Sveita-
héruðin eru rómuð fyrir fegurö, og írsku borgirnar og
bæirnir eru sambland gamla og nýja tímans sem
þar mætast í gömlum kirkjum, krám, minnismerkjum,
íbúðarhúsum af öllu tagi og nýtískulegum stórhýsum
verslanasamsteypanna.
Samvinnuferðir—Landsýn bjóða einnig upp á
námsdvalir á Irlandi fyrir unglinga, þar sem áhersla er
lögð á enskukennslu.
Suður og austur á bóginn.
Þó aðallega hafi verið sagt frá feröum ferðaskrif-
stofunnar Samvinnuferðir—Landsýn til eyjanna Jam-
aica, Möltu og írlands, er fjölmargt annað um að velja
í sumaráætlun ferðaskrifstofunnar þ. á m. ferðir til
Costa del Sol á Spáni, Júgóslavíu, sem hafa vakið
mikla athygli á s.l. árum, ferðir um Rínarlönd, til Kan-
ada, Rómar og Riverunnar, ferð sem kallast Fimm
landa sýn, og þar að auki ferðir til Noröurlanda,
London og loksferð í austurátt, þarsem m.a. er komið
til Finnlands og Sovétríkjanna.
í skjóli
pálma
á Jamaica