Frjáls verslun - 01.05.1979, Síða 113
fossi og nágrenni. Aftur á móti
eiga bílar úr sveitinni oft leið um
þéttbýlið, þegar bændur fara í
kaupstað.
Lambið við veginn
Framrúðubrot eru afskaplega
algeng í umdæmi Gísla Bjarna-
sonar og er það oft við skoðun
bílanna, sem farið er að gera þau
mál upp. Gerði Gísli ráð fyrir að
tryggingarfélagið þyrfti að borga
fjórfalda iðgjaldaupphæðina fyrir
framrúðutryggingu vegna tjóna á
ári hverju. Næstum allir kaupa
þessa tryggingu með ábyrgðar-
tryggingunni en hún kostar 6000
krónur aukalega. Af öðrum al-
gengum óhöppum í umferöinni úti
í sveitunum eru slys, sem bílar
valda á búpeningi, einkanlega
sauðfé. Sagði Gísli, að áður fyrr
hefðu bílstjórar næsta lítiö hirt um
að tilkynna slík atvik en nú létu
menn þó vita. Nokkuð skiptar
skoðanir hafa verið um bótaskyldu
í þessu efni enda oft sem bændur
hafa ekki sýnt nægilega aðgát við
geymslu búpeningsins. Þó benti
Gísli m.a. á, að vegurinn milli Sel-
foss og Reykjavíkur lægi um af-
réttarlönd Ölfusinga á Hellisheiði.
Þrátt fyrir öll vafaatriði í sambandi
við bótaskylduna sagði Gísli
ákveðnar reglur vera til um
greiðslu bóta. Fyrir sauðfé er það
gert samkvæmt matsveröi, sem
kemur frá framleiðsluráði land-
búnaðarins á hverju vori. í fyrra var
verðið á hvern dilk ákveðið 23.500
kr. en 1. verðlaunahrútur átti að
borgast á 86.800 kr. Um bætur
fyrir stórgripi er samiö sérstaklega
við eigendur.
Aðspurður um aðbúnað á
sveitabýlum út frá ákvörðunum um
brunatryggingar sagði Gísli, að
sérstakur afsláttur væri veittur, þar
sem brunavarnir væru góðar. Það
er ofurlítiö misjafnt eftir hreppum.
Dreifbýlishrepparnir sameinast
um slökkvibúnað og hafa þannig
eina miðstöð tveir, þrír eða fleiri
saman. Eldvarnir á bæjum eru
mjög misjafnar. Skilningur er þó
vaxandi á nauðsyn þess að hafa
slökkvitæki tiltæk heima. við. Gott
eftirlit er með öllum rafbúnaði,
sem trúnaöarmaður rafveitnanna
gerir úttekt á.
Viö rifjuðum það upp að ekki
heyrði það með öllu fórtíðinni til, að
tekið sé fram í fréttum af eldsvoð-
um, að eignir manna hafi verið lágt
vátryggðar. Við spurðum Gísla,
hvort menn vátryggðu í samræmi
við verðgildi eigna sinna. Hann
sagði að oft ríkti talsvert hugsun-
arleysi í þeim efnum. Tryggingar-
starfsmenn reyna þó að brýna fyrir
fólki að tryggja allar aukningar við
innbú. En síðan tryggingarfélögin
fóru að hækka tryggingarupp-
hæðina sjálfkrafa eftir verðlags-
þróuninni hefur ástandið lagast
stórlega. Áður áttuðu menn sig
hreinlega ekki á verðlagsbreyting-
unum og því var oft lágt vátryggt.
Ferðamannaverzlun: Bensínsala: Bifreiðastöð Selfoss:
öl, sælgæti, pylsur, ís og Bensín, olíur og Leigubílar hvert á land
alls konar ferðavörur. bifreiðavörur. sem er. Sími 1266
Veitingasalur:
Alls konar grillréttir, réttur dagsins, kaffi og FOS8NESTK
kökur, brauðsamlokur. Smurt brauð og kalt borð fyrir Austurvegi 46, Selfossi
veislur og samkvæmi. Sendum heim Símar 1266 og 1356
105