Frjáls verslun - 01.05.1979, Page 87
Aðaláherslan lögð á
Mallorca- og Ibizaferðir
Ferðaskrifstofan Úrval leggur aðaláherslu á ferðir
til Mallorca og Ibiza í sumar. Úrval hefur boðið Mall-
orcaferðir í mörg ár, en í sumar er þriðja árið í röð
boðið upp á Ibizaferðir, og er Úrval eina ferðaskrif-
stofan hér sem skipuleggur ferðir þangað.
Ibiza er eyja í Miðjarðarhafinu 80 km frá austur-
strönd Spánar. Enn austar er Mallorca, en milli Ibiza
og Palma á Mallorca er 15-20 mín. flug.
Ibiza í Miðjarðarhafinu.
Ibiza er þriðja stærsta eyjan í Baleriska eyjaklas-
anum, og er hún um 572 km að stærð, en íbúar
hennar eru um 40 þúsund. Á Iþiza hafa sest að lista-
menn og ungt fólk úr öllum áttum. Þar þrífst mikill
listiðnaður og sýningarsalir eru margir. Eyjan býður
gestum sínum friðsæld og kyrrð, en líka skemmtanir
og fjörugt næturlíf.
Eyjan er klettaskorin, en með fjölmörgum víkum og
vogum. Eyjan er einnig vaxin grenitrjám, pálmatrjám,
fíkjutrjám, olívutrjám og hnetutrjám og blómaskrúð er
þar mikið.
Höfuðborgin heitir einnig Ibiza, og þar rétt fyrir utan
er flugvöllurinn. Flogið er þeint til Ibiza í sumar. Hefur
Úrval skipulagt þriggja vikna ferðir þangað allt til
septemþerloka.
í borginni býr um helmingur íbúa eyjarinnar, um 20
þús. manns, og skiptist hún í fimm borgarhluta.
Meðan á Ibiza dvölinni stendur er boðið upp á
næturklúbbaferð, grísaveislu og dagsferð til eyjar-
innar Formenta m.a. Úrval bendir einnig á að fólk geti
fengið sér bílaleigubíl, ef það vill sjá sig frekar um,
leigja sér reiðhjól, eða ferðast með strætisvögnum til
nálægra staða.
Anna Haraldsdóttir, sem F.V. spjallaói við sagði, að
Úrval legði mikla áherslu á, að fólk tæki börnin með í
ferðirnar til Mallorca og Ibiza, enda er afsláttur fyrir
þau góður.
Líf og fjör á Mallorca.
Flestir íslendingar þekkja Mallorca, annað hvort af
umtali eða þeir hafa komið þangað. Mallorca er
stærsta eyjan í Baleriska eyjaklasanum, og þangað
hafa íslenskar ferðaskrifstofur farið með farþega sína
í fjölda ára. Líf og starf Mallorcabúa er að taka á móti
erlendum ferðamönnum, en að meðaltali koma um 4
milljónir ferðamanna þangað á sumrin.
Á Mallorca er unnt aó velja úr mismunandi gisti-
stöðum, íþúðum eða hótelum eftir því hvað hentar. Þó
dvölin á Mallorca sé hverjum og einum frjáls til ráð-
Við hótelið á Maliorca
stöfunar er boðið upp á fjórar skoðunarferðir t.d. með
vesturströndinni til Valdemosa, til Porto Cristo í
drekahellana, næturklúbbaferð til Palma í Titos
næturklúbbinn og grísaveislu svo eitthvað sé nefnt.
Lundúnaferðir eins og mörg undanfarin ár.
i maílok skipulagði Úrval ferð til St. Petersburg í
Florida, sem á nú vaxandi vinsældum að fagna meðal
íslendinga, og verður í haust aftur efnt til annarrar
Floridaferðar.
Eins og mörg undanfarin ár býður Úrval Lundúna-
feróir vikulega allan ársins hring, og er hægt að velja
um marga gististaði dýra og ódýra þar í borg. Að
lokum má geta þess, að í gildi er fjölskylduafsláttur í
ferðir til Norðurlandanna og Bretlandseyja, en Úrval
hefur selt farmiða til þessara staða, auk þess sem þar
fer fram öll almenn farmiðasala og fyrirgreiösla varð-
andi ferðir meö Smyrli.
79