Frjáls verslun - 01.05.1979, Page 92
afþreying
Margir, sem ferðast um landið kjósa að dvelja á hinum
ýmsu hótelum landsbyggðarinnar um lengri eða skemmri
tíma sér til hvíldar, skemmtunar og hressingar. í nágrenni
flestra hótelanna eru þekktir ferðamannastaöir, sem fróðlegt
er að skoða. Eins og undanfarin ár birtir Frjáls verzlun
hótellista, sem fjallar um aðstæður á hótelum utan Reykja-
víkur, samkvæmt upplýsingum forstööumanna þeirra. Ekki
bárust þó upplýsingar frá öllum hótelunum, sem blaðið hafði
samband viö.
HÓTEL AKRANES,
Bárugötu, sími 93-2020.
Gisting: Á Hótel Akranesi eru 12, eins, tveggja og þriggja
manna herbergi Allar máltíðir eru á boðstólum.
Hótelstjóri: Jakob Bnediktsson.
HÓTEL BORGARNES,
Borgarnesi, símar 93-7119 og 7219.
Gisting: Hótel Borgarnes hefur yfir að ráöa 10 herbergjum
á hótelinu og 3 herbergjum í bænum. Bað er á hverjum
gangi Cafeteria er á hótelinu og þar eru á boðstólum grill-
réttir, ýmsir smáréttir, smurt brauð, kökur, kókó, öl og gos-
drykkir o.fl Hótelið býður upp á góða aðstöðu til ráðstefnu-
og fundarhalda. Rétt við hótelið er golfvöllur og mikil veiði í
ám og votnum í nágrenninu.
Hótelstjóri: Jóhannes Sigurðsson
HÓTEL EDDA,
Reykholti, Borgarfirði. Sími um Reykholt.
Gisting: 64 eins- og tveggja manna herbergi á kr. 6.000.-
og kr. 8.000.-, Svefnpokapláss á kr. 1.300.- til 2.000.-. Veit-
ingasalur opinn kl. 08:00—23:00. Morgunverður (hlaðborð)
á kr. 1.500.-. Verð á öðrum veitingum skv. matseðli. Sund-
laug. Opið frá miðjum júní til ágústloka.
Hótelstjóri: Rúnar Vilhjálmsson.
SUNIARHEIMILIÐ BIFRÖST,
Bifröst, Borgarfirði.
Gisting, orlofsdvöl: 18 tveggja manna herbergi með
handlaug og 8 þriggja manna herbergi með sér snyrtingu og
sturtu. Sumartíminn júní, júlí og ágúst er skipulagður fyrir
viku orlofsdvalir, ráðstefnur og fundi. Stakar máltíðir eða
afsláttar matarkort, hálft eða fullt fæði. Sjálfsafgreiðsla. Fritt
fæði og gisting fyrir börn með foreldrum til 8 ára aldurs.
Matur á hálfvirði fyrir 8— 12 ára. Matur og kaffi fyrir starfs-
hópa, fjölskyldufagnaði og hópferðir. Ráðstefnur, fundir og
námskeið fyrir allt að 250 manns.
Pantanir og upplýsingar í síma 17377 Reykjavík og
93-7102 (símstöðin Borgarnesi) Sumarheimilinu Bifröst.
SJÓBUÐIR HF„
Ólafsvík, sími 93-6300.
Gisting. Á hótelinu eru 38 tveggja manna herbergi. Heim-
ilislegur matur, kaffi, kaffibrauð og grillréttir eru á boðstólum
Hótel
1979
allan daginn i vistlegum matsal. Á þessu sumarhóteli er
einnig setustofa með sjónvarpi.
Hótelstjóri: Jenetta Báröardóttir
HÓTEL STYKKISHÓLMUR,
Stykkishólmi, sími 93-8330.
Gisting: Hótel Stykkishólmur hefur yfir að ráða 26 tveggja
manna herbergjum, sem öll eru með baði. Á hótelinu verður
starfrækt cafetería, sem tekur um 100 manns. Þar verða
veitingar seldar á vægu verði. i hótelinu er einn glæsilegasti
danssalur landsins, sem tekur 300—400 manns i sæti. Sal-
urinn er tilvalinn til árshátiðar- og ráðstefnuhalda. Einnig
hefur Hótel Stykkishólmur. upp á aö bjóða minni fundarsali.
Hótelið tekur að sér stórar og smáar ráðstefnur og útvegar
svefnpokapláss Hótel Stykkishólmur útvegar báta til skoö-
unarferða um Breiðarfjarðareyjar. Sundlaug er í næsta ná-
grenni við hótelið
Hótelstjóri: Guðrún Þorsteinsdóttir
HÓTELBJARG,
Búðardal, sími 95-2161.
Gisting: Tveggja manna herbergi og fjölskylduherbergi.
Morgunmatur og allur annar matur. Cpið allt árið.
Hótelstjórn: Borghildur Hjartardóttir og Ásgeir Guð-
mundsson.
HÓTELEDDA,
Bjarkarlundi, Reykhólasveit. Sími um Króksfjarðarnes.
Gisting: 12 eins- og tveggja manna herbergi. á kr. 6.000.-
og kr. 8.000.-. Veitingasalur opinn kl. 08:00—23:00. Morg-
unverður (hlaðborð) kr. 1.500.-. Verð á öðrum veitingum skv.
matseðli. Opið frá júní til ágústloka.
Hótelstjóri: Snorri Bogason.
HÓTEL EDDA,
Flókalundi, Vatnsfirði. Sími um Patreksfjörð.
Gisting: 16 eins- og tveggja manna herbergi m/baði á kr.
8.000,- og kr. 10.000.-. Veitingasalur opinn kl. 08:00—23:00.
Morgunverður (hlaðborð) kr. 1.500.-. Verð á öðrum veiting-
um skv. matseðli. Opið frá júní til ágústloka.
Hótelstjóri: Ingibjörg Eyfells.
HÓTEL MÁNAKAFFI,
Mánagötu 1, ísafirði, sími 94-3777.
Gisting: Á Hótel Mánakaffi eru tvö eins manns herbergi,
fjögur tveggja manna og tvö hjónaherbergi. Hægt er að
koma við svefnpokaplássi sé þess óskað. Hótelið hefur til
umráða tvær íbúðir i bænum fyrir fjölskyldur eða hópa. Opið
er allt árið. Verð á máltíðum er samkvæmt matseðli. I veit-
ingasalnum eru einnig fáanlegir grillréttir. Þar er opið frá kl
08:00-23:30.
Hótelstjóri: Bernharð Hjaltalín
84