Frjáls verslun - 01.05.1979, Side 91
Til Egyptalands á ný
eftir langt hlé
Frá Kaíró
Ferðaskrifstotan Víðsýn er nýjasta ferðaskrifstot-
an hér á landi. Hún var opnuð 31. mars s.l. en eigandi
hennar er sr. Frank M. Halldórsson. Sr. Frank er
ferðamálum ekki ókunnugur. Hann hefur s.l. 15 ár
notað sumarleyfi sín til að ferðast um erlendis, og
hefur m.a. verið fararstjóri í fjölda ára. Hann hefur
komið til margra Austurlanda m.a. til Israel, Egypta-
lands, Jórdaníu, Sýrlands, Líbanon og Íran. Hann
hefur nokkrum sinnum verið leiðsögumaður ís-
lenskra ferðamanna í ísrael t.d. á síðasta ári.
Fyrst á sumaráætlun ferðaskrifstofunnar Víðsýn er
einmitt ísraelsferð, en hún hefst í lok maí, og komið er
heim 12. júní. Sr. Frank sagði, að komið yrði til ýmissa
staða í ísrael. Dvalið er í Jerúsalem og borgin skoðuð
m.a. Grátmúrinn, Getsemanegarðurinn, Golgata, Via
Dolorosa og ýmsir aðrir staðir þekktir úr Biblíunni.
Einnig er dvalið í Galileu og Tel Aviv. Farið er í fjöl-
margar skoðunarferðir meðan á ísraelsdvölinni
stendur. Einnig er komið til Haifa við strönd Miöjarð-
arhafsins.
Til Egyptalands á ný.
Mörg ár eru liðin síðan íslensk ferðaskrifstofa hefur
skipulagt ferð til Egyptalands, en í síðustu hópferð-
inni sem farin var héðan var sr. Frank einmitt leið-
sögumaður. Ferðaskrifstofan Víðsýn efnir seinni
hluta júnímánaðar til Egyptalandsferðar, og verður
einnig komið til Grikklands í sömu ferð. Ferðin hefst í
Grikklandi með því að dvalist er í Aþenu, þar sem
vagga vestrænnar menningar stóð og margar af
frægustu söguminjum heims er að finna. Boðið er
upp á ýmsar skoðunarferðir um Aþenu og nálægar
slóðir.
Síðan er flogið til Kairó, borgarinnar sem stendur
ofarlega í mynni Nílardals við jaðar Saharaeyðimerk-
urinnar. Það er einkar fróðlegt fyrir Evrópubúa aö
Sfinxinn
Egypta-
landi
kynnast þessari merku borg. Þar ríkir andrúmsloft
Austurlanda og Afríku. Margt er að sjá og skoða í
Kairó og nágrenni þar á meðal pýramídana í Giza og
grafarhvelfinguna í Keopspýramídanum. Alls staðar í
borginni hljóma með jöfnu millibili hróp frá mjóturn-
um bænahúsanna sem kalla á fólk til bæna. Allt er
þetta framandi í augum Vesturlandabúans. I Egypta-
landsferðinni er einnig komið til Luxor. Þar er t.d.
Karnak hofið fræga.
í Egyptalandsferðinni verður hægt að fara í margar
skoðunarferðir, t.d. í siglingu á Nílarfljóti, ferð til
Alexandríu, ferð í Dal konunganna og skoðunarferö
um Kairó.
Ferðir til margra stórborga í Evrópu.
Sé litið okkur nær og snúið aftur til Evrópu, mun
Víðsýn efna til ferða til ýmissa staða og landa í
Evrópu. 14. júlí í sumar er fyrirhuguð ferð til Osló,
Kaupmannahafnar og Glasgow. Um miðjan júní
veröur einnig farið í Rínarlandaferð, og verður ekið
frá Luxemborg eftir Moseldalnum niöur í Rínardalinn
og komið til ýmissa staða þar m.a. til Koblenz, Bonn
og Kölnar, og þar að auki Frankfurt svo eitthvað sé
nefnt.
Seinni hluta júlímánaðar verður efnt til ferðar til
fjögurra borga, Frankfurt, Zurich, París og London, og
er flogið á milli borganna. í ágúst verður aftur farið í
Rínarlandaferð og nokkru síðar eöa 10. ágúst aftur til
ferðar til fimm borga í Evrópu Luxemborg, Frankfurt,
Munchen, Zúrich og Parísar. Sr. Frank M. Halldórs-
son sagði, að hann leggði áherzlu á að efna til eigin-
legra hópferða, þar sem fararstjóri og hópurinn eru
saman, og fróðlegir staðir skoðaöir í þeim ýmsu
skoðunarferöum sem efnt verður til, en jafnframt að
fólk geti notað tímann til að versla, eða gert annað
það er það hefur skemmtun af. Loks má nefna ferö,
sem Víðsýn fer 20. ágúst, til Glasgow og Dublin, þar
sem ferðast verður um skosku hálöndin og komið til
Edinborgar en síðan flogið til Dublin. Lokaferðin í
sumaráætlun Víðsýnar er önnur ísraelsferð í septem-
ber, en þá verður fyrst fariö um söguslóðir Biblíunnar,
en síðan dvalist á Miðjarðarhafsströnd ísrael í eina
viku.