Frjáls verslun - 01.05.1979, Síða 89
Benidorm er byggður upp
sem ferðamannabær
Benidorm er byggöur upp sem ferðamannabær, aö
sögn þeirra hjá Ferðamiðstöðinni. Þar er t.d. engin
mengun við strendur og bærinn er mjög hreinlegur.
Margt er hægt að gera sér til afþreyingar annað en
að liggja í sólbaði. Þar er sjóskíðatogbraut, unnt er að
leigja sér bát, í bænum er tivolí, eða skemmtigarður
fyrir börn og go-cart bílabraut. Þar eru einnig nætur-
klúbbar og diskótek.
Boðið upp á ýmsar skoðunarferðir.
Fararstjórar Ferðamiðstöðvarinnar efna til ýmissa
skoðunarferða þ. á m. til fjallaþorpsins Guadalest,
sem er sérkennilegt Máraþorp, farið í safari ferð, en
þar er fjöldi dýra, Ijón, tígrisdýr, fílar, sebrahestar og
mörg önnur dýr. Sömuleiðis eru skoðaðir Canalobre
dropasteinshellarnir, en þeir eru hæstu dropasteins-
hellar í heimi á annað hundrað metrar á hæð þar sem
hæst er. Á tímum borgarastyrjaldarinnar á Spáni voru
þarna flugvélaverksmiðjur.
Einnig er efnt til skoðunarferða til Valencia, efnt til
grísaveislu fylgst með burtreiðum eins og þær tíðk-
uðust á miðöldum, og efnt til næturklúbbaferða.
Ferðamiðstöðin bendir farþegum sínum einnig á
bílaleigur, en hægt er að fá leigðar margar gerðir af
bílum til lengri eða skemmri tíma, sömuleiðis reiðhjól
eða vespu ef fólk hefur áhuga á því.
Einnig lögð áhersla á ferðir tii London og Miami.
Ferðamiðstöðin hefur einnig lagt áherslu á ferðir til
London, en á síðasta ári skipulagði hún fjórar ferðir
þangað með leiguflugi. Var fararstjóri með í ferðinni,
og skipulagði hann skoðunar- og skemmtiferðir fyrir
farþegana. Á þessu ári er fyrirhugað að skipuleggja
fleiri slíkar ferðir. Sömuleiðis eru seldar ferðir á sól-
arstrendur Florida, nánar tiltekið til Miami.
Hópferðir til Benidorm er það sem Ferðamiðstöðin
leggur aðaláherslu á í sumar, en þangað verða farnar
12-14 ferðir til Costa Blanca í sólina á Benidorm, eins
og ferðaskrifstofan auglýsir. Ferðamiðstöðin býður
upp á margs konar ferðir og þjónustu, og ferðaskrif-
stofan hefur m.a. umboð fyrir margar stærstu vöru-
sýningarnar í Evrópu.
Ferðamiðstöðin hefur einnig efnt til hópferða með
knattspyrnuunnendur til Englands, og verður farið á
hausti komanda í eina slíka ferð, en síðast var farið
um páskana með 70 manna hóp aðdáenda ensku
knattspyrnunnar.
Benidorm byggður upp sem ferðamannabær.
Benidorm er á suð-austur Spáni, í rúmlega 40 km
fjarlægö frá Alicante og 140 km fjarlægð frá Valencia.
Á þrjár hliðar er bærinn umkringdur fjallahring, sem
tengist saman með fallegri sandströnd Miðjarðar-
hafsins.
Gamli bæjarhluti Benidorm stendur á kletti, sem
skilur í sundur hinar frægu strendur Levante og
Poniente.
Benidorm er ekki stór bær, íbúar hans eru um 25
þúsund manns, en mörg íbúðarhótel og hótel, og þar
eru rúm fyrir allt að 500 þúsund manns. Bærinn fór að
byggjast upp á árunum 1955-60, en þetta er fimmta
sumarið, sem Ferðamiðstöðin skipuleggur þangað
ferðir.